Að leiðast ....

Íslenskan er ein af þeim tungum sem mér er kærust nema kanski þegar ég tala tungum undir handleiðslu langömmu heitinnar, Vesturgötupæju, konan sem kom til mín í draumi og sagði mér fréttirnar, sem kom áleiðis kveðjum og skilaboðum ....

Að leiðast er eitt það rómantískasta sem ég geri, berfætt í snjónum.  Smelli einni frostrós á fjallsræturnar mínar og nýt útsýnis í allar áttir.  Að teyma hann áfram og sýna honum mosagróna sem tilheyrir fortíðinni en sýnir okkur hlutdeild framtíðarinnar.  Að leiðast saman í gegn um birtuna sem skín á okkur, úr öllum áttum.

Að leiðast er eitt af þeim orðum sem hefur tvíeflda merkingu og kýs ég rómantísku aðferðina.  Ég hef enga afsökun til að láta mér leiðast, get það einfaldlega ekki því það er of mikið á könnunni.  Ég var að enda við að gera verkefni sem var verulega spennandi.  Sit með hálfkláraða vatnslita mynd sem þarf að ljúka í kvöld .... en nú er miðnættið búið að hjúfra sig að hjartarótum mínum svo nú keppist ég við tímann, ná bjútíblundinum og brenna orku í kvenlegum hrotum mínum.

Á morgun verður varla utan á mér tutla, verð svo grönn, svo heil og fögur.  Stíg inn í daginn og verð rokinn á fund með miðaldra manni í smíðagalla klukkan 0800 .....

jarðaber
Lífið er hættulega gott

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jummí jarðaber með súkkulaði..alveg eins og færslurnar þínar gómsæta kona.  Svo girnilegar eitthvað alltaf hreint og beint. Ég er einmitt að fara í Hagkaup að kaupa jarðaber í kílóatali og ætli mar láti ekki súkkulaði fljóta með til að dífí......

Knús til þín frá íslenski flensu. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 11:08

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Talandi tungum þá girnist ég þetta jarðarber.

Þú ert alltaf sama yndið oggott að tutlurnar eru farnar........

Knúsuknús.

Solla Guðjóns, 28.11.2007 kl. 12:08

3 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Knús

Vatnsberi Margrét, 28.11.2007 kl. 12:53

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

jardaber med súkkuladi, nammi nam, thad er líka voda gott ad borda jardaber med bræddum lakkrís.

thú hljomar dularfull !

Ljós til thín kæra

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.11.2007 kl. 13:14

5 Smámynd: Margrét M

Margrét M, 28.11.2007 kl. 13:25

6 Smámynd: Sigrún

ískalt kampavín og súkkulaði húðu jaðaber algjörlega allsber hvað er betra

Sigrún, 28.11.2007 kl. 16:28

7 identicon

Ég verð allavega girnileg eftir þetta jarðarber - botoxgellan sjálf.

Lísa (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 17:05

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er yndisleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.11.2007 kl. 21:36

9 identicon

Góð, rétt og falleg sýn á tvíræða hluti - að leiðast ... auðvitað á maður að kjósa rómantísku aðferðina! En mikið rosalega slefaði ég þegar ég sá jarðaberið með drjúpandi súkkulaði. Virkilega falleg sjón ... mikil fegurð ... mikið slef ... mmmm.....

þú ert æði!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 23:25

10 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Jarðarberið er svo flott og freistandi...ummm.

Svei mér þá, eftir að maður les færslurnar þínar, leggur flensan endanlega á flótta.

Takk, já... lífið er hættulega gott.

Sóldís Fjóla 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 28.11.2007 kl. 23:26

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mikið ertu einstök Þórdís

Marta B Helgadóttir, 29.11.2007 kl. 08:41

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Vinsamlega taka þátt í vísindalegri könnun á síðunni minni ?? ( )

Marta B Helgadóttir, 29.11.2007 kl. 08:41

13 identicon

Sko... ég skal koma og valhoppa með þér "hönd í hönd" á kirkjutorginu hans heilags Mikaels  - Vonandi fyrr en síðar..... þá skulum við leiðast... en ekki láta okkur leiðast
Hjúts knús á ykkur familíuna

Björk (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband