20.5.2010 | 08:12
Ein frænka mín ...
.... sagði alltaf þegar það var drazzlaralegt hjá henni. "Þetta er bara eins og hóruhús í hafsjó".
Önnur frænka mín, ömmusystir sagði við dóttur sína og mína. "Hvar voruð þið að hryssast".
Það má sjá á þessu að ég á mjög skemmtilegar frænkur bæði ömmu og móður systur.
Langaði bara að segja ykkur að fuglinn sem ég er að passa, svona kanarý syngur eins og hann eigi lífið að leysa. Sólin er þarna að sperra sig og kvenndið ætlar að drífa sig og nálgast ströndina og dreypa á kaffilús. Kanski geri ég eitthvað meira, viturlegra og betra en fyrst er það kaffi við ströndina því lífið er stundum gott rétt eins og það er!
Sem minnir mig á setningu, ég elska þig alveg eins og þú ert Og, það er alveg satt ....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Skemmtilegir frasar hjá frænkum þínum, þú ert nú líka sjálf mjög skemmtileg
Ásdís Sigurðardóttir, 20.5.2010 kl. 11:56
Og ég elska þig nákvæmlega eins og þú ert
Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2010 kl. 15:22
Lovjútú mæ dír
Bið að heilsa Bíbí litla með stóru "röddina" og knús á ykkur hin á bænum
Elín Björk (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 00:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.