Jóla Jóla 2008 ....

Heart.... Ég hætti við að gefa út englakortin í ár þar sem ég horfði fram á tímaleysi og fullt af allskonar afsökunum um það að ég ætti ekki að gera jólakort í ár!

Það var allt tilbúið en feit MARA hafði náð að tylla sér á mig og hvísla að mér allskyns orðum sem urðu til þess að ég lagði hendur í skaut og málið var dautt.  Fyrir utan að það er búið að vera mikið að gera og grafíski hönnuðurinn sem hefur aðstoðað mig týnd og tröllum gefin.

Fyrir nokkru sat ég og spjallaði við englana mína og þeir hvöttu mig til að hreinsa sálina og gera allavega jólakortin fyrir vini og ættingja.  Og, að sjálfsögðu hlusta ég á englaraddir!

Í fyrra hannaði ég og seldi jólakort sem báru heitið Geðveik Jól og voru í anda geðveikinnar.  Það sem ég hefði átt að gera með þessu korti var t.d. að styrkja Geðhjálp sem er virkilega þarfur félagsskapur yndislegs fólks eða einhvern sem hefði ekki slegið við nokkrum kúlum

2 af 5 tegundum Geðveikra Jóla

Geðveik Jól 3

Heart

Geðveik Jól 1

Í ár hef ég gert 2 kort sem bera heitið Jóla Jóla 2008 og eru í anda kortanna frá því í fyrra að því frábrugnu að nú er konan komin í klæðin ....

Mamma sagði mér að hennin þætti nú einum of að vera með þær á píkunni og það á henni berri.  Já, mamma hafði kanski rétt fyrir sér með það, eða hvað?

Það var ein kona sem sagði við mig að þessi kort væru hreint ógeðslegMér þótti mjög vænt um að viðbrögðin voru svona eðlislæg og að í þetta sinn hefði ég náð fram athygli sem ekki stóð á sér.  Mamma vinkonu minnar seldi kortin fyrir mig og fékk einmitt svipað frá einni vinkonu sinni og við það lét hún í minni pokann og sá að boðskapurinn var kanski ekki sá rétti.

Ég spyr stundum, hvar og hver er hinn rétti jóla andi, hvar og hvernig eru jólin.  Fyrir mér hafa jólin verið hátíð barnanna og þannig á að varðveita jólin en við erum alin upp með mismunandi áherslur sem vill gleymast í veraldlegum gæðum í stað þess að varðveita boðskap um fæðingu frelsarans.

Jóla Jóla 2008

 Jóla Jóla 2008 

Heart

Jóla Jóla 2008

Mér finst eiginlega vanta eitt stk. til viðbótar en það kemur í ljós.  Upplagið verður ekki stórt í ár enda hver að verða síðastur að láta prenta, skera og dúlla þessu rétta leið.

Stúlkurnar í ár eru öllu prúðari en í fyrra en innrætið er það sama.

Jólin koma hvort sem við erum hér eða þar.

Það er veisla hjá mér í kvöld og ég er á fullu að klára einn Krummaling ... elska krumman Heart!  Fyrir mér er Hrafninn eitthvað ómótstæðilegt.  Ég kasta mér út úr bíl á ferð ef ég sé flottan Hrafn og sem dæmi var ég hálf út úr bílnum að taka myndir upp í loftið.

Ég er búin að skrá hjá mér marga af mínum bloggvinum á jólakortalistann og ef þú vilt að ég bæti þér á listann sendu mér línu á zordis@zordis.com

Ætla að fara að setja skol í hárið (red hot chilly) og kantskera Friðrikku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst þessar myndir mjög góðar hjá þér það er ekkert af þeim þetta er nefnilega listaverk. Krummarnir eru í hrönnum hér.  Skemmtu þér í vel í veislunni þinni mín kæra Þórdís.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.11.2007 kl. 15:49

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæ ástin á eftir að lesa allt fyrir neða og vildi gjarnan senda þér póst útaf dottlu....en mín talva er bilupð og pósturinn í gunnu tölvu er eitthvað sem ég skil ekki eitthvað msn dæmi...

Hehe í fyrra sendi ég uppáhalds mínum jólakort frá þér......flottar myndir var umsögnin,,,,,,held þó að einhverjir hafi verið sammála mömmu þinni og enn öðrum fundist það ferlega kúl og flott..englakortið er það sem mér finnst falllegast......

Sko ef ég sendi kort eftir listakonuna Zordisi þá er það af því að ég met sá hinn sama mikils

Solla Guðjóns, 24.11.2007 kl. 16:11

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Já og jú nýju kortin eru líka mjög flott..komnar í kjólinn

Solla Guðjóns, 24.11.2007 kl. 16:12

4 identicon

Kortin eru öll falleg, ólík en öll falleg. Sammála þér að jólin eru hátíð barnanna.

Góða skemmtun í veislunni í kvöld  

Lísa (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 17:01

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

skemmtileg kort hjá þér.

takk fyrir falleg orð á blogginu mínu.

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 24.11.2007 kl. 17:12

6 Smámynd: Elín Björk

Mér finnst þær rosalega fínar jólakonurnar, geðveiku jólakortin eru líka geðveik og mjög svo viðeigandi í geðveikinni hér um jólin...

Knús til þín engilfríð

Elín Björk, 24.11.2007 kl. 19:47

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Veistu Þórdís, mér finnst öll þessi kort alveg hreint dásamleg. Það er einhver lífsþorsti, ásamt gleði, húmor og hlýju  sem endurspeglasdt í myndunum þínum. Ég vildi alveg eiga þær allar. Ég er ein af þeim sem bíð eftir myndlistaropnun þinni hér á klakanum. Nú opnar Katrín Snæhólm 1. des., þín mun verða saknað þar, þ.e.a.s. ef þú ekki bara drífur þig í aðventuheimsókn til gamla landsins?!

Ljúfar kveðjur til þín, vinkona.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.11.2007 kl. 11:07

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Geðveik kort !!! Troðfull af jólum...hefur virkilega enginn verið alsber á jólahátiðinni. Kom ekki Jésú allsnakinn inn í þennan geðveika heim?

Nakin jól hljóta bráðum að verða haldinn þar sem sannleikurinn einn ríkir í ríkinu og um allar hátíðar. Bara dásemdar upplifun á lólumá þinum jólakortum.

Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.11.2007 kl. 22:30

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Bara dásemdar upplifun á jólum ...átti þetta að vera.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.11.2007 kl. 22:31

10 identicon

Kortin þín eru öll flott, Geðveiku jólin og Jóla jóla ... - þú ert bara svo mikill lífsins kraftur, falleg sála með eindæmum.

Varðandi jólin ... þá fyrir mér eru þau barna- og fjölskylduhátíð. Jú, við höldum upp á fæðingu frelsarans og allt það, en fyrir mér eru jólin gleðihátíð fjölskyldunnar þar sem ekkert á að komast annað að en friður, snjór, fjölskyldan, matur og gleði, og auðvitað vinir og ættingjar. En ég hlakka til jólanna, því á þessu ári hef ég eignast svo góða vini í gegnum t.d. moggabloggið (þar á meðal þig) og það þýðir að ég er ríkari fyrir vikið. Ég fékk fjölskylduna mína til mín og það er einstakt ríkidæmi. Ég á enga peninga og minna en það, en ég er samt ríkur maður.

Hugarfarið mitt er fyrst og fremst þetta: jólin eru gleði og friður og samvera. 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 11:27

11 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jólakorin eru snilld...passaðu þig á að skera ekki Friðriku...hehe

Heiða Þórðar, 26.11.2007 kl. 15:17

12 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Fólk verður víst seint sammála um hvað sé flott og viðeigandi og hvað ekki. Þú þarft nú lítið að hafa áhyggjur af því; ef þú fílar það - þá fílar það örugglega einhver annar líka. Heimsyfirráð markaðsfræðilega séð er kannski ekki endilega takmarkið, er það nokkuð? :) Aðalmálið er víst bara að ´hífa, slaka, gera eitthvað´, helst gera eitthvað sem maður hefur gaman af, og þá kemur alltaf eitthvað út úr því - einhvern veginn ;)
(Svo á maður víst ekki að hugsa of mikið, heldur láta bara vaða: where there is a will - there´s a way ;) )

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.11.2007 kl. 21:18

13 Smámynd: Hugarfluga

Mér finnst þú svo mikil englastelpa, Þórdísin mín. Flissa og hlæ og tárast yfir færslunum þínum, krúttbomba! Don't ever change, woman! Flott kort ... flott flott flott .. berrössuð og fullklædd. Bara snilld.

Hugarfluga, 26.11.2007 kl. 22:16

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

"Stúlkurnar í ár eru öllu prúðari en í fyrra en innrætið er það sama" ...þú drepur mig skemmtilega kona mikið hló ég ha ha ha

Þú ert svo laus við allan tepruskap, það er frábært. 

Kortin þín eru æðilega flott bæði í fötum og án þeirra.

Marta B Helgadóttir, 27.11.2007 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband