10.12.2008 | 14:09
Pósturinn Páll ...
... Og kötturinn Njáll!
Ég fór á pósthúsið að senda eitt stk. þakflís sem var pöntuð og viti menn, flutningskostnaðurinn er komin í 30 ... pakkinn var nánast 3 kg með öllu bóluplastinu og herlegheitunum. Það hækkar allt nema launin hjá fólki!

Set hér inn eina þakflís sem heitir Elskhugar II. Það er vissulega gott að eiga næga ást til að sækja í vasana þegar að túskildingurinn er sparaður.
Ég hef bjartsýni í huganum og læt brosin nægja sem ég mæti. Ég hitti sígauna áðan sem man alltaf nafnið mitt. Ég mæli hiklaust með að fólk versli við hann og eiginkonuna (Hrönn ... ég er að leita vúman) fyndið samt hvað það er gaman að prúttast og fara svo sátt, allir ánægðir "ég" veit að ég borgaði ekki spes verð en ég gladdist yfir sigurham vinar míns.
Ég fæ reyndar alltaf ágætis verð og ég kláraði í einni svipan að versla jólagjafirnar sem mig vantaði. (seldi ekki kynlífsleiktæki, promissss) .....
Bóndinn minn var að færa mér rjúkandi sopann og hver annar en Palli sér um að koma kjéddlingunni í geðveikt stuð. Lagið Negro Jose færir mjúkum afturendanum eigið sjálfstætt líf. "What a rythm"
Nú fer ég brátt út í búð (eftir siestuna) og kaupi mér límstauta í límbyssuna mína. Sé að piparkökuhúsið þarf rækilegar stoðir til að lifa af flutninga um lendur San Miguel bæjar.
Engar fréttir eru góðar fréttir sagði konan og lagði sig með draumstautana ....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
10.12.2008 | 09:21
Smá tiltekt og kona í föt ...
... gengur ekki að vera eins og jarðaBER í lopapeysu. Eða krækiBER eða bara NAKIN ....
Er búin að hvetja manninn minn í tiltekt í eldhúsinu, þarf svo lítið til :-) Ég er með Bo Hall á geislanum, það sem kappinn getur raulað út í eitt. Jólalögin hægri, vinstri, tja tja tja.
Í kvöld skrifa ég öll jólakortin sem eiga að fara og vonandi að ég muni eftir öllum sem eru á listanum í ár. Jólakortin komu fínt út, reyndar varð ein tegundin með jólaógleði og fór aftur í prentun sem þýðir bara það að ég næ ekki að senda það. Prentarinn neitaði að gefa mér afslátt og ætlar að prenta aftur, þegar ég hugsa um það þá er hann bara dóni.
Ég fór gjörsamlega á limingunum við piparkökuhúsagerðina og á enn eftir að lima helminginn af þakinu á! Já, þetta verður skrautlegasta hús, vægast sagt! Sýni ykkur það um helgina ef það verður klárað!
Konuræflinum er íllt í bakinu, allt hefur sitt upphaf og endi ... sennilega er það geðveiku rúmflakki og óstöðugum svefni um að kenna er veldur þessum eymslum. Ungherrann kallaði á mömmu sína og ég get ekki annað en lagst aðeins hjá honum. Eftir nokkra stund kyssi ég hann á ennið og fór í mína holu, þá heyri ég kossa sem voru gefnir út í loftið. Gott að grípa þá og grafa í hjartastað. Í morgun skreið ég uppí (gjörsamlega á gólfinu) til dóttlunnar og strauk henni um vangann og kúrði í henni þar til hún þurfti að búa sig undir skólann. Þessi elska vaknar eldsnemma þar sem að skólinn hennar byrjar klukkustund fyrr en sonarins.
Vinnudagur okkar hefst í raun ekki fyrr en um 10 leytið þannig að við erum XB manneskjur, ALLA LEIÐ!
Njótið dagsins ....
(best ég fari í föt fyrst það er kominn dagur)
8.12.2008 | 18:57
Próf í fyrramálið ...
... mál um morgundag!
Sonur minn bauð vinum sínum í kvikmyndahúsið að sjá Madagaskar II, pabbi fór með sem driver og við mæðgur sátum eftir heima enda er piparkökuhúsastemming hjá okkur stelpunum.
Fyrsta tilraun mistóskt hjá mér en það var eiginleg prufa sem dóttir mín tók uppá sína arma. Ég fór í IKEA um daginn og keypti 2 stk. tilbúin hús fyrir krakkana. Og þau ætluðu að setja saman sitthvort húsið en svo fór að sonurinn varð fyrri til og allt fór eins og fór ....
Nú er húsið mitt komið út úr ofninum, mótin voru engin heldur skar ég út 4 hliðar og þak, gerði jólatré og stjörnur sem ég ætla að gera tilraun með að verði í anda jóla. Útkoman, verður svo annað mál!
Best að líta yfir námsefnið og huga að prófdeginum sem er klukkan 09.00 að íslenskum tíma.
Bestu kveðjur úr piparköku ilminum ... gæti jafnvel hnerrað!
8.12.2008 | 13:06
Þegar piparkökur bakast ...
... kökugerðarmaður bla bla ....
Konan er að fara á límingum í því að líma saman líkan af piparkökuhúsi.Sonurinn sagði við mig rétt í þessu; mamma er þér ekki sama þótt ég fari og leiki mér? Það var hann sem vildi ólmur gera húsið og ég gaf eftir.
Við sváfum út eins og sveskjur og ég vaknaði allt önnur!Ég þekkti mig ekki í speglinum (af því ég var önnur) var með ógurlega martröð í nótt (hugsanlega frapinið að lækna hálsstöðina) .... mín var á leið til Bandaríkjanna og það var búið að stela ferðatöskunni minni, farmiðanum og peningunum ..... Ég var svo lost að það hálfa væri nóg, talaði tungum í draumnum en vaknaði heil á húfi með litlar tær og lita fingur í hálsakotinu.
Ég er langt komin með piparkökuhúsið og get nú bara svarið það að það að líma er ekki neitt svo einfalt, bíða eftir að límið þorni og að húsið sé hornrétt ..... Kanski er flórsykurinn of þunnur hjá mér (sennilegast) ....
Það er mildur dagur, ég hef opið út og birtan leikur sér niður ljósopið. Það er að skella í hádegi og eitthvað verður familían að narta því annars fara litlir herramenn að kvarta.
Set inn mynd seinna af konunni sem fór á límingum!
Aðventukveðjur til ykkar allra.
7.12.2008 | 21:18
Hvítar rósir og eiturgræn epli ...
... Fermentación a tope y que te puedo decir ......Sunnudagur sælunnar hófst með kirkjuför feðganna. Sú gamla sat á náttfötunum eftir að drengurinn var orðinn kirkjufær og sötraði kaffi. Ég hafði vaknað eldsnemma, tja svona miðað við að það var sunnudagsmorgun.
Ég fann fyrir eymsli í hálsinum og fékk mér C vitamín geripsafa og læddi mér uppí rúmm sonarins þar sem að hann var steinsofandi í mömmu holu. Ég dormaði áfram og dreymdi þýðingarmikinn draum. Draumur sem mun rætast um jól!
Mig dreymdi Rýrý mína, styrka og heilbrigða, ég dáðist að hvað hún var dugleg! Rýrý mín, ég sendi þér fingurkoss til himna!!!!
Dóttlan fór með ömmu og afa, sonurinn fékk vin í heimsókn og við hjónakornin rifjuðum upp bræðandi bros og spjölluðum um ..... "leyndó" ...
Já, mig langar svo að smakka Codornio Ultra sem er fyllt af eplakeim og hvítum rósum ....
Ooooog, ég er búin að gorgla hálsinn á mér uppúr Frapin koníaki því það er töfralækning ef nýtt á hárréttum tíma.
Ævintýraheimur - Ástfangin, akrýl á striga
Kanski að ástin lækni öll sár, skýli sárum hálsi og leggi ljúfan arm sinn yfir konu.
Þegar nóttin læðir sér inn fara draumar konu í skrautlegan búning. Lífið tekur nýjan lit!
5.12.2008 | 17:14
Stelpudagur og getraun ...
... heilmikið spjall, hlátur og skemmtilegheit!
Það er nauðsynlegt að eiga svona stelpudaga, tala nú ekki um þegar við nálgumst þennann miðjualdur.
Við fengum okkur 10 dropa og svo var það .....Shop till you drop !!!
í mína innkaupakörfu datt m.a;
10 stk Alkaline rafhlöður
2 myndarammar (jólagjafabrall)
60 jólakúlu silkiborðar
2 jólastjörnur í glugga barnanna
Vodka með jarðaberjabragði (skrítin búð)
Steiktur laukur
Kerti
Oooog ýmislegt meira sem óþarfi er að telja upp .... set það kanski inn í kommentakerfið seinna!
Börnin mín ætla að skreyta jólatréð á morgun þar sem að það er spænski siðurinn. Ég ólst við spenninginn að vakna á aðfangadag og næla mér í síðasta gottið sem kom í skóinn og læða mér inní stofu að horfa á dásamlega, himneska fegurð sem jólatréð fullskreytt sýndi barns-auganu.
Snillingurinn ég valdi svo fínan pappír að jólakortin koma ekki úr prentun fyrr en næstkomandi þriðjudag! Ég skrifa sem sagt engin jólakort um helgina en einbeiti mér bara að því þegar að ég fæ þau í hendur!
Ég er spennt að sjá hvernig liturinn kemur út en í þetta skiptið fór ég með frumstykkin og skildi eftir í prentsmiðjunni þar sem að skönnun ber aldrei góðan þokka og liturinn getur komið misvel út!
Getraunin ... bara svona í góðu gríni, í hvaða verslun fór ég?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
4.12.2008 | 17:27
Glimmer og glansmynd jólanna ...
Nú fara Spánverjar að hella sér gjörsamlega í jólahátíðina og nú um helgina mun fólk gleyma sér í jólaskreytingum og setja jólatrén í skrautbúningi á verandirnar hjá sér. Jólatrén eru af flestum utandyra þar sem að hitaskil eru frá 14 til 20° .... Það getur hins vegar brugðist og kuldinn læðir sér niður í 5° brrrrr og tannaglamur!
Þann 6. desember halda Spánverjar hátíðlegan í tilefni þess að stjórnarskráon var undirrituð þann sama dag árið 1978. Einvaldið var að baki og við tók hið svokallaða lýðræði sem við Íslendingar fögnuðum 1. desember til 90 ára.
Jólahald er að mörgu leyti frábrugðið því sem við Íslendingar eigum að venjast en engu að síður yndisleg upplifun. Ég man þegar ég fagnaði fyrstu jólastundinni með tengdaforeldrum mínum og unnustanum spænska. Hann var yfir sig rólegur í vinnugallanum sínum (smekklegur að vanda drengurinn) og við mæðgur vorum að punnta okkur fyrir eftirmiðdaginn. Dóttlan fékk kóngabláan fínflauel kjól og slaufu í gyllta lokkana sína. Mamman fór í skósíðan kjól og jakka úr hör með hárið í hnút. Þokkalega sætar og fínar fórum við svo að "herragarði" tengdó þar sem að mágkona mín og hennar dætur voru á jogging göllum, tengdamamma með hversdagssvuntuna og tengdapabbi að slá grasblettinn með grasgrænu á hnjánum.
Jólin komi við klukknahljóm og allir voru í sínu stresslausa umhverfi að gera sína hluti, innifyrir var búið að handera sjávarréttarhlaðborð; rækjur og skeljar, þurrkaður saltfiskur og þurrkuð hrogn, krabbaklær og hnetur og svo mætti lengi telja að ógleymdu soði sem er jafnan á aðfangadagskvöld. Við mæðgurnar vorum ofsalega fínar og sætar en eitthvað fannst mér óþægilegt að vera svona öðruvísi. Ég hef haldið í siðinn okkar og tengdafjölskyldan heldur sinni, kanski ég hafi slakað aðeins á ef eitthvað er.
Ég gæti endalaust fjallað um jólin og það sem við gerum. Til dæmis, spilum við á gítar og syngjum okkur hás áður en að miðnæturmessan hefst. Við tökum upp gjafir frá jólasveininum að morgni 25 des þar sem að það er hefin hérna megin hafsins og allir sáttir með það.
Þegar hér er komið við sögu þá eru jólin rétt hálfnuð því að spænsku jólin byrja að kvöld 5.janúar! Já, tvöföld gleði hjá elskulegum börnunum, tala nú ekki um gleðina mína að vera áhorfandi minna.
Kanski full snemmt að segja Gleðileg Jól en hæfir færslunni.
3.12.2008 | 22:48
Andans vaka ....
... Þegar andinn tekur völdin og hleypir ekki kroppnum í hvíld.
- Kanski eru það 10 rjúkandi droparnir sem ég fékk mér?
- Kanski eru það nýju þægilegu skórnir sem vilja sýna sig?
- Kanski er það tilhlökkun fyrir nýjum degi?
- Kanski ...... Hver veit?
Ekki gott að segja hvað þessi andans sál mín tekur uppá, á hvoru hvelinu er hún, ég við og umhverfið.
Að drekka vatn úr rauðu glasi getur verið jafn ljóðríkt og að drekka rautt úr glæru glasi. Væri samt alveg til í góðan félagsskap og sjá ljóðlínur mynda fallegar línur sem falla af mjúkum vörum.
Nóttin kom snemma með myrka slæðu og vafði henni um mig. Óvarin og alsæl fann ég lopapeysuna mína en finn ekki svefninn minn. Síðustu kaffidroparnir eru komnir í mjúkan mallakútinn og nýju skórnir kitla iljarnar sem finna fyrir kulda nætur. Morgundagurinn verður komin innan tíðar og okkar bíður tími hjá barnalækni bæjarins með heimasætuna og ungherrann ....
.... Vaka andans tekur enda og læðir sér í draumlöndin kær! Góða nótt .......
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.12.2008 | 20:08
Kaldir puttar ....
Allt sem fer upp, kemur niður (eventually) neeeema "það" kanski fari bara hringinn í kring um jörðina.
Bráðum koma jólin, mjög s p e n n a n d i. Kemst kerlíng í kjólinn, um margt er hægt að spá (spil og bolla) og ég viðurkenni að það er d e p r i m e r a n d i (það að komast ekki í kjólinn). Bænahald og friður þinn, ástsæli kæri bróðir minn er bara h v e t j a n d i. Jólin eru þessi tími sem við viljum gera fallega hluti, þegar óskir rætast og þegar orkan í heiminum margfaldast!
Á J Ó L U N U M erum við jákvæðari og með bjartari von til allra sem við umgöngumst, við sendum fallegar hugsanir til þeirra sem minna mega sín. Jólin eru bara yndisleg!
Þrátt fyrir fagrar hugsanir og gerðir þá eru margir sem eiga um sárt að binda og sennilega bætast margir í þann hóp að geta ekki staðist samfélagslegar þarfir sem hafa skapast síðastliðin ár (og áratug) hjá þjóðinni. Miklar breytingar og kröfur hafa gert mannfólkið að neysluverum fremur en þeim einstaklingum sem létu grunnþarfir sínum nægju. Lífið fer í hraðari hringi og nú svimar sennilega mörgum sem hafa haldið jafnvægi í hringiðunni. L í f s g æ ð a k a p p h l a u p i ð .....
Grunnar hugsanir hjá kjéddlingunni en það þarf svo sem ekki að grafa djúpt. Ástandið bitnar verst á þeim sem minna mega sín en það veit sá sem allt veit að ég óska þess af hreinu hjarta að við getum öll verið uppreist og sæl á þeim tímamótum sem börnum okkar hlakkar til af óþreyju.
Með Guð í hjartanu getur ekkert farið úrskeiðið.
Ég á einn algóðan vin, sem ég eignaðist fyrir ca. 5 árum. það skilja 40 ár að hjá okkur en það er eins og við séum ein sál með 2 hjörtu. Hann færir börnunum mínum alltaf kerti og spil. Fallegur siður sem segir allt sem segja þarf.
Hver kvartar svosem yfir köldum puttum?
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.12.2008 | 12:59
Ljúfir tónar og lystisemdin eina ...
... í geislanum hljóma tónar Bergþóru Árnadóttur, frábær "asta" þjóðlagakona Íslands. Ekkert betra en ljúfir tónar þegar glímt er við listina að lifa. Ég er búin að undirbúa mig fyrir munnlegt próf sem fer að skella á!
Stundum hugsa ég um Indjánana sem þróast áfram í sál sinni og stækka líf úr lífi. Líka hugsa ég um þá sem ná ekki að þroskast áfram, Indjánarnir tala um baunina sem minnkar eða stækkar! Ekki flókin staðhæfing, heldur einföld og auðskiljanleg.
Það er frekar kalt hjá mér og ég gleymdi að setja nokkurn hita á húsið, held samt mínu prinsipp máli og geng um berfætt eins og þegar ég kom fyrst í heiminn. Lopaflísin frá 66°Norður heldur mér hlýrri að mestu marki.
Ég stend á tímamótum í lífinu þar sem einum kafla er að ljúka og nýr tekur við. Ég finn að ég þarf að skipuleggja mig og vera staðföst á reglunni svo mér líði vel. Mér kitlar í lófann minn, ég veit að það boðar gott ... svo dreymdi mig litla feita pattaralega mús sem boðar happ ... "þetta var ekki dvergrotta, sko" það er munur á músum og rottum í draumi, trúið mér elskurnar!
Jæja, nú fer prófið að skella á hjá kjéddlingunni og ég segi bara "hæ litli" .....