4.9.2006 | 20:00
Ástareldur í hjarta!
Ísland í morgunmat.
Frúin er komin yfir hafið, heil og sæl! Það var gott að koma og faðma fjölskylduna.
Olía á Striga 20 x 20
Í burtu með sorgina er mynd gerð á árinu og á vel við þessa dagana. Stundum á maður að finna gleðina til að ýta sorginni í burtu og þakka fyrir að eiga góða að.
Ég á góða vini
Ég á góða fjölskyldu
Ég á góð börn og góðann mann
Ég er líka pínu góð, held ég!
Við lifum í hjarta hvor annars og ég fylli kistu minninganna af því góða sem afi minn gaf mér. Ég hef mætur á gleðinni og þakka fyrir kynni okkar.
Bless á meðan
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Þú ert yndisleg Þórdísin mín, velkomin á klakann sem ég er þó búin að yfirgefa núna ;)
Knús til þín, ég hlakka til að sjá þig aftur!
Og ekkert smá sem þú ert búin að vera dugleg í listverkasköpuninni!!!
Elín Björk, 5.9.2006 kl. 14:56
Velkomin á æskuslóðir. Knús
Vatnsberi Margrét, 5.9.2006 kl. 19:51
já bara velkomin.
Solla Guðjóns, 6.9.2006 kl. 02:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.