....  hún sendi sína gylltu geisla á nefbroddinn á mér.  Hún var hlý og glöð enda hafði dregið frá sól og grátur engla gladdi tún og engi á veg.
Það að fá sólina í góðum gír, ca 20° gleður líka sálartetrið og bærinn fyllist af fólki, veitingahúsin verða þéttsetin og einn og einn öl rennur létt niður í túristana.  Já, lífið verður svo miklu betra þegar sú Gula gleður
Ég vaknaði upp með góða tilfinningu, von í hjartanu og dreif mig inn í daginn.  Á örskot stund hefur dagur runnið sitt skeið og náttmyrkur hjúfrar konu.  Bleikur, lillablár, gulur og blár skreyta strigann og gleðja gömluna.  Um að gera að hafa gaman og leika sér með litina.
Þakflís rustico
Hátíðarkaffi á köldum morgni
Ég ætla að fanga stundina og njóta þess.
Þegar hjartað er fleytifullt af þakklæti og kærleik er ekkert betra en að koma sér á fætur og takast á við daginn.
Í glugganum situr krummi, yndislega fallegur, handbragð Atla trégaurs ( www.tregaur.tk )  Snilldar gluggaskraut!  Birtan teygir sig inn og kaffibollinn hlýjar konunni sem er klædd og rólfær.
Konan hefur verið að föndra og dunda sér ásamt nokkrum léttum og skemmtilegum verkefnum ....  Ég hef alltaf haft bænirnar í huga og langað til að vinna með þær og datt niður á skemmtilegt konsept þökk sé englum á himnum :-)
Eftirprentun á gæðapappír
Æðruleysisbæn
Eftirprentun á gæðapappír
Sitji Guðs englar
Eftirprentun á gæðapappír
Vertu Guð faðir
Þessar myndir ásamt hjónabæninni eru allar að stærð 12 x 12 í Ikea ramma 23 x 23 og kosta 10.000 íslenskar ríkiskrónur ....
Svo er það blessuð hamingjan sem sleikir hárið aftur í golunni, það hefur kólnað í Paradís, rigning og grámi sem vonandi víkur fljótlega fyrir geislandi sól og þeirri sælu er henni fylgir.
Er að horfa á þátt um apa í sjónvarpinu, þvílíkt ljót krútt þessi apastofn hehe
Knús í daginn þinn
...  Sykursæt, skemmtileg og sexý
Ananas stelpur eru bragðgóðar og finna uppá ýmsum frábærum uppákomum og eru duglegar að skapa ýmiskonar afþreyjingu.  Ég þarf að finna mér ananas hatt og komast í klíkuna.
Föstudagurinn er að sigla hraðbyr í átt að kvöldi, heimilisverkum er lokið og "madre mía! hvað það er ógó pókó hreint og fallegt hér allt um kring.  Nú gætir þú misskilið mig og haldið að hér væri alltaf allt í skít og drullu en það er allt önnur ella.  Það vildi svo skemmtilega til að ég fékk heimilishjálp til að koma heim 2x í viku og það tekur allt of mörg slög pr. mínútu að útskýra afhverju þannig að ég bara sleppi því.  En til að gera langa sögu stutta þá hef ég endurheimt HAMINGJUNA mína því hjálparhellan er hætt og ég skúra og skrúbba frá mér vitið og elska það!
Hamingjan er dásamleg í því litla sem snertir okkur.  Hamingjan mín er þessi yndislegi hversdagsleiki, finna fyrir því að vera skúringarkona sem er líka ananas stelpa
Ananas systur, akríll á striga með olíu undirlagi 30 x 30
Nú ætlar konukroppur að ráðast í að taka blómamyndir í gríð og erg.  Lífið er gott á góðum degi og helgin smollin í hjartað.  Ég fæ hjón í heimsókn á morgun laugardag og allt klárt fyrir það svo nú er bara að dunda sér en fyrst er það búðarráp, matarinnkaupin og sjónvarpsgláp í kvöld.
Ef lífið væri betra þá væri ég engill .....
G-Óða helgi
í æðum .....  Bara æðislegt að berjast við brottför úr draumaheimi, nudda augun og teygja úr sér undir hlýrri sænginni.  Það er ómur af herramönnum heimilis er taka sig til fyrir verkefni dagsins.
Ég ligg áfram og dotta milli tveggja heima en finn að næturævintýrum er lokið og kominn tími ævintýra ljósheima.  Á náttborðinu er glitrandi kóróna með fallegum steinum, töfrasproti og merki friðarins.
Já, heill dagur en fyrst er það hrökkkex með berjasafa og rjúkandi kaffi, það er gott að sitja í birtunni og faðma daginn, taka fram sparifötin og setja blóm í barminn.  Kórónan komin á sinn dag og nú getum við hafist handa.
Í gerjun er lítil mynd er ber titilinn æðruleysisbæn, klár á nagla.  Þakflísin kallar á litina og fær sínu framgengt.
Fegurðin í deginum er hluti af samruna heims og sálar, bara fegurð er geislar frá konunni með kórónuna.
Njótið lífsins í deginum
....  Það er víst heiftarleg pönnsuflensa að ganga á Skaganum og alla leið til San Miguel.  Þessi sótt er stórhættuleg og lenti ég svo ílla í því að ég er með pönnsustaflana allt um kring.
Get hoppað og skoppað eins og gerist best á nýmóðins trampólín.
Gaman að því!
Burt séð frá pönnsuflensunni þá þjáist ég af einrænni hegðun er tengist málaralistinni og hef setið með málningarsletturnar langt uppá olnboga og vaki frameftir nánast allar nætur.  Það er svo gott að svala sér með þessu móti í fallega vorveðrinu hér Spániá.
Ást er, eftirprentun í Ikea ramma
20 x 29 í ramma 32 x 43
Hrafnaást, eftirprentun í Ikea ramma
20 x 29 í ramma 32 x 43
Veðrið er guðdómlegt við Spánarstrendur, hvíta ströndin er gullið er faðmar sæ og litríkar hugsanir teygja sig á strigann.  Hitinn fór yfir 20° í forsælu í dag og ég opnaði flesta glugga uppá gátt til að  anda að mér deginum .....  Það undursamlega er að tíminn flýgur þöndum vængjum og við líðum eins og sandkorn eilífðar í átt að takmarkinu.  Við fæðumst, við deyjum en lifum endalaust .....
Vonandi næ ég mér heilli af pönnsuflensunni ...
.....  Hreyfing er gullsins verð og það má segja að hreyfing eflir og kætir.  Í upphafi mánaðar ákváðum við mæðgur að skella okkur í magadans, seiðandi arabískan dans er krefst natni og lipurðar.
Natni og lipurð til að framkalla seiðandi hreyfingar, algjör list
Eftir stuttan vetur er varði í skamma stund þykir konu líklegt að farið sé að vora.  Grundirnar taka kipp og smáfuglarnir flögra og syngja chi í hjörtun.  Er þetta ekki allt of gott til að vera satt?  Lífið getur ekki verið gott og bara gott, eða hvað?
Margar spurningar og svörin eru mörg, liggja í þúsund hjörtum er slá hvert í sinn sanna takt.  Við erum það sem við gerum, segjum og ætlum.  Leiðin er mislöng að markinu en hún er svo miklu sælli ef við höfum jákvæðnina og gleðina við hönd.
Ég get tekið pirr og angur út í geðveikum spinning tima, á lóðunum i anda Jón Páls heitins sem er mitt inspireitjón   Annars þá get ég sagt ykkur að magadans er ekki bara góð mittisæfing, rass og læra heldur ýfir það upp bros og hlátur.  Það var sko skellt uppúr í tímanum í kvöld.  Minnti mig töluvert á það þegar ég fór í bowling í gamla daga, samt ekki svo eldgamla daga því ég er töluvert ung.
Til að gera langa sögu stutta þá átti ég leik, var búin að troða puttunum í þessi göt á risastóru og þungu bowling kúlunni og tók vænleg tilþrif.  Ég gerði svo vel að ég kastaði kúlunni og flaug á eftir henni.  Ég lýg engu þegar að bowling höllin hló í takt og ég reyndar hló ekki minna hehehehe ...  Hef ekki farið í bowling síðan .....
Elska þessi blóm
Kyssti froskinn og fann þann sanna
Svona líka fínann
Svo er bara að muna eftir að taka næringu í hjartað.  Þakka fyrir það góða sem birtist í þúsund myndum í lífinu okkar.  Þakka fyrir það litla og agnarsmáa sem nær fram brosinu hjá þér, hjá mér hjá okkur öllum er greiðum götu hvers annars í þessari lífsbaráttu.
Ég elska blogg sem hafa fullt af myndum, ég elska að skoða myndir af fólki, sitja á kaffihúsi með sódavatn og sítrónu og horfa á allskonar fólk, í öllum stærðum, gerðum, litum og ljósi.
Það að elska gerir okkur gott en ástin er eins og trampólín þar sem jafnvægi er krafist.  Kanski ég taki smá dýfu og lyfti mér í hæstu hæðir og klóri í silfurlitaða skýjið mitt.  Náttstaðinn eina.
Lífið er gott á nóttunni
Litli bróðir minn er virðulega þrítugur í dag   Bara yndislegt að eiga afmælisdaga og geta haldið uppá þá.  Ég er ekki í vafa með að litli bróðir hafi átt góðan dag með elskunni sinni.
Ég er búin að vera í náttfötunum í allan dag, bara haft það kósý og legið í leti.  Svo verður sýslað á morgun og helgin smollin á!
Ást
Set þessa inn til gamans en flísin á hægri hönd er 44 x 16 er s.s. lengri og grennri.
Fór í verksmiðjuna og var að leita að portúgölsku efni sem er 50 á hæð / hálfur mtr en því miður hætt að framleiða.  Það sem strákarnir reyndu að gera mér til hæfist og gáfu mér nokkrar flísar eins og þessa til hægri.
Fögnuður er nafnið á henni enda er lífið til þess að fagna.
Allt of gott til að vera satt, allt of sætt til að gretta sig og geifla, allt of yndislegt bara .....
Beisiklý bjútífúl
Ástarsaga og Fögnuður
Spéfugl
Fyrsti kossinn
Dagarnir líða hratt og nýr dagur lítur brátt dagsins ljós.  Myrkrið umvefur konuna með hlýrri miðjarðarhafsslæðu.  Hlýtt, kanski ekki hlýtt en hlýjan er þessi nærvera við lífið og jörðina sem slær í hjartanu.
Lífið er fallegt og konan í grænum háum hælum.
....  að njóta lífsins, að vera til með bros á vör og gleði í hjarta.
Það er ekki sjálfgefið að vera glaður og njóta.  Við fáum flest þessa yndisríku tilfinningu á fósturstiginu.  Fáum að gerjast í innviðum móðurhjartans á því stigi er fæst munum.  Hlýtt og notalegt umhverfi, öryggi og ástin eina fagra.  Á öllu eru undantekningar og það á væntanlega líka við um ástina sem ekki er sjálfgefin þrátt fyrir að vera á fósturstiginu.
Ég ákvað að vera dugleg og hef tekið til hendinni heimavið.  Dustaði rykið af vinkonu minni sem hefur staðið prúðbúin en nokkuð alvarleg og íbyggin.  Mittismjó, settleg og fögur.
Breddan við Guardamar strönd.  Prúðbúin enda mikil lady í sér.
Breddan hefur hlutverki að gegna í dag.  Hún mun vera með kjéddlunni við gerð nýrrar myndar.  Ekki svona "vídjó" heldur er það gamli góði striginn.  Nú er allt klárt og það eina sem truflar er hugsanlegur hádegisverður.  Kanski ég sendi fólkið okkar á veitingastað til að fá vinnufrið.
Að sigra heiminn er eitthvað sem er okkur eðlilslægt.  Leggjum rækt og dugnað í það sem við gerum, gerum það vel og sigur er vís.  Að sigra sjálfan sig er líka skemmtilegt konsept svo framarlega sem við etjum ekki of hörðu kappi.
Lífið er sannarlega ljúft, fallegt og gott því í fegurðinni koma fram litríkar spegilmyndir og mótstaða þess er lífið býður uppá.  Verum sterk, sönn og sigrum í þeim verkefnum er við tökum okkur fyrir hendur.
.....  Jólin og áramótin og þrettándinn eru farin.
Komu með stuttu millibili og snertu hjartastað okkar hvert með sínu lagi.
Langamma mín á afmæli þann 14ánda desember og þá byrjum við jólin njótum dýrðar og gleði ...  Nýtt ár lítur við með góð fyrirheit, loforð og vonir heimsins.  Á þrettándanum á svo langafi minn afmæli og við pökkum jólunum niður með góðum minningum og þakklæti í hjarta.
Hvað er svo næst?
Ég er mikið að spá í Þorranum, rifja upp hvernig selshreifar bragðast (held samt að minningin þurfi enga upprifjun), súrsaðir pungar og hákarl.  Ég er að spá í að spella eins og ég stundum geri.  Huggeri athöfnina og mæti á hið árlega þorrablót afmarkaðs hóps íslendinga og mæti svo í spinning með uppáhalds spinnurum hins sama.
Næsta partý verður vonandi á Íslandi ef guð og lukkan lofar.  Þangað til þá er bara að brýna brosið, mæta í frúarleikfimina og spurning að skella sér á útsölur og versla föt sem passa á konukvikyndið.  Gengur ekki upp að vera fatalaus.
Frekar dökk mynd en hér er konan í upphafi átaksins .....
Komin með nýtt hár en eitthvað er hnéstellingin kjánaleg ....
Skiptir nú ekki öllu máli en lífið er bara gott, sami líkaminn, sami andinn en prinsessan gægjist út um annað augað.  Enn er langt í land og nú hefst vinnan fyrir alvöru.
Það er byrjað að rökkva og kertaljósin loga og lýsa bænir til þeirra sem mest þurfa.  Þessi helgi var fljót að líða og ég veit að vikan verður það líka.
Eigið yndislega kvöldstund og góða viku.  Lífið er bara skemmtilegt og gott!
...  Á hverju ári gerast merkilegir hlutir og í ár náði konan þeim merka áfanga að verða 4 og núll.  Búin að lifa í 40 ár og lifa vel.  Ekkert hungurkjaftæði, peningavolæði né neitt til að kvarta yfir.
Það hlýtur þá að teljast til notalegheita að vera ég?  En, við skulum nú ekki missa okkur hérna því ég hef minn djöful að draga sem er óttarlega sætur, spikfeitur og laðandi.  Hann situr á hægri öxlinni á mér og tekur verulega í þegar þannig blæs.
Á vinstri öxlinni situr dúnmjúkur engill sem peppar mig upp, blæs mér eld í hjarta og manar mig upp.  Þessi engill er í raun enginn annar en ég í gegn um þau þúsund líf sem ég hef lifað sem segir þá sennilega meir um djöfulinn en mörg orð um fallega engilinn .....
Ég varð fertug, átti góðan dag með vinum frá Íslandi, Auði minni og Orra hennar og Spáni, Asen, Miguel, Antonita og Ismael, stjörnuljós og alles ...  Í þessari andrá byrjaði líf mitt.  Ég vaknaði harðgift konan með 2 börn.  Spikfeit og hamingjusöm.
Dóttlan mín, hún Íris Hadda varð 14 ára þann 17jánda febrúar, sú fallegasta gjöf sem mér hefur verið gefin.  Í Mars varð pabbi minn, lífsgjafin sjálfur sextugur og ég þakka honum ævinlega að hafa stigið í vænginn við mömmumúsina sem er árinu yngri og rúmlega það.  Að elska foreldra sína er eitthvað sem við skyldum aldrei leyna og segja óspart!  Ég elska ykkur fyrir lífsgjöfina, fyrir það eitt að vera til.
Í apríl þá tók ég á móti vinkonu minni, golfskvízunni Immu og við áttum góðar stundir.  Ég lánaði henni eiginmanninn minn enda ekki hægt að kalla mig eigingjarna.  Nóhó!
Og smá innskot þar sem apríll er ekki liðinn og Imma ekki farinn þá varð ég Stúdína frá fjölbraut í Garðabæ, elskaði lærdóminn, gekk vel og fékk m.a. annars verðlaun fyrir góðan námsárangur í spænsku, hó ho hó ....
Þegar Imma fór ákvað ég að drepa spikfeitu konuna sem hafði vafið mig lögum af ómældri ást og umfangi.  Það þurfti aðeins að kaloríujafna kroppinn og hófst nú ferðalagið .....  Ég var svo heppin að eiga vinkonu, hana Maggý mína sem einnig stóð í miklum breytingum með líkama sinn og urðum við þjáningarsystur.
Svo ég geri nú langa sögu stutta þá eru rúml. 20 kg farin og konan stendur fatalaus ....  Spinning á hverjum degi bætir líkama og sál.  Það að gefa sér tíma og lyfta lóðum, vera innan um fólk sem elskar að rækta líkamann er bara yndislegt.  Ég hef dúnmjúkan og undurfallegan engil á öxlinni og hendi smábitum í djöfulinn því lífið er jafnvægi og við megum aldrei gleyma því að jafnvægið er best.
Um leið og við drepum einn kvilla vaknar annar.  Meðalvegurinn er bestur og ef ég get fetað hann þá eru margir sigrar er liggja í dal gleðinnar .......
Áður en árið rennur út á ég eftir að taka 2 góða tíma í spinning og 1 tíma í liðleika og mótun.  Ég á eftir að segja börnunum mínum hvað þau eru mér mikilvæg og að lífið er svo dýrmætt í núinu.  Það sem er liðið er farið og það sem kemur er óvænt gjöf ef guð lofar.
Bara svo enginn misskilji ást mína á börnum mínum þá varð Enrique minn 10 ára í júlí, litli ljónsunginn minn sem svo oft spyr hvort ég elski hann eða systur hans meira.  Svarið er einfalt ...  Ég er búin að elska Írisi Höddu í 14 ár og hann í 10 ár.  Jafn mikið og jafn heitt enda bæði ávöxtur gleðinnar
Gleðilegt ár til ykkar elsku vinir mínir
Þessi flís er til sýnis í Innrömmun Sigurjóns í Bláu húsunum í Fákafeni.
Jóladagur kom og spenningur barnanna sveif til himna eins og 17 júní blaðra.  Við höldum jólin eins og spænska fjölskyldan enda eru börnin okkar og mágkonu á svipuðum aldri.  Enginn skór í gluggann, aungvir 3 jólasveinar, enginn hamborgarahryggur né rauðkál og trumms.
Allir eru siðirnir sérstakir og sá spænski er ekki síður ljúfur og kann ég afskaplega vel við samveruna við jólin hér ytra.  Aðfangadagur er meira partýdagur heldur en hátíðlegur dagur þar sem fæðingu frelsarans er fagnað.  Flestir í gymminu ætluðu að borða eitthvað létt og fara á diskó.  Bærinn er iðandi af mannlífi og verslanir opnar langt fram eftir.  Fjölskyldan skundaði til tengdó og þar var ýmislegt girnilegt sem tengdamamma hafði útbúið.  Rækjur og krabbaklær, þurrkuð hrogn og fleiri fisktegundir, hnetur, möndlur, heitir réttir og girnilegasta þistilhjarta salat ..  Jummý jumm og svo var það soðið sem er mitt uppáhald.  Jóladagur stendur hæðst í huga barnanna en þá eru gjafirnar teknar upp.
Nú er kominn tími að finna andlitið, fara í eitthvað þægilegt og skella sér til tengdó upp til fjalla.  Tengdamamma er yndisleg kona og elskar að hafa börnin sín og barnabörnin hjá sér.  Góður dagur framundan hjá okkur.
Vonandi áttu þú líka yndislegan jóladag.
....  Messa Þorláks, skötuilmur í loftinu á mímörgum heimilum en ekki hér!
Ég væri alveg til í að snæða skötu, vel kæsta bara fyrir þennan rammíslenska sið.  Óska þeim sem fengu sér skötu, Gleðilega Skötuhátíð því þetta er veisla sem vert er að halda á lofti svo ilmurinn hverfi aldrei úr vitum okkar.
Spánn hefur ekki þennan Þorláksmessusið enda er hún ekki haldin neitt spes frekar en aðrir dagar.  Á morgun þá er Jólaspinningið, mæting með jólasveinahúfur, það verður virkilega gaman að kíkja og taka vel á því.  Dóttlan segir að í pr. spinning tíma brennum við um 1000 kcal.  Það er örugglega ekki fjarri lagi því þetta er þvílíkur rassa og læratálgari, jebb, svínvirkar!
Á morgun höldum við í mat til tengdó sem er bara gott og gaman.  Á hlaðborði frúarinnar verður allskyns sjávarmeti, rækjur, krabbi, þurrkuð hrogn og annað þurrkað fiskmeti.  Allskona hnetur og gúmmelaði og "Consomé"  soð með kjötbollu út í.  Þetta er bara æðislegur jólamatur og er mig farið að hlakka til að vera í faðmi tengdafjölskyldunnar.  Gítararnir verða teknir með og jólalögin verða sungin um kvöldið.
Að morgni 25 þá vöknum við og jólagjöfin frá jólasveininum verður tekin upp og lesið á pakka frá Íslandi.
Lífið er ljúft, líka á jólum.
Guð gefi þér og þínum Gleðileg jól.
Og Geðveik Jól
... fyrir okkur hin ...
...  kanski ekki alveg í dag en sólin skín í hjartanu þrátt fyrir 7° hita, rigningu og vind.  Get ekki kallað þetta rok með góðu móti en það er nú bara íslendingurinn í mér.  Fékk t.d. ekki hlustaverk þannig að við skulum bara kalla þetta létta golu.
Veðrið á Spáni er með ýmsu móti í dag t.d. er verulega snjóþungt í miðju landinu og mega stórir vel útbúnir bílar aka um götur en ekki hinir ílla búnu.  Á N-Spáni er einnig snjókoma og ýmsir komust ekki til vinnu né skóla.  Svona er þetta bara, landinn er ekki viðbúinn kuldanum ...
Þegar ég horfi í ljósopið mitt þar sem blómálfarnir ráða ríkjum sé ég blómin mín alsæl með feita vatnsdropana á blöðum sínum er sáldra súrefni í fallegustu litun ljóstillífunarinnar.  Nú er fjör í blómaheimum.  Spurning að álfast með gömlu hjúunum sem búa í Hawayrósinni er springur svo fallega út rauðum blöðum.
Á meðan dóttlan tekur þátt í jólakortakeppni bæjarins og ljóðakeppni framhaldsskólans fékk ég Barböru Birgis í lið með mér og með hennar aðstoð þá litu dagsins ljós ansi skemmtilegar eftirprentanir af málverkum Zordísar.
Fyrstu 3 verkin eru tilbúin og tilraunir með önnur verk í bígerð.  Hægt er að fá þessar myndir með eða án ramma og litirnir eru hvítur, svartur eða silfur.
Og dæmi svo hver fyrir sig ....
Sjómannsást, eftirprentun blönduð tækni, stærð 12 x 12 / rammi 23 x 23 ....
Að elska, eftirprentun blönduð tækni, stærð 12 x 12 / rammi 23 x 23
Hjartans krunk, eftirprentun blönduð tækni, stærð 12 x 12 / rammi 23 x 23
Sýnishornin sem ég er mjög svo ánægð með enda er Barbara frábær ljósmyndari sem ég mæli hiklaust með.  Kíkið endilega á heimasíðuna hjá Barböru www.skugginn.is en þar má sjá fallegar fjölskyldumyndatökur, bara eins og þær gerast bestar.  Hvorki minna né meira eða var það meira né minna ......  thi hi hi
Það er hressandi að fá regnið svo jarðvegurinn tralli með okkur, appelsínuakrarnir dilluðu sér af gleði þegar ég keyrði til Los Montesinos í morgun.  Tilefnið var að sjálfsögðu kroppatamning.  Ótrúlegt hvernig venjan hefur breyst og það sem áður var kvöl og pína er nú orðin gleði og lífsins glaumur.
Lífið gerist varla betra, þrátt fyrir kalda fingur og kaldar tær ....
... Mamman stóð í stofunni og var að velja jóladisk og boltahljóðin ómuðu úr eldhúsinu.  Svo gerðist eitthvað og drengurinn segir; þetta var ALVEG óvart mamma ....
Ég setti Bo Hall á fóninn og sá að kaffibollinn minn var á hvolfi og slettur á víð og dreif.  Ég dreif mig og þurrkaði fyrst af fartölvunni og borðinu.  Merkilegt hvað hálfur kaffibolli út um allt er drjúgur thi hi hi.
Nú er drengurinn farin til messu með föður sínum en móðirin situr á flónelnáttfötum og hyggur á blómaferð í sveitina.  Mágkona mín og svili eiga afmæli í dag og ef blómin gleðja ekki þá er hart í ári hjá smáfuglunum.
Faðmlag, Olía á Striga
Í loftinu hangir ógurlegur angan af kaffi og terpentínu ....  Lét það eftir mér að þrífa fairylagða pennslana og nuddaði þeim uppúr terpentínu.  Það er alltaf stemming að finna þessa lykt sem veit á svo margt ljúft í minningunni.
Jólin eru enn í kössum á okkar heimili og það er í mínum hlutverkahring að taka af skarið og skreyta heimilið.  Dóttlan er lazarus, búin að vera slöpp og er í prófum og drengurinn getur varla beðið e.að skóla ljúki.  Hann spurði mig hvaða dagsetning væri og ég sagði honum 13ándi, þá heyrðist langt OOOOO hljóð "af hverju getur ekki verið 22 desember núna"  hehehehe, já skólanum lýkur þann draumadag númer 22.
Ég fór í geðveikan Master Class á laugardaginn með einum hörðustu spinningkennurum og það var tekið á því í 80 mínútur og svo var slakað á og teygt á = 90 mín dásamlegt puð.  Sturtan var yndi og svo var boðið uppá kokteil, spjall og skemmtilegheit.  Nú er bara næsta skref að skella sér til Alicante og taka þjálfaprófið og fjárfesta í nokkrum hjólum og gera heimaæfingar.
Já, nú nálgast jólin eins og óð fluga með jólasveinahúfu.  Verða þau okkur gleðileg eða verða þau geðveik eins og myndin hér til hliðar gefur til kynna.
Það er mikilvægt að leyfa ekki stressinu að bora sér inn heldur taka bara einn dag í einu og láta það eftir okkur að staldra við og þakka fyrir það sem við höfum.  Það koma jól eftir þessi og önnur og önnur.
13ándi desember kom eins og kallaður, veðurbliðan er dásamleg og fjölskyldan á leið til ömmumús í Campo.
Það er kanski lag að fara úr náttfötunum og drífa sig í smá sunnudagsbíltur og redda blómunum ......
Lífið er svo sannarlega gott, betra, best ..............
.... Og morgunhanninn!
Ekki besta blandan að vera næturhrafn og morgunhani í sömu andránni.
Svefninn er mikilvægasta innihaldið ásamt kærleikanum, þakklætinu og fyrirgefningunni, það hefði ég nú haldið.  En ein og ein svefnlítil nótt er svo sem ekkert til að kvarta yfir.
Ég gæti t.d. verið duglegust og föndrað, málað eða skúrað, vá hvað ég er konfjúsd þannig að ég sit sem fastast við tölvuna.  Kaffivélin mín neitar að framleiða töfravökvann en það er í fínu lagi þar sem ég fékk mér kaffi í gær.  Í gær var hátíðar dagur á Spáni, dagur hinna heilögu, Inmaculada, Asunción og Purisima.
Það styttist í jólin og öll þau dásamlegu herlegheit er þeim fylgja.  Jólalögin, skreytingar og ljósin fallegu sem gefa birtu og yl í skammdeginu.
Ég er eitthvað svo tóm og styð lengri svefn en í tilefni vökunnar þá óska ég ykkur bara gleðilegra jóla.
Gleðileg eða Geðveik Jól
Lífið er gott með hröfnum og hönum.