30.1.2011 | 21:42
Ég er kona og ég elska það .....
.....
Það er á stundum sem þessari, akkúrat núna!
Ég spyr mig og hlusta, fæ engin svör, engan hljóm. Hvað með morgundaginn?
Hjá mér er enginn morgundagur, það veit ég því ég lifi núna. Lifi í núinu.
Enginn morgundagur á 5 ára planinu
Hins vegar sé ég morgundaginn, vikuna, mánuðinn og árið. Sé og myndgeri framtíðina og veit svo margt, jafnframt ekkert. Að vita allt í engu og ekkert í öllu !!!!
Á morgun segir sá lati og ég held dauðataki í þann lata. Við erum par þessa dagana Ég fæ líklega leið á honum því ég nenni ekki endalausri leti. Það er tími tunglgöngu, stjörnumerkja og the power of pink. Ekki spyrja en jú það er þessi endalausi kvenleiki sem heillar. Vera kona og elska það.
Án titils, olía á striga 100 x 100
Ég get grátið og brosað á sömu mínútunni. Ég hlusta og hughreysti, sendi bros og blíðu, gef þér faðm og hlýju. Leiði hönd þína og kyssi á "báttið" ég er. Er hér þegar þú þarft á mér að halda. Ég er kona.
Það er gott að vera kona.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
þú ert yndisleg persóna, stelpa, kona og vinkona .. þú ert sko þÚ og getur verið stolt þú ert falleg, þú ert flott, þú ert skemmtileg og hot ! heheh!eheh!!! og besti penninn í "bænum"... læk jú a lot ..!
faðmur og hlýja frá Islandinu til þín
antonia (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.