14.6.2007 | 16:34
Lok, lok og læs ....
Ég finn fiðringinn sem er læstur undir niðri .... Sé fyrir mér hláturpoka sem biður sprengingarinnar! Getur ekki hamið sig og hlær trilltum hlátri.
Ég hamaðist í gærkvöldi við að pússa upp tekk húsgögnin mín sem hafa tekið nýtt útlit og eru frúnni til fyrirmyndar! Það var fersk golan sem lék um konuna með juðarann og lét ekki mitt eftir liggja fyrr en klukkan 22.30, albrjáuð á juðaranum, orðin hálf smeyk við að gera grannana ærða af látum svo ég ákvað að geyma sólbekkin þar til í kvöld.
Kroppurinn er hálf aumur eftir ranga líkamsstellingu en árangurinn góður! Sól í lofti og rjóður vangi ... dagur að kveldi kominn og tími til að ræsa juðarann grönnum mínum til heilla og gleði
Koddu svo í ískalda Sangríu á sólþakið mitt ... sjáðu útsýni að leginum og njótum samverunnar í náttgolunni. Svo skröfum við um allt sem engin veit og sitthvað af því sem allir kunna.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Jó! Eins gott þú gerir mikið af sangríunni!!! Æm komming óver júnó


Gef þér 2 daga til að blanda
Knúsísmúsí vangarjóða mær!
Elín Björk, 14.6.2007 kl. 20:37
Lok lok læs og allt í stáli...... Mikið áttu gott að vera með rjóða vanga eftir sólina, hafðu það gott í kvöld Zordís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 14.6.2007 kl. 20:48
Verð með þér í anda dugmikla dúlla.Hugurinn er á Spáni með þér að súpa á súrri Sangría og Lilju sys og Kötu en þær eru að bergja bjór þarna í nágrenni við þig.
Knúsusmús á þig
Solla Guðjóns, 14.6.2007 kl. 21:55
aðeins að smella einum hjúts kossi á þig skvísa
sigrún (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 11:27
það er gott að gera hitt og þetta og þetta og hitt á heimili og hreiðri.
Ljós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.6.2007 kl. 14:47
daginn
ég vill gjarnan koma af stað skoðannakönnun hérna hja´þér... hversu margir vilja vita hver Húni er??? og hvað þá húnakonugur...
ef talan nær tveggja tuga markinu skal ég láta í mér heyra.
þinn HÚNI
húni (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 16:55
Þegar maður er búinn að vera svona duglegur ... þá á maður skilið ískalda sangríu. Og persónulega finnst mér oft vökvinn bestur þegar ég hef "unnið" fyrir honum. T.d. eftir mikinn burð eða hreyfingu.
Annars vildi ég bara láta þig líka vita að ég sendi kort til Veigu og hún fékk það (kortið sko) og var voða ánægð með sörpræsið!!
Knús knús og kossar til þín!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:12
Knús og kossar dúlla og takk fyrir skemmtilegar skriftir, það er alltaf gaman að lesa hjá þér bloggin..
Knússss.
Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:46
GARG !! Minns langar að koma í heimsókn!! Hvernig er að búa í svona suðrænu úpplandi?? *andvarp*
Hugarfluga, 15.6.2007 kl. 23:05
Gleðilegan Þjóðhátíðardag Zordís, já og skál í Shangriu í tilefni dagsins.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 17.6.2007 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.