5.11.2008 | 08:29
Til hamingju ...
... Ég er hrærð yfir úrslitum kosninganna í Bandaríkjunum. Megi algóður Guð gefa Obama réttsýni og mátt til að leiða mikilvæga þjóð. Heimurinn þarfnast góðverka í smáu sem stóru.
Já, það má segja að kona sé "shaken" sem minnir mig á einhvern leikara sem vildi Martiny Dry ....
Fallegur morgundagur, dagur nýrra tækifæra. Morgunsopinn var góður og hér situr kona og fylgist með umræðum og fögnuði sigurs Obama.
Í hverju andartaki hvílir tækifæri, hvílir kraftaverk! Nýtum okkur tímann og grípum tækifærin, í dag er dagurinn okkar.
4.11.2008 | 23:18
Týndur sími og rispaður bíll ...
... Já, týndur sími, ekki gott en samt ljúft! Ég tapaði símanum á sunnudagseftirmiðdegi og fattaði það ekki fyrr en seint í gærkvöldi að ég var eins og Palli litli sem var einn í heiminum.
Í dag átti ég að maeta á fund og sendi manninn minn að leita að símanum mínum á sítrónulendu hér í grennd! (já það er dýrt að laumast með nokkrar súrar sítrónur í skjóli hugans) ... Hvað haldiði .... ég rak heilan vegg í aðra hliðina á bílnum og varð súr eins og sítrónan sem ég tók í leyfisleysi á sunnudeginum.
Hefði betur raspað bílinn eins og væna kótilettu en svona refsar himnaherrann fyrir fávisku mannanna. Svooo í kvöld er ég búin að vera með hugann ofaní kápuvasanum og viti menn .... Síminn minn er búinn að vera þar í krampakasti hlæjandi að mér og er svo sætur og rauður og allt, ótrúlegt!
Gott að síminn er kominn í leitirnar og ég komin með nýtt sim kort og búin að ganga nokkra hektara í leit að elskunni litlu sem þagði heilu hljóði þegar ég hringdi og hringdi í mig í dag.
Smá rós í hnappagatið
Lífið er gott, yndislega breytilegt í því góða og því miður góða. Lítil skref í rétta átt gera allt svo miklu betra og ég segi bara er á meðan er! Svoooo setjum við bara smá plástur á kaggann .....
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.11.2008 | 14:43
Þögnin getur verið hávær.
Í hljóði ég hlusta á þig og finn fyrir nærveru þinni. Þú ert samt farin, farin svo langt í ferðalagið eina.
Elskuleg vinkona mín kvaddi og hélt för sinni áfram í annan heim. Lífið er vissulega grimmt en samt svo ljúft. Ég held að við séum aldrei tilbúin að kveðja en í huggun ég sefa sjálfið með því að vita að nú líður þér betur, nú ert frjáls eins og fuglinn.
Gulu rósirnar mínar blómstra svo fallega núna og svei mér ef þær brosa bara ekki sínu breiðasta. Ég fór og spásseraði bæjinn minn þverann og endilangann á háum hælum. Já, svona var mín vitur, aðeins aum í einni tánni og næst skóa ég mig betur upp.
Ég fór og gekk um hellna hverfið og stóð á þakinu á veitingastað sem var líka verönd annars húss. Já, næst tek ég myndavélina með og smelli nokkrum góðum á ferð minni. Fór á pósthúsið og sendi krúttlega loðfóðraða skó í póst og eitt stk brjóstarhaldara. Gekk svo framhjá kirkjunni og blessaði mig í bak og fyrir. Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum.
Svo krúttuð litlu álfahjónin ....
1.11.2008 | 10:24
Með stjörnublik í auga ...
... Og Megas syngur fyrir mig fallegar vísur.
Ég var svo dugleg í gær að ætla að blogga og byrjaði á færslu og innsetningu á myndum .... í millitíðinni ætlaði ég að leggja ungkarlinn á heimilinu, Enrique 8 ára og ég ranka ekki við mér fyrr en klukkan hálfþrjú og elskulegt Fjallið búinn að slökkva á tölvunni og færslan er ráfandi um alheimshvolfið án festunnar góðu.
Ég er búin að vera að föndra undanfarið og líður eins og í gamla daga þegar ég var 10 árum yngri og bjó í lítilli blokkaríbúð nokkuð vinafleiri en í dag. Flutningur til fjarlægra landa hefur oft þau áhrif að vinskapur verður með öðrum hætti. Í dag bý ég í stórri blokkaríbúð og á þessum 10 árum hef ég kynnst mætu fólki og yndislegum fjölskyldum. Í þessu fólki hef ég eignast dásamlega vini sem hafa horfið á ný til ættjarðarinnar. C´est la vie!
auminginn litli hún ég, vinalaus og allslaus
Yfirlýst og hálfmonsterleg en myndin var tekin í gaer á degi hrekkjavökunnar.
Komin á vegg svo kjérling geti virt og borið virðingu fyrir myndefninu. Það er engin launung að Krummi karlinn er í mestu uppáhaldi hjá mér, var og er! Ekki það að ég er að kisulyngast með afturgengna kattarsál.
Vona að þið hafið haft gaman af þessu myndabrölti mínu en nú bíða 7 saetar laeður með 7 fjólubláar slaeður eftir fyllingu litanna.
Ég aetla að skella mér í morgungönguna þrátt fyrir að það sé eiginlega komið hádegi í Paradís.
29.10.2008 | 22:59
Crazy kitty love ...
... mjáááuuu!
Kitty Love, blanda akrýl á striga 15 x 15
Kósý Cat, blanda akrýl á striga 15 x 15
Sit og mála litlar kisumyndir og er bara í stuði eins langt og það naer!
Góða nótt elskurnar.
Menning og listir | Breytt 30.10.2008 kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
29.10.2008 | 09:53
Að skyrpa í lófana ....
Hrollur í kroppnum þennan morguninn. Það blæs köldu á spánlendinga og víða hefur snjóað í norðri lands. Aldrei að vita nema ég setji bara jólalögin á því þessi óvænti snjór kemur heldur snemma í ár.
Útivið er markaðurinn á fullu og kona vaknaði við sígaunasöngl og kliður við uppsetningu á básum. Fyrir neðan svefnherbergisgluggan minn er ávaxtastandur, spurning um að kasta fléttunni niður og kanna hvort einhver klifri upp
Í gær fór ég erinda og heimtaði Breddan að fljóta með. Mærin ferðabjó sig og setti á sig glimmeraugnskýlu, ekki beint gleraugu en hún ætlaði að ganga í augun á fljúgandi hröfnum og öðrum virðulegum mönnum.
Sjá bjútíkvínið, hallar sér að tré og horfir með aðdáun á sveiflu eldri borgara í golfi. Ég bíd ekki í það þegar hún tekur uppá því að skella sér á ströndina. Allavega, hún er byrjuð að mála (viss um að hún biðji um birtingu þegar listaverkið verður klárt) ..... svo bað hún Guð um kisuling þegar við fórum með baenirnar í gaerkvöldi.
Reffileg að faera sig uppá skaft!
Vildi að ég vissi hvaða spenna ólgar í mér, þykist viss um að þetta er eitthvað gott og óþarfi að spá eitthvað meira í það. Ég þarf að taka myndir af nýjustu þakflísunum sem eiga að fara á www.zordis.com en ég er að láta útbúa sér flipa fyrir flísarnar og svo uppfaerist síðan 1x í mánuði ef konan skyrpir í lófana og sýnir dugnað.
Ég aetla að fara í göngutúr og freista gaefunnar, en þú ......
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.10.2008 | 08:33
28 Octubre, un día maravilloso ...
Sonur minn kom og kúrði í hálsakotið og sagð mér stórfréttir; það á nefnilega að snjóa í fjöllin og nú er lítill hugur að planleggja ferðir á fjöll. Hitastig hefur lækkað og svo um munar!
Veðrið er hins vegar dásamlegt og ég ætla að koma mér í eldgamlan íþróttagalla og fara í kraftgöngu og þenja lungun. Síðastliðinn sunnudag tók ég uppá því að fara í hjólreiðartúr með börnunum mínum og við tókum ca 5 eða 6 eða 7 km spotta og er rassinn á mér greinilega á sínum stað og ég held svei mér þá að hnakkurinn sé þarna líka.
Fór í ljósmyndun í gaer og útkoman er m.a. þessi hér .... ég er að uppdeita heimasíðuna mína www.zordis.com loksins eftir árs vanraekslu. Ég komst að því að ég á því miður ekki myndir af myndum í nógu góðri upplausn frá sýningum í sumar.
Fjallið tók þessa mynd
Skrítið hvernig tíminn líður áfram og mér finnst ég vera vakna upp af djúpum svefni. Nú fer tímabili að ljúka hjá mér og nýtt að taka við. Ég trúi því að allt kemur á réttum tíma þrátt fyrir að við teljum okkur ekki tilbúin. Við erum alltaf tilbúin fyrir það nýja, já ég held það bara.
Lífið býr yfir roða hversdagsins og fyrsti kaffisopinn er bara góður.
Gróu sögur akrýl á striga 60 x 80
Engin Gróa hér heldur sit ég ein á náttkjólnum, berfaett og hlusta á morgunfréttir. Íþróttagallanum verður sennilega brugðið þegar kjéddlingin tekur á því.
Twillý mín er 50 í dag og ég óska henni til lukku með daginn.
24.10.2008 | 11:05
Ég var ekkert sérstaklega að hugsa um skaphár ...
Oooojjjjj Mamma ... ???
Hvað ertu að gera? Mamma var að teikna elskan; ég brosti. Sonur minn fór að hlæja og skellihló. Honum fannst tippið hrikalega fyndið en pjóluhárin voru sko Oooojjjjj.
Skaphár geta verið skemmtileg og loðnir menn eru bara nokkuð skæs. Það má t.d. liggja uppí rúmmi og krullast á kroppnum hans .... bifhár sem halda líkamanum svölum og næra húðinni þeirri öndun sem hún þarf.
Sonur minn fann hjá sér eitt örlítið dekkra hár nærliggjandi pung og sagði við mig fullur lotningar; mamma manstu þegar þú fékkst pjóluhár?? Hvernig leið þér?? Augun á mér duttu niður á golf og ég ætlaði að tryllast í hlátri en svaraði mjög kúl að ég hefði bara verið glöð .... Hvað annað?
Föstudagurinn er rétt að byrja og smá tilraunastarfsemi mun gersat ef ég næ mér í heftibyssu og sitthvað annað sem þarf.
Góða og dásamlega óða helgi
22.10.2008 | 15:38
Breddan bregður sér í þjóðbúning ...
... ég ræð ekkert við hana þessa elsku.
Hún sagði, hvar er myndavélin þín Zordis
Ég sagði, Ha ... myndavélin?
Svona spjölluðum við heillengi saman og játaði Breddan að hafa farið inn á Facebookið mitt og smellti sér á funspeicið og las skilaboð frá Sigþrúði, skrifaði nafnið sitt á undirskriftarlista og smellti sér í hlutverk fánabera.
Breddan fann rembuna og mótmælir.
Hún stód í ljósopinu og sýndi sinn rétta lit.
Þið sem viljið fara á þessa síðu og skrifa nafnið ykkar á listann eins og Breddan gerði víst kíkið þá á þessa slóð, www.indefence.is ....
Ég verð að þjóta til tönnslunnar minnar í munnskol og skoðun. Síjú leiter gæs!
19.10.2008 | 10:16
Hún strauk í ljósop lífsins ...
... fékk nóg af liggjunni og ákvað að vitja lífsins.
Breddan er agnarsmá kona, full af gleði og lífsþrá. Hún kom til mín í nótt og sagðist vanta lit í kinnarnar og agnarsmá augu til að líta gleðina sem lífið hefur að bjóða.
Hún læddist á sínum tryggu fótum í átt að næturstað frúarinnar og hvíslaði i undirmeðvitund hennar. Pískur og draumaískur fóru um konuna sem svaf værðarsvefni.
Þegar ég vaknaði íhugaði ég um gæði og æðibunur lífsins og tók Bredduna tali. Hún hafði mælt af viti og fær von bráðar agnarsmá augu til að sjá lífið í nýju ljósi. Hún vill verða gæslukona og fær að gæta litlu blómálfanna og dverganna sem búa í ljósopi blómanna.
Hún sagði við mig; Ég er alsæl í sinni, það gladdi mig.
Litla ljósopið þarfnast Breddu til að sinna hlutverki boðberans. Það verður eflaust blómlegra lífið þegar Breddan fær lit í kinnar og agnarsmá augu til að gleðjast. Í litlu þakklæti kyssti hún mig á kinnina og sagði, Njóttu dagsins mín kæra, þú og allir þínir bloggvinir!