8.8.2007 | 08:24
Í bítið ...
... svo sybbin, dofin í höfðinu frá því seint í gær ..... Get svarið það held að her andalækna hafi komið við hjá mér því ég er mun betri núna. Lá eitthvað svo ílla við sjónvarpshorfið og við þessi gömlu rotuðumst þögul hvort með öðru.
Ekki að spyrja að því að þegar börnin fara til ömmu og afa, þá erum við eins og 2 rotaðar rottur og náum varla góða nótt kossinum! Betra seint en aldrei!
Vikan hálfnuð og fríið rétt handan hornsins ..... Nóg að gera í vinnunni svo ég ætti að skammast mín þess í stað skrifa ég orð í eyru ykkar mín kæru. En það er svo sem ekki mikið að frétta annað en að ég er búin að setja nýjar myndir í ramma ..... er alveg að fara að uppdeita heimasíðuna mína www.zordis.com þar geymi ég myndirnar mínar og sitthvað fleira.
Svei mér ég er enn dofin í hnakkanum, gengur ekki ..... Fór í rauðu heilsuskóna mína og setti hvíta lilju í brjóstmálið, þessi dagur verður bara dásamlegur rétt eins og hann á að vera!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
þið verðið að vera duglegri þegar börnin eru ekki heima
he he... megirðu eiga góðan dag ..
Margrét M, 8.8.2007 kl. 08:30
Æi vonandi lagast þú af dofanum sem fyrst eigðu góðan dag.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.8.2007 kl. 08:37
Þessi dagur mun vonandi vera dásamlegur hjá þér en þú verður að losa þig við dofann þetta er ekki hægt...
Knús og Klem
Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 13:14
Hlakka til að sjá nýju myndirnar inni á zordisinni.
Elísabet (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 14:24
Æ, ekki gott að heyra með dofann? Er þetta ekki bara svona ferleg vöðvabólga? Vinkona mín var með eyrnaverk í heilt ár og gekk á milli háls-nef-og-eyrnasérfræðinga og fékk allskonar lyf og læti, þangað til ein góð frænka hennar minntist á vöðvabólgu ... sem var svo málið. Farðu vel með þig og reyndu að slappa af í fríinu þínu. *smjúts*
Hugarfluga, 8.8.2007 kl. 19:58
Hæ elsku krútt
langaði bara að kasta á þig kveðju
Mér þykir alveg ógó vænt um þig :) kallarnir mínir biðja að heilsa
sigrún (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 08:59
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.8.2007 kl. 13:18
Knús og kæti....eintóm læti
Láttu þér batna vinkona.
Kær kveðja
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.8.2007 kl. 14:12
Rauðir skór redda öllu;)
Heiða B. Heiðars, 9.8.2007 kl. 19:06
Vona að dagurinn hafi verið góður og yndislegur. Minn hefur verið virkilega "þéttur" en það er svo gott að lesa þig fyrir svefninn
Þetta með hvítu liljuna í brjóstmálinu ... er til eitthvað fallegra? 
Knúsur yfir haf og annað til þín og þeirra sem vilja!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 21:40
alltaf gott að koma inn, og lesa værð og frið.
Ljós til þín kæra zordís
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.8.2007 kl. 21:52
Solla Guðjóns, 12.8.2007 kl. 00:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.