15.4.2010 | 11:05
Það er gott ....
... að hlæja, gráta, tala og finna tilfinningarnar fara landa á milli.
Að ganga um eftir gylltri strönd með ástina sína í hönd. Það er margt sem er svo gott, gott í hjarta og gott í sál. Gotterý og trallala!
Að halda í von um góða ferð og hefa sig upp til skýja Ég er glöð í dag, fitja uppá galdraprjóna og ætla að prjóna silkiflík úr dúnmjúku skýji. Sit svo í ruggustól og dúa varlega fram og til baka. Flíkin tekur fagra mynd enda hönnun sálarinnar sem veit alltaf hvað er gott, rétt og fallegt. .
Gjöfin þín sem ert mér svo kær, ferð í hinstu ferð, í nýjan heim, þar sem hið góða slær í takt við hjartslátt himnaherrans. Tónlistin ómar og kjóllin bíður þín elskuleg, björt og hrein.
Sitji Guðs englar
eftirprentun 12 x 12
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:07 | Facebook
Athugasemdir
Knús og kærleik yfir hafið, öskulaust
Ásdís Sigurðardóttir, 15.4.2010 kl. 12:48
Elskan mín, það er gott að gráta og hlægja, syrgja og gleðjast....

Ég er með þér í anda
Knús á þig engill, ég er viss um að kjóllinn er silkimjúkur og fínn fyrir þína elskulegu björtu og hreinu
Elín Björk, 16.4.2010 kl. 14:19
Gleði í sál og sinni og ekki að bæla inni þær góðu hugsanir, vonandi eru þær smitandi .
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.4.2010 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.