27.11.2007 | 00:25
Segðu svo að mér leiðist ....
Hvaða máli myndi það svo sem skipta þótt að mér leiddist eitthvað.
Kona á fertugsaldri lætur sér leiðast.
Hún hefur í fórum sínum bráðfagra dóttur og prakkarason, þau heyra guðsorðin koma úr litlum goggum fjögurra kanarýfugla. Einn heitir Bíbí og er ættleiddur, svo er það Vanilla og litli bollufuglinn og appelsínuguli nýgæðingurinn sem heitir Fuego!
Konan er lánsöm, hún á jakka úr dauðri rollu, annars væri ég með væna flís af feitum sauð sprikklandi um mig alla, nema flísin væri undir tungubroddinum í bragðrýni.
Svo er það mæ big and bjútífúl MouNtAin sem ég elska út af öllum borðum. "Lets make love on the kichen table" .... thi hi hi ... bý vel þar sem eldhúsborðið mitt nýja er 2 x 1 mtr, við getum sko rúllað okkur upp úr hvort öðru ef það væri málið ......
En Krummlingurinn er á góðri siglingu í að öðlast nýtt líf, málaður út á alla kanta en þeir eru breiðir. Ég sé fram á að klára hann fljótlega en ég er að vinna nokkrar myndir fyrir skemmtilegt skemmtilegt sem er í mótum. Það sem er fætt í huganum, það sem er komið í myndform það sem tilheyrir hreyfingunni, hring eftir hring eftir hring! Hálfgerð hringavitleysa
Krummalingur er Akrýl á striga 20 x 50
Það má segja að þegar singalong dingalong innri veran situr og starir á stjörnurnar þá velji efnið ávallt það sama, leiti eftir svipuðu formi og faðmi öryggi þess sem þekking leiðir.
Þú hefur ávallt vitað en læðist með lífslínunni af sama hraða og áður. Við vitum svo margt samt ekkert. Við erum döpur í sinni en samt svo glöð. Ef við gætum farið í líkamann á röngunni, sýnt okkar innri mann og konu, sýnt okkur eða falið. Við höfum valið og stöndum og föllum með því.
Já dásamlega flókin eða einföld tilvera, var einhver að tala um að sér leiddist! Nei, held ekki .....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Að láta sér leiðast. 'Eg held eiginlega að það sé ekki hægt hér hjá mér. 'Eg get kallað það að leiðast, en ef vel er athugað þá er þetta yfirleitt með sannleika sagt "leti" hjá kleinunni. Verð ekki verkefnalaus hér nei. UMMMMMM....................
Langar i nýtt eldhúsborð...................
Inga Steina Joh, 27.11.2007 kl. 06:18
Ekki hægt að láta sér leiðast þegar kona á pensla og liti
Lísa (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 08:39
Eina sem mér leiðist núna er að hafa ekki stúdíó til að mála og setja í mynd nýju hugmyndina mina....sú er sérdeiliskrúttleg og datt bara ofan í höfuð mitt beinustu leið frá himnum. Fyrst þarf kona auðvitað að koma næstu sýningu úr hlaði og tka svo til henidnni að skapa nýtt.
Knús á borðstofuborðið þitt. fjallið og guðsorðandi kanarífuglana..
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 09:28
Mikið er ég hrifin af krummanum þínum.
Bryndís R (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 15:48
Flottur krumminn
Huld S. Ringsted, 27.11.2007 kl. 16:09
Knús á þig kæra vinkona, vona þú náir að mála frá þér "leiðist-ið"

Krummalingur er bara flottur!
Annað KnúS!
Elín (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 20:09
Þú gefur svo mikið af þér Þórdís mín ekki láta þér leiðast.
Kristín Katla Árnadóttir, 27.11.2007 kl. 20:51
Ég hef einu sinni á ævinni tilkynnt að mér leiddist. Þá sagði við mig kona: "Iss, hvað er að heyra þetta, gáfuðu fólki leiðist aldrei." Eftir það hefur mér aldrei leiðst. Ég var 10 ára.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.11.2007 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.