11.5.2007 | 22:26
Alveg Tóm .... andhverf að innan ....
Sálarheill með besta móti en samt svo andhverf að innan! Líður eins og teppalagningin hafi verið gerði í loftið eða að loftmálningin leki .... Ég hef enga ástæðu til að vera í þessum sporum, alls enga!
Emma Shaplin raular fyrir mig ofurljúf Operulög, eitthvað sem ég fékk í erfðir frá vini, þakka fyrir þessi kynni því Emma er þess virði ....
Þegar stjörnur rigna yfir okkar þá finnum við fyrir smellum hamingjunnar, þegar kallað er ÞIG kom ÞÚ og sjáðu, vertu með og upplifðu!
Lífið er svo miklu meira en það sem við aðhöfumst í daglegum drætti andans ... Ég er óþreyjufull af spennu, get varla beðið til að taka á móti.
Sköpunin
Er ég sköpuð rétt fyrir hlutverkið, það hlutverk sem mér einni var falið!
Svarið er já. ég verð aldrei eins tilbúin eins og núna!
Tíminn er komnn og ég hleyp öllu því góða inn af miklum kærleik og þigg leiðbeiningar með ákvarðanir! Takk segi ég og hef það ekki lengra að sinni ...
Ekki lengra er fremur fjarlægðarmark, í dag ræðir frekar sálina er tifar í skinni.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:29 | Facebook
Athugasemdir
Lisa (IP-tala skráð) 12.5.2007 kl. 02:10
tengdu þig í alheimsljósinu, og þú ert eitt með öllu þar er eilíf sæla, og meðvitund. það er ekki alltaf auðvelt, en þegar maður er meðvitaður því að maður hefur sjálfur val, hverfing manni líður , þá er það gott.
ljós til þín og sendi þér það sem ég hef.
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.5.2007 kl. 08:16
Það getur stundum verið erfitt að finna ástæðu fyrir innri andhverfu....kannski er engin ástæða bara andhverfa við eitthvað annað sem er þá til um leið. Er þetta nægilega flókið á ljúfum laugardagsmorgni???
Eigðu æðilega helgi Zordis og megi ósk þín um daugnaðinn rætast vel og fallega.
Smjúts
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.5.2007 kl. 08:59
Ég vona að þér líði vel elsku Zordís mín ég sendi þér jákvæðna strauma.
Kristín Katla Árnadóttir, 12.5.2007 kl. 10:56
Solla Guðjóns, 13.5.2007 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.