Færsluflokkur: Menning og listir
22.12.2008 | 16:17
Flóran sem umvefur litla hjartað ....
.... litir og ljúf tenging við sálina.
Ég hef verið að hugsa um liti undanfarið og á mér minn uppáhaldslit. Grænn litur er mér sérstaklega kær en fallega rauðan lit hef ég einnig dálæti á. Hins vegar vel ég jafnan svartan klæðnað á kroppinn og nota þá litina sem fylgihluti. Svo sem veski, skó og hlýjar peysur. Stundum fer ég í wild sokka (sjaldan þar sem ég vil helst vera berfætt) ..... Berfætt er málið!
Jólin eru á næsta leyti og við skreyttum trén okkar í gær sem er bara gaman! Það er alltaf mikil tylla að sjá tréð þar sem það stendur skreytt í stofunni. Pakkarnir eru komnir að mestu undir tréð en svo á jólasveinninn eftir að koma við að morgni 25 desember og það er aldrei að vita hvað kallinn kemur með.
Dóttlan fer í 2xdanstíma á eftir og ég geri ráð fyrir að njóta hlýjunnar hér heima fyrir og klára skjalavinnu sem laumaði sér til mín ....
Jólarósin stendur sperrt fyrir utan eldhúsgluggann minn, algjört augnayndi! Litaflóra blómanna lyftir mér uppá annað svið og laufblöðin hristast af hamingju þegar litlu blómálfarnir ferðast blóma á milli.
Jukkan mín blómstrar enn eina ferðina og ilmurinn er hreint dásamlegur. Ég ráðfærði mig við garðyrkjumann og sagði honum að dúllan væri sífellt að blómstra ??? Hann sagði það mjög óvenjulegt en líklega væri hún orðin gömul og væri að sýna sínar fallegustu hliðar. Ég hefði kanski átt að spyrja um lífaldur blóma en gerði það ekki. Ég hélt að blóm lifðu alltaf eins og ástin ein sem við ræktum. Kanski getur einhver frætt mig um lífaldur blóma??? Veist þú um lífaldur blóma?
Jólastúlka með jólarós
Gleðilega hátíð
Svona í lokin þá langar mig að segja ykkur frá rosalega góðri dressingu á hátíðarsalatið græna og væna!
1 stk Mortel (notað til að merja rúsínur og hnetur)
rúsínur (slatti eftir smekk en ekki of mikið)
Hnetur eða möndlur (e. smekk)
Rúsínurnar eru marðar í mortelinu sem og hneturnar.
Græn olífuolía sett saman við sem og balsamedik.
Blandað vel saman og útkoman er delisjö, jummý góð dressing.
Dressingunni er síðan hellt yfir salatið og svo saltar hver og einn eftir smekk.
Verðið að prófa þessa dressingu því hún er virkilega góð!
Best að huga að smá bakstri.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.12.2008 | 02:16
Held ég rokki og stígi stokkinn svo lopinn renni eins og rjómi .....
Var að koma heim úr bíltúr og klukkan er langt gengin í morgungeislana. Tíminn hefur flogið áfram og kona búin að mala eins og köttur fyrir framan arineld í allt kvöld.
Stelpukvöld eru alveg nauðsynleg. Við sátum úti rétt undir miðnætti og skröfuðum um liðna tíð, hlógum og grínuðumst eins og tvær unglingsstúlkur. Þetta getum við þegar tímabeltið er látið laust og andagiftin tekur tauminn.
Ég er orðin þreytt eftir daginn enda höfum við áorkað ýmsu. Sem dæmi þá voru skreytt 2 jólatré. Eitt fyrir stofuna (íslenski siðurinn) og hitt fyrir framan útidyrahurðina (spænski siðurinn). Svo var Jatan með öllum leikmönnum stillt upp í anddyrinu og serían sett á bakvið, voila! Ekkert smá flott hjá ungherranum.
Leið lá í Carrefour að kaupa jólaseríu þar sem að serían á stofutrénu tók uppá því að blikka að hluta til. Kemur alveg sérdeilis ílla út með mittið blikkandi! (tré hafa mitti). Það var allt jólaskraut á 50% afslætti og auðvitað versluðum við örlítið meira en bara seríuna, þó ekki mikið. Nokkrar jólagjafir og matarkyns OG geisla með saunglandi prestum. Hlakka til að setja prestadiskinn á í fyrramálið á meðan ég tíni allar kúlur og skraut af stofutrénu til að setja nýju seríuna upp.
Góður dagur á enda og nýr alveg að renna í hlað. Best að kúrast eins og kúrena hjá Fjallmyndarlega "allsókunnuga" hrotudýrinu sem liggur í Bangsabóli.
Jólin nálgast og jólakötturinn hefur þrjá feita bita sem ekki hafa fengið flík fyrir jólin. Eins gott að draga andann djúpt inn og þykjast vera mjög horaður og lítill ... Virkar alltaf!
Góða nótt og rokkið feitt eða var það sofið rótt?
... Lopapeysan svínvirkar ....
19.12.2008 | 15:18
Nánd og nærvera ...
...
Tíminn æðir áfram á gamalsaldri. Konan er ung en gamlan í henni lifir líf úr lífi. Konan veit tilfinningar og tilveru sem var og ber saman við það sem er. Hún sleppir neistum út í umheim og horfir eftir huga sínum eins og gamlárskvöld væri. Lífið sem vex eins og blóm sem teygir sig í átt birtunnar.
Blómið, ertu þú. Þú sem horfir í átt betri vegar, óttast og vonar að dagsbirtan færi þér gleði og bjarta sýn á deginum.
Í dag þá var síðasti dagurinn í skólanum og krakkarnir mínir komu með spjöldin sín heim. Þau stóðu sig bæði vel. Dóttlan hefði getað kætt hvaða foreldra sem var fyrir frammistöðuna sína. Sonur minn kætti okkur á sinn máta, þessi elska. Hann gerði það sem í hans valdi stóð. Lesblindukvillinn hans setur strik í reikninginn ....
Honum fannst hann hafa gjörsamlega brillerað, kom heim með fallega jólaskreytingu og jólapunt! Hvað eru einkunnir á milli vina þegar litla hjartað stendur roggmonntin með spjaldið sitt sem ........
Jólin koma og fara. Gráu hárin herða sig og hamingjan styrkist með hverri mínútunni sem líður. Uppþottavélin maular á meðan sú gamla situr og hamrar á makkann ....
Það er ekkert betra en tími samveru og kærleika. Við í hverju horni og þið sem hjúfrið að kærleikans hönd.
Jólaglögg bíður konunnar í kvöld og ég vona að það verði gaman. Efast ekkert.
17.12.2008 | 22:58
Engar nornir yngri en 16 ....
Ekkert nema kústar út um allt hjá mér .....
Á einn tylli ég mér með sjálfvirkan hitablásara. Svona atvinnunorn getur nottl. ekki farið í þessum kulda nærbuxnalaus í svörtu pilsinu á kústinn í þessum beljandi kulda. Svo viðurkenni ég að það að vera án nærfata er einfaldlega ekki gott fyrir viðkvæmasta og blíðasta líffæri sem konan hefur.
Allavega þarf að bregða mér af bæ, á kústinum og ég get sko svarið það við ykkur að án nærfata fer ég ekki nema það séu sálfarir eða þessar sam sko!
Góða nótt og .... xxx
17.12.2008 | 21:44
Tilraun, taka 2 ...
Vá hvað ég var þreytt í morgun. Ég vaknaði að gömlum vana, teygði mig og beygglaði á mér munninn og gaf frá mér ógurfögur eðluhljóð. Sko, ég er bara eðluleg!
Ég var fremur kaffiþyrst og fór frammúr í nýja svarta náttkjólnum mínum og steig berfætt á ísskaldar keramikflísarnar.
Eftir ljúfan dreitil, andlitsþvott og 66°N lopapeysuna mína uppgötvaði ég að Frúin á Calvario hafði unnið í happadrætti. Jesöss minn lifandi kominn í fangið á mér. MOI, ó já! Upphæðin gjörsamlega ekki af verri endanum, mörg mörg núll og alveg nóg til að deila með fjöldanum.
Til hamingju Spánn segi nú ekki annað. Nú get ég haldið almennilegt partý þegar ég verð tágrönn og fertug! Aha ...
Svo sit ég og blogga.
Litla geitin, hvar er sveitin ....... Sjáumst síðar dúlls and dolls!
16.12.2008 | 23:45
Nótt í elsku heima ...
Þegar flest hefur verið sagt ...
Þá má endurorða setningar og semja ný lög. Standa í nýjum sporum og horfa með öðrum augum.
Lífið er endalaus hringrás, hamingju og gleði. Örlítil sorg sem íþyngir en allt hitt aðstæður sem við sættum okkur við og tölum okkur framhjá.
Við erum nebblega snillingar í því að lifa dag fyrir dag og viku fyrir viku.........
Læf is good og það er sko þess virði að lifa því!
Í nótt ætla ég að ferðast til Grikklands og spyrja út í afkomendur Don Griego ... Má til þar sem að Sissó vinur minn kom í draumaheima ... Furðuveröld drauma minna ... Rauðar rósir og 2 af þremur feitum bréfum í höfn.
Ég er að setja pússlin saman og get varla beðið .... 22 desember er dagurinn!
Leyfi ykkur að fylgjast með rósaknúbbum og óvæntum glaðningum. GÓÐA NÓTT elskurnar!
15.12.2008 | 21:18
Að hafa valið ...
... Oooog að geta valið? Ekki alltaf auðvelt að velja þegar margt er í boði.
Eftir að Sara hárgreiðsluséni flutti til Íslands hef ég verið í vandræðum með höddinn á mér, hef mig ekki í að finna nýja hárgreiðslukonu eða mann. Er komin í sama gamla farið og lita mig sjálf og hárið er stjórnlaust! Eftir miklar spekileringar í hárgreiðsludeild Mercadona þá lagði ég lit númer 7 komma 43, shangrila cobrizo í körfuna sem er rauðgullin orange litur. Ég var nánast búin að kaupa kóka kóla rauðann lit en hætti við. Lífið er erfitt á aumum stundum en auðvelt þegar meira liggur við.
Ég fann til litina mína og málaði konu með orangelitað hár!
Litríkur dagur á svo margan hátt.
Vikan er rétt að byrja en það sést fyrir endann á henni eins og öllum þeim sem hafa runnið hjá ... hinum megin við hornið er nýtt ár og ný tækifæri.
Fögnuður happadrættisvinnings veraldlegs auðs sem þarf að koma fyrir kattarnef. Finna farveg sem nýtur blessunar ... Finna aldurinn hellast yfir konuna og hefja nýtt líf.
Þegar lífið hefst á ný, þegar augun eru opin og horfa með nýju ljósi á framtíðina. Það er akkúrat þá þegar kona kemst á fimmtugsaldur og nær þeim glæsta þokka sem aldrei fyrr.
Svo er það bara gamansemi og gleði framundan.
13.12.2008 | 10:18
Góðan daginn litla piparkökuhús ...
.... góðan daginn, daginn, daginn!
Ég þarf að skjótast í smá erindi, jólalögin komin á geislan og kaffið að gera sig í græjunni.
13ándi desember og 13 skvaldrandi konur ætla að hittast í Kastala bæjarins, San Miguel .... Allar koma með piparkökuhús (hahahaahhahah) og eftir glöggvun og snarl verður ungfrú piparkökukerling heiðruð með silkiborða og fagnaðarlátum.
Dyggir lesendur eru farnir að iða í skinninu að sjá litlu hörmungina mína.
Frumraun í piparkökuhúsgerð .. geri aðrið betur!
Allt útlit er fyrir bjartan og heiðskýran laugardag. Það er nóg að gera hjá kvenndinu í dag. Rósa kemur uppúr hádegi að græja silkiborðann og ég þarf að hlaupa í nokkur erindi í bænum ....
Í dag á yndisleg mágkona mín afmæli og maðurinn hennar líka. Ég keypti hálsmen með hraunmola á Íslandi í sumar til að færa henni. Við ætlum að gera okkur glaðan dag og pöntuðum gistingu á hótelinu Orihuela Costa Resort. Þar fáum við afnot af sér sal og verðum ásamt fjölskyldu og börnum. Í kvöld munum við syngja afmælissönginn og horfa á Eið Smára taka væna takta fyrir hönd Barcelona.
Barcelona - Madrid
Í mínum hópi halda allir með Barcelona svo það er spurning að taka eina "gleiðiöldu" þegar Madrid nær upp á miðjan völl ... hahhha æj þeim er búið að ganga svo ílla blessuðum ..........
Njótið dagsins og munið, piparkökuhúsið eftir ca. 3 klst.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.12.2008 | 01:22
Að horfa í rjáfur ...
... eða í heitan barm þinn ....
Fyrir framan mig stendur þú litla ofurherfilega piparkökuhús. Í kverkum angist minnar situr hjarta þitt og slær ótt og títt. Hver mínuta stundarinnar þenur bönd sín og tíminn líður á ógnarhraða. Við erum samferða í tímanum, þú litla piparkökuhús og ég.
Ég er búin að eiga notalega kvöldstund við skriftir, við dundur og áður en ég legst til hvílu þá ætla ég að mála smá. (kanski ég leggi mig bara) ....
Ekki það að klukkan tifar hraðar með hverri mínútunni sem líður. Áður en ég veit af mun draumur minn verða fylltur af þeim heilaga anda sem ég hitti þegar ég var agnarögn í heimi liðinna tíma.
Hver er þessi draumur og hvers vegna óska ég áranna ...... Þegar ég var lítil þá óskaði ég þess að verða fljótt sextug og það stefnir harðbyr í að ég nái þeim ágæta og yndislega aldri.
Að verða 6 og núll og eiga nóg til að fæða meðal sveitarfélag. Væri lag að vera sextug núna og leggja sitt af mörkum í auðlindarkreppu Íslendinga.
Í rjáfur þitt rýni.
piparkökuafstirmið mitt.
í skyggni rek mitt trýni,
ég bræði hjarta þitt.
Á morgun stollt þig sýni,
hjartans efni blítt.
sjálfsagt andans rýni,
kjéddling eflaust grýtt.
Bara grín, ég mæti með gleði, kona á fertugsaldrinum (algjör gleðikona hahhahhah) .... lofa því að næst þegar ég fæðist þá verð ég fyrr að ná sextugu. En, lífið er gott, lífið hefur sjaldan verið jafn hnerrandi fínt! Vona að kæru bloggvinir mínir hafið það fínt og jafnvel betra!
Góða nótt
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.12.2008 | 22:08
Ódugnaður í bjútíkvenndinu eða ?
Vissulega bjútíkvenndi, dugleg?? Svona oftast þá er ég mjög dugleg en verð svo löt þess á milli.
- Í dag þá svaf ég eins og sveskja í verulega djupum svefni. Dreymdi ekkert nema skít og drullu, óbojjjj .....
- Ég gaf syninum morgunverð og útbjó skólatöskuna, föndraði fram nesti, kreisti ferskan appelsínu safa og pakkaði inn heimabakkelsi (æj... ljótt að plata, tetra app.safi og sérpakkað bakaríbakkelsi.
- Fékk mér lýsi og vítamín með morgunmatnum. Lykilatriði að fá gott kaffi.
- Skrifaði bréf til ýmissa stofnana í þeirri von að fólk fái sínu framfylgt.
- Græjaði gömluna og fór á brúðkaupsbílnum (gamall grár AX Citróen) en mín átti tíma í lazer meðferð. Ætla að leisera af mér umframþyngdina, leiðilega skapið og geðklofana.
- Fór á pósthúsið með 2 bréf sem skila sér vonandi fljótt.
- Fór að ná í börnin mín, sonurinn kom heim í mat en dóttlan var orðin lasin.
- Hádegismatur, kjúlli og soðin kartafla.
- 2 eða 3 ferskar gulrætur
- 1 lítill laukur (svona baby laukur)
- balsam edik
- Olífuolía
- salt