Að vera akkúrat á réttum stað!

Ég sit alein í stofunni minni.  Hef aldrei setið áður í henni, hvað þá alein með Fjallið allt um kring.  Mín er búin að tendra upp teljós í arninum, í írska kristalstjakanum og glerstjökunum sem mamma gerði og það er komin rómantísk stemming.

Fjallið var að koma og tók upp spænska gítarinn sinn, "hann var að svæfa börnin" 7 og 12 ára .....

Það er æðislega kósý stemming núna, mig langar eiginlega bara að syngja en slæ á Delluna mína og hugsa um þig.  Þig sem kemur "Þú" ert sá sem hvílir í huga mér óendanlega yndisleg manneskja er fær hægri öxl mína alla.

Undarlegur þykir mér andardráttur þinn, ég skynja þig á hægra hnénu og kann vel við vanga þinn.  Það hefur oft verið sagt við mig að ég sigli ekki ein í ólgusjó heimsins en fyrr má nú fyrr vera.  Skynjun heimsins er aldrei of nálæg!

Ef ég bara gæti sett þær myndir á striga sem ég sé í huga mér.  Ef ég bara gæti samið ljóð sem eru réttmæt í samfélaginu ef ég bara gæti en innst inni veit ég að megnugur er meira!

Fadmlag

Faðmlag

Þegar ég málaði þessa mynd sem á sér áfangastað þá snart mig ofurtilfinning sem geislaði í hjartahólfi mínu .... ég varð að klára hana sama hvað snart!  Faðmlag er tilbúin fyrir þig sem kemur við öðru hverju, heimilið bíður, er til og leitar sátta í huga heimsins.

Fjallið mitt, spilar á gítar, elskar mömmu sína, eldar þjóðarrétt síns heimalands, gekk í herinn, er ekki þjóðernissinni, er farinn að grána, elskar konuna sína, er strangur, er allt sem konu eins og mig vantar og stundum allt of mikið.

Þegar kona á svona mikið þá kallar hún á minna.  Þegar kona veður í gnægð heimsins kallar hún á mótvægi jarðarinnar, þegar kona lærir að synda á móti straumi gleðst hún landinu sem hún ræktar og byggir.  Konana er bara sátt enda fjallakona í sínum kofa sem hún kýs að kalla höll.

Ekki yfir neinu að kvarta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æðislegt faðmalag fjallið þitt er mjög rómó en þú er yndisleg elsku Þórdís mín þú ert frá köldu landi hann er  er frá heitu landi þetta passar vel saman enda ert þú sérstök elskuleg kona ég óska þér og fjallinu þínu og börnunum  það besta í heimi knús til þín mín elskuleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.11.2007 kl. 22:31

2 identicon

Sé þetta alveg fyrir mér: falleg rómantísk stemmning, arineldur (eða tekertaljós) og verið að svæfa börnin með fallegum gítarleik. Það er ekki laust við það að rómantísk ró færist yfir mann við það að lesa færsluna þína.

Knús og kossar

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 08:07

3 Smámynd: Inga Steina Joh

Ummmmmmmmm, lifandi ljós, lifandi músík og ekki minnst lifandi karlmaður, tíhí. Gerist ekki betra. 'Eg á einn svona góðan glerstjaka frá mömmu þinni og þegar ég vil hafa það virkilega kósi þá kveiki ég ljós í honum. Og ég nota hann þegar ég kveikji bænaljós og vil senda einhverjum birtu ljósins. Finnst hann lýsa hlýju og kærleik. knús til þín dúllan mín 

Inga Steina Joh, 12.11.2007 kl. 09:09

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú ert yndisleg.

Solla Guðjóns, 12.11.2007 kl. 15:28

5 identicon

Knús á þig dúllusnúll  Ég gæti gert kósý hér hjá mér en kýs að láta sumt annað hafa forgang akkúrrat núna
En ég skal vera með kósýheit par exellans þegar þú kemur í kaffi og með því, við gætum líka málað saman

Línapína (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 17:15

6 identicon

Y Feliz cumpleaños Enrique!!!  
¿Tiene todos paquetes duros?

Abrazos de Islandia

Elena (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 17:23

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Yndisleg lesning

Heiða Þórðar, 12.11.2007 kl. 17:27

8 identicon

Til hamingju með Fjallið þitt og eigið góðan og skemmtilegan dag saman.

Lísa (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 18:38

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Munaður og unaður. Mótvægi og jafnvægi. Góðar stundir, elsku fjallshlíð, bið að heilsa fjallinu!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.11.2007 kl. 21:17

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mannbætandi lesning Þórdís mín. Takk fyrir að deila.

Marta B Helgadóttir, 12.11.2007 kl. 21:53

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með Fjallið í gær.

Solla Guðjóns, 13.11.2007 kl. 08:49

12 Smámynd: Margrét M

þetta er yndislega rómó hjá ykkur ... maður fann hlýjuna frá arninum og heyrði fjallið spila þegar maður las þetta

Margrét M, 13.11.2007 kl. 10:53

13 Smámynd: Hugarfluga

Ljúft ... svoooo ljúft! Þegar maður getur með sanni kallað heimili sitt höll og liðið eins og prinsessu er tilgangnum náð.  

Hugarfluga, 13.11.2007 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband