Að átta sig, hátta sig ....

Tengdó hringdi í mig í kvöld og spurði hvort ég væri komin í kvöldklæðnaðinn.  Nei, svarði ég að bragði og sagði henni að sonur hennar væri að tendra upp í arninum Heart og mér þætti alls ekki viðeigandi að vera í evuklæðum ...... Mín kaþólska tengdamóðir skildi það vel, að það væri nú ekki hollt að vera að þvælast um þannig klæddur á ísköldum flísunum!

Ætli ég fái ekki velúrkvöldklæðnað frá henni í amælisgjöf  ..... Tounge

Fjallinu tókst að tendra upp í arninum, það varð gargandi rómantík á heimilinu, börnin skoppuðu af kæti og litli brennuvargurinn sonur minn ( væri gott efni í varg ) vildi fá að kveikja á öllum kertum í augsýn en harka móður hans kom í veg fyrir að saga litla drengsins með bengalblysin verði ekki opinberuð nærri nærri strax.

  Stofutetur 

Afmaelisveislan

stofutetur

Læt þessar myndir duga í bili en við héldum upp á 42 ára afmæli Fjallsins, hann fór nú bara hjá sér að fá búðarbakaða súkkulaði, trúfu tertu.  Súkkulaði hjúpaða með tveimur kertum.  Annað kertið var talan 4 og hitt 2 ..... þegar hann verður 4 og 7 þá munum við nota sömu kertin aftur og saga stoðina af tveimur og svo við 7 og 4 ammlið til að nýta kertin.

Afmælisblómavöndurinn sést og hann varð obbosslega glaður að fá blómin, eða var það ég sem gladdist.  Svei mér þá ég bara man það ekki lengur en auðvitað fær strákurinn mótorhjól eða Jagúar í ammlisgjöf.  Er að gera talnaseið sem inniheldur;

segul

kanil

gull

og

jagúrarmerkið

Fer svo með sérstakan seið þrisvar sinnum, krossa mig og kyssi á odda síður nýja testamentsins svo eitthvað sé nefnt!  Þetta er heljarinnar vinna að framkalla gjöfina en ég sé hana fyrir mér og Mæ Herregud hvað Fjallið verður smartur með Kjéddlinguna sína gjörsamlega þarmahreinsaða og glútenlausa um jólin.

Frúin hlær skoho í betri bíl eftir svona kossaseið og kyngikraft!

abrakadabra

Fjallkonan

Fjallkonan kveður

upp í klof veður

í göldrum

í stígvélum

með velsög í hendi

íllræmt þetta kvendi

....

kominn tími á lúr

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góða nótt, elsku galdrakona!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.11.2007 kl. 22:43

2 identicon

hehe ... sömu kertin og ég notaði fyrir minn kall þegar hann varð 42 - á 40 ára afmælinu hreinlega bráðnaði kakan undan öllum kertunum. Svo gamlir þessir kallar. -og aftur, til hamingju með kallinn þinn.

Æðislegt að sjá myndirnar þínar í sínu rétta umhverfi.

Lísa (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:14

3 identicon

Hahaha, nornin mín  Meiriháttar kósý hjá þér nýja heimilið!
Farðu svo varlega með vélsögina, þú manst hún er bara fyrir sérstök tilefni!!!
Knús inn í nóttina á móti, góða nótt, sofðu rótt í alla nótt og dreymdu mótórfákinn flotta fína sem þú ætlar að þeysast á með Fjallinu

*RISAKREISTUKNÚS*

Lína (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:49

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Gamlir segiði stöllurÆtla ekki að segja þér hvað ég las í síðustu línu hjá Lísu í endinn......jú annars ég sá ekki MEÐ....En elsklingur til hamingju með fjallkallinn og fínu blómin og flottu myndirnar á veggjunum og arininn og allt.Sofðu vel og vaknaðu galvösk og hoppandi.

Solla Guðjóns, 14.11.2007 kl. 02:35

5 identicon

Yndislegar myndir af yndislegu húsi ... þið eruð öll yndisleg. 42 hamingjuóskir til Fjallsins og auðvitað kossar og knús

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 07:44

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Alltaf er hún góð færslan þín til hamingju með fjallið þitt elsku Þórdís og mikið áttu fallegt heimili. knús til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 14.11.2007 kl. 09:50

7 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Til hamingju með fjallið :)

Magnaður galdur frá magnaðri konu klikkar aldrei ;)

Vatnsberi Margrét, 14.11.2007 kl. 10:06

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Til hamingju með fjallið þitt galdrakona.

Svava frá Strandbergi , 14.11.2007 kl. 13:17

9 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hjartanlega til hamingju með Fjallið þitt. 

Frábær færsla að vanda, já og til hamingju með nýja staðinn, myndin þín nýtur sín vel. Og Fjallkonan er hreint augnayndi, hún er sko ekki í velúr.

Ég efast ekki um að þú eigir sæta drauma.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 14.11.2007 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband