25.2.2007 | 12:18
Sá Hrafna tvo á sveimi .....
Þeir svifu tignarlega, bikasvartir. Þeim hafði sinnast og rifust hástöfum í háloftum, ég varð of sein ... náði ekki myndinni frekar en áður. Það er mikið af þessum elskum í hrauninu og nú er spurning hvort ég fari á hælaháum skónum út í hraun til að freista gæfunnar!

Glæsilegur
Fallegur, kaldur og bjartur dagur
Í dag mun Hveragerði heimsótt og svo brunað á blessaða Heiðina
Dásamleg slökun í allan dag
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Og ef þú kemur á Vesturland (30 mín. frá Reykjavík) ertu velkomin í himnaríki!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.2.2007 kl. 14:47
Nei Hveragerði hefur ekki barr sitt borið síðan aparnir fóru.
En humarinn á Eyrarbakka..eða er það stokkseyrin...man aldrei en annar hvor staðurinn er það. Það er sko eitthvað til að keyra yfir heiðina fyfrir. Humar og hvítlaussmjör. Slurp! Og Himnaríki er náttla engu líkt.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.2.2007 kl. 17:25
fáðu lánaða skó hjá mér
Solla Guðjóns, 26.2.2007 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.