4.5.2007 | 16:46
Ég flýg á kústinum mínum .....
... Alein án kisunnar minnar yndisblíðu galdra ég orðin til þín ..... ég skvaldra þangað til þú þreytist og tek þá upp að tala á fingramáli til að hvíla eyru þín. Orðin endalausu fara hring eftir hring og snerta okkur hvert og eitt með ólíkum hætti.
Þrír litlir fuglar sitja inní stofu á handriðinum mínu. Þeir eru litríkir og syngja allir sitthvort lagið til að gleðja og fegra þennan heim.
Kærleikur, þú blíði lækur, uppspretta ástar og hamingju, Þú seitlar niður æðar, grípur hjörtu okkar. Jafnan til staðar, að morgni mánudags, að kvöldi jarðar ........ Þegar kvöldið endar kemur náttmyrkrið og breiðir faðm sinn yfir mig, þú horfir yfir og ert allt um kring. Kærleiks ljós í formi ljóða mig setur í hljóða þegar enginn skynjar ást þína.
Ást mín, orð þín .....
Skrítin orð
kona
borð og stóll.
Ársæl og rjóð
hugur
hamingjuslæða.
Þú ert í mínu hjarta
elsku vinur
láttu þér batna.

Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Ég þigg og gef rauða ást,á lítið af orku akkúrat núna enda komin tími til að hlaða.
Rauð ást til þín.
Solla Guðjóns, 4.5.2007 kl. 22:34
Þú ert alveg yndsleg og listræn.
Kristín Katla Árnadóttir, 4.5.2007 kl. 22:56
Marglit og marglaga ást er yndisleg, og ég er stuðningsmaður þess að engir galdrar komi þar nálægt. Hins vegar er sönn ást göldrum líkust ... hvað maður er nú heppinn að finna fyrir slíkri tilfinningu
Allt er gott sem ástin snertir ...
kærar knúskveðjur og kossar
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 23:46
Vatnsberi Margrét, 5.5.2007 kl. 00:59
Rósir handa þér, ljúfust
Lísa (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 01:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.