11.11.2007 | 00:13
Hvað er betra en líf í lífi ....
Árið 2005 fór Zordis á stúfana og opnaði Flickr síðu. Það tókst glimmrandi vel, þvílíkur árangur að konur öfunduðust út í kjéddlinguna.
Árið 2007 komst Zordis inn á síðuna sína og var að enda við að setja inn myndir þar! 3 myndir eru nú komnar inn og það veit sá sem allt veit að ég vona að ég komist aftur inn á síðuna mína fyrir árið 2009.
Ef ég verð dugleg að setja inn myndir þá minni ég á síðuna hér ...
Ég hef haldið ró minni enda búið á Spáni í 9 ár, þótt stundum mér líði eins og þau séu 19. Ég horfi á börnin mín sem eru nánast jafn stór og ég, dóttir mín Íris Hadda er 12 ára og verður 13 í feb = vatnsberi.
Þessi stúlka er algjör engill, þrældugleg í námi og ég veit að hún á eftir að gera góða hluti í lífinu. Frá því hún var innan við 2ja ára aldurinn hefur hún haft sitt og vitað því viti sem hefur náð hæð hennar. Þessi stelpa er yndisleg, ég elska hana meir en orð fá sagt!
Þessi engill kom til mín og hefur sannarlega fyllt líf mitt af lit, blásið nýjum anda sem gælir við hjarta mitt daglega. Ákveðin, björt og fögur sál sem ég þekki svo vel.
Svo býr á heimilinu lítið ljón. Hann er 7 ára, elskar mömmu sína ógisslega mikið .... naflastrengurinn er enn óslitinn og honum finst það bara fínt. Hann er leikari, feiminn en samt svo opinn. Hann velur sér leikfélaga sem eru mun eldri en hann sjálfur ca. 30 + ... Hann lék sér við hetju æðislegu vinkonu minnar og gaf honum nafnið James Bond og eftir það hefur hann verið nefndu það á okkar heimili.
Já við erum rík, svo rík að stundum gleymum við hver eru auðæfi okkar. Hvað það er sem gefur lífinu gildi. Ég var spurð í dag hvenær ég kæmi með þriðja krílið ??? Hux ... það var svarafátt því ekki var ég búin að hugleiða nýjan ávöxt í safnið.
Börnin mín eru dásamleg og lítið annað hægt en að fagna því. Þau eru æðisleg og dugleg, best þó þegar þau sofa. Þá fer ég og horfi á þau og tala við undirmeðvitund þeirra. Þau eiga skrítna móðir sem er alveg sama því lífið er svo notalegt, svo gott, svo dásamlega yndislegt!
Lífið er það sem heldur okkur við efnið, saman eða í sundur! Daglegt amstur er það sem gefur okkur það lífsgildi sem þarf til að lifa næsta dag. Ég held við séum bara sátt við hvort annað, elskum hvort annað og njótum þess smáa sem guð hefur gefið okkur. Hvert annað sem er svo sem ekki neitt smátt né lítið!
Á morgun er sunnudagur, hvíldardagurinn! Við ætlum að fara og hitta tengdó, eyða deginum með þeim ....... Ég ætla að passa að óþolið mitt komi hvergi nálægt matseðlinum er búin að vera rosalega dugleg að passa upp á matseðilinn.
Ég er orðin mun betri í húðinni (stærsta líffæri líkamans .... mörghundruð m2 sko) Búin að missa nokkur kg, og líður betur inní mér, er ekki eins "innanfeit" if you know what æ mín ......
Nóttin nálgast, kominn tími á að búa til eins og eitt stk. Ramónu eða bara leika frá sér allt vit.
Vona að þið eigið dásamlega kvöldstund, dreypið á jafn góðu kaffi og ég var að enda við að sötra ..... tannburstun framundan smá þvottur og hárgreiðsla. Sko ég læt börnin mín alltaf, bursta tennur, bursta hár og fara með bænirnar fyrir svefninn.
Góða nótt elskurnar mínar!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Það er gott að eiga góða fjölskyldu. En Zordís, þú vannst verðlaunagetraunina mína. Ég vona að þú viljir þiggja eftirprentun af einu verka minna af galleríisalbúminu á síðunni minni. Sendu mér e-mail þegar þú ert búin að velja. svavag@mi.is eða svava45@simnet.is
Svava frá Strandbergi , 11.11.2007 kl. 00:47
Þið eruð falleg fjölskylda, það skín af ykkur langar leiðir...
Líka gaman að lesa fallegu orðin þín um börnin þín, ekki allir sem hugsa út í svona hluti
Og góða nótt sjálf!
Margrét Birna Auðunsdóttir, 11.11.2007 kl. 03:22
Takk fyrir að leyfa mér að kíkja í heimsókn í sælureitinn þinn. Já, þú ert svei mér rík og börning eru falleg og augljóslega klár eins og mamman. Vatnsberar eru sko ekkert slor, get ég sagt þér af fullri hlutdrægni.
Pjakkurinn er ofurkúúl þarna með gleraugun. Maður dissar ekki svona nagla sko. Vona að hann sé að lagas af eyrnabólgunni. Það er alltaf sárt að sjá elskurnar sínar vansælar.
Ég fæ alltaf kökk í hálsinn, þegar ég sé fólk, sem er gott við börnin sín og umgengst þau sem jafningja.
Blessi ykkur öll.
Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 04:13
Falleg börnin þín og skín af ykkur, fallegu fjölskyldunni, hamingjan.
Þú ert yndisleg! Eigðu góðan sunnudag.
Srósin (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 09:35
Til hamingju með börnin þín, fjölskylduna þína og þig sjálfa. Mér finnast lýsingarnar þínar svo flottar,sem dæmi: naflastrengurinn er enn óslitinn og honum finst það bara fínt. Hann er leikari, feiminn en samt svo opinn. Hann velur sér leikfélaga sem eru mun eldri en hann sjálfur ca. 30 + ... Hehe....frábært.
Eigðu góðar stundir....alltaf,
Sóldís Fjóla
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.11.2007 kl. 10:35
Það er það besta við lífið að eiga yndisleg og góð börn elsku Þórdís sjálf ertu yndisleg og góð og þú átt falleg börn þú ert spes í mínum augum.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.11.2007 kl. 10:46
Yndisleg eruð þið öllsömul. Flott fjölskylda. Til hamingju með lífið og þín eigin frábæru viðhorf.
Takk fyrir að deila og sýna myndir af ykkur Þórdís mín.
Marta B Helgadóttir, 11.11.2007 kl. 12:10
Þið eruð falleg fjölskylda sem þú umvefur miklum kærleik
Börnin þín falleg og flott á myndunum
Vatnsberi Margrét, 11.11.2007 kl. 13:03
Íris Hadda er nánast eins og þú og er það nú alls ekki ónítt...litla ljónið minnir óneitanlega á frænda sinn Hadda með þessi sólgleraugu á nefinu.Naflastrengir eru órjúfanlegir.
Innan fita er alloft mikiðmeiri en hún þarf að vera og verra að bera.
Er farin í megrun........
og fer að fara á bæjarflakk...silið...
Solla Guðjóns, 12.11.2007 kl. 15:26
En falleg fjölskylda, Þórdís mín. Til hamingju með lífið þitt!
Hugarfluga, 13.11.2007 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.