Skynjun

Ilmur, snerting, bragð .... skynjun sérhver ólík, frá manni til manns!  Hring eftir hring áfram heldur sinn gang, lífið snart, kom og brá sér niður í hörund þitt, hörund mitt!

Skynjun sérhvers, upplifun, næmi elskulegi vinur hring eftir hring þar til hringavitleysu er náð!

Skjöldur

Skjöldur Akrýl á striga 25 x 35 

Þegar gaumur er gefinn þá hýrnar glaumur og augun opnast í andakt tilverunnar.  Sporður á disk, lífsins skjöldur er veitir stuðning alheims þess er þefar anga lífs.  Þess að vera!

Ung og feimin, stundum gleymin.  Vegna drengjanna sem stóðu hjá, biðu og vonuðu.  Hún handlék einn, náði tveim og fór svo heim ...........

Draumlind dís

Kvonfang Akrýl á striga 20 x 50

 

Hann sat og horfði, stirðum stórum bláum augum. 

Þau sögðu ekkert,

bara störðu.

Hún tók hann og brá honum í skaut.

hann naut,

bara naut.

Þau liðu sem eitt í samtímans glaum.

þau áðu,

ástarfaðm.

Dagur að kvöldi, nóttin er ung og Fjallið stendur styrkt á sínum enda beddans .....  kanski ég laumi baun undir koddan hans.  Kanski ég narti í baunina þegar hann snýr sér.  Kanski sofna ég út frá lestri góðra bóka.  Kanski geri ég eitthvað annað!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þín var saknað við opnun myndlistarsýningar Katrínar í gær. Myndirnar voru dásamlegar og sómdu sér vel í þessu gamla og yndislega húsi. Við hittumst þarna nokkrar og drukkum saman kakó með rjómafroðu við jólaundirspil. Tær unaður. Er svo ekki samsýning hjá ykkur nokkrum listakonum á næsta ári??

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.12.2007 kl. 23:08

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vildi að þú hefðir komist á opnunina hjá Katrínu. Það var gaman að sjá myndirnar hennar í 'eigin persónu' og hitta bloggvinkonurnar. Góða nótt.

Svava frá Strandbergi , 2.12.2007 kl. 23:41

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mikið hefði verið gaman að hitta þig í góðum hópi þarna á opnuninni hjá Katrínu í gær. Þetta var ljúft og fallegt eins og sómir henni vel.

Marta B Helgadóttir, 3.12.2007 kl. 01:18

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

fallegt blogg að vanda hjá þér og ævintýramyndir AlheimsLjós til þín steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.12.2007 kl. 13:17

5 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Hæ, þessir diskar eru nú ekkert til sölu á almennum markaði, þetta var bara tekið upp fyrir kórinn til að varðveita augnablikið. En það er minnsta málið að brenna eintak og senda, sendu mér bara heimilisfangið þitt á margrau@hi.is

Kveðja, Bidda 

Margrét Birna Auðunsdóttir, 3.12.2007 kl. 13:39

6 Smámynd: Margrét M

falleg færsla

Margrét M, 3.12.2007 kl. 14:17

7 Smámynd: Sigrún

aðventuknús

Sigrún, 3.12.2007 kl. 15:30

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

yndislega falleg færsla Þórdís mín eins og vant er hjá þér. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 3.12.2007 kl. 16:48

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Knús á.ig elskling........á eftir aðfara yfir margar færslur hjá þér en geri það þegar mín eigin maskína er komin í lag....

Solla Guðjóns, 4.12.2007 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband