7.2.2007 | 08:48
Öll heimsins viska ....
... er ekki til neins ef við höldum villuráfandi út í geiminn. Það er þessi spennandi miðvikudagur fullur af óvæntum appelsínugulum tækifærum. Ég þarf á appelsínulit að halda í dag og braut upp einkennisklæðnaðinn og fór í app.gulan bol. Væri meira en lítið til í eitt stk. citrus ávöxt en ég er meiri ananas en það er aldrei að vita hvað gerist.
Ég er með verk sem ég kýs að kalla GÓÐVERK ég kallaði þennann verk yfir mig sjálf þar sem góðmennska krefst oft á tíðum fórnar frá sjálfinu. Nákvæmlega málið, stíga réttum megin framúr. Taka þetta létta morgunspjall við spegilinn, stúlkan í speglinum leit vel út og það verður gaman að verða henni samferða.
Þegar Jóhannes Páll páfi yfirgaf jarðneska tilveru þá fann ég nokkur orð í hjartanu sem mun lækna verkinn minn í dag og þann verk sem þú berð í hjarta! GÓÐVERK læknar GÓÐVERK .......
Guð hvílir í hjarta mínu
ég hvíli í hjarta Guðs
Kærleiks blik leiftrar
geislar beint til þín
Af góðmennsku játtir
öllum börnum þeim
Æðri viska og sáttir
steyma hjartans laun
Að elska er að lifa
lífsins hreina draum
Að lifa er að elska
með trú og von á heim
Í dag hafa englar alheimsins glætt mig birtu til að deila með öllum þeim sem ég mæti. Ég hef nú þegar séð daginn minn eins og ég vil hafa hann og hlakka til að taka á öllu sem yfirvaldið felur mér. GÓÐVERKURinn minn hverfur sem dögg fyrir sólu. Ég heyri hlátur sem smitar út frá sér, heyrir þú þetta fallega CHI sem snertir vanga þinn? Í dag er dagur til að ganga um eins og sigurvegari (dettur bara Bee Gees í hug núna) ...... "en þeir eru líka bara flottir"
Þú hefur verið snertur af geislanum, njóttu hans
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
segi bara: Góðan daginn....
Ólafur fannberg, 7.2.2007 kl. 08:52
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.2.2007 kl. 08:59
Alltaf gott að byrja daginn á lestur frá þér :)
Vatnsberi Margrét, 7.2.2007 kl. 10:13
Fyrsta settningin í hjá þér að þessu sinni er eitthvað sem ætti að hrópa yfir heiminn minnst þrisvar á dag.Flottasta GULLKORN sem ég hef heyrt langa-lengi.
Er alvarlega að hugsa ................elskjú
Solla Guðjóns, 7.2.2007 kl. 12:13
Ummmm, alltaf ljúft að lesa spekina þína.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 7.2.2007 kl. 12:58
Knús til þín sætust

Elín Björk, 7.2.2007 kl. 13:27
Þið bloggið svo hratt á moggablogginu. Vonandi er litli kútur að hressast og kortin eru meiriháttar.
Lisa (IP-tala skráð) 7.2.2007 kl. 14:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.