15.11.2007 | 20:00
Eitthvað svo aum í hjartanu .....
Í lausu lofti
Ég kann að sprikkla af miklum krafti, stelst stundum til tunglsins og horfi yfir!
Djúpur, svartur og hlýr hjúpur faðmar flugorminn sem hverfur út í geiminn og snýr svo aftur heim, stundum fer þessi innanormur og óþekktarpúki eins nakinn og hún kom í heiminn en stundum í heimagerðum prjónafötum úr eingirni. Á ferðalaginu er svo margt að sjá og allir litir heimsins birtast í hugskoti hennar.
Ilmandi geimblóm, silfurlituð geimkorn sem galdra við snertingu sjáaldurs þíns. Í hjúpinu ljúfa eru tár þín gull og rómur þinn ljúfasti tónn. Þegar karlinn í tunglinu horfir til þín þá er tími til að koma sér heim. Á jörðina sem hefur aðlagað sig að lungum þínum, að tíma sem gamaldags lífsform þyrlar í hjörtum okkar.
Lífið er svo undursamlegt, með tár í auga sem snertir hvarm, með lífsleik hamingjunnar tökum við næsta skrefið. Hvað er líf án þess auðmjúka vatns heimsins.
Lífið er leikur sem fær okkur til að ferðast í tímanum og því rúmi sem umlykur oss. Ef allir gætu fundið ástina og hamingjuna. Ef allir fengju að finna kærleiksríka sorg og snert af raunverulegum lífsgæðum, lífsgæðin erum þú og ég. Einföld myndhverfing þess eiginleika að vera!
Elskum hvort annað, elskum það að vera og njótum tilverunnar sem ástin gefur okkur.
Með gullbrá á hvarmi óska ég þér vellíðunar, ástar og þess hreina sem hjartað okkar dregur.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:06 | Facebook
Athugasemdir
Það er mannbætandi að líta til þín og lesa síðuna þína. Takk fyrir mig yndisleg.
Marta B Helgadóttir, 15.11.2007 kl. 20:40
Solla Guðjóns, 15.11.2007 kl. 21:41
Við erum glöð á góðri stund og syngjum saman, stemmuna sem hann.....(með sínu lagi). Faðm-kveðjur til þín, lista- og lystarkona.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.11.2007 kl. 21:46
Einhvern samhljóm fann ég þarna...hafðu það gott elsku vinkona
Heiða Þórðar, 16.11.2007 kl. 00:39
Lísa (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.