7.12.2007 | 01:55
Fegurð
Að sjá fegurð er sjálfum þér bundið. Að lifa í fegurð á líka við um hvernig sjálfum þér er innan brjósts. Að taka á þeim raunheimi sem laðar sig að sálarhveli þínu.
Ég sat og horfði á hjartnæma mynd eftir skrudduskoðun, fann hvernig tárið kitlaði augnkrókinn og fann að hjartað mitt fann minna til sín. Á svona stundu metum við hlutina út frá mýkra sjónarmiði.
Ég vil alltaf vera mjúk, alltaf finna smugu, alltaf gefa séns .... Ég veit að alltaf er eind sem er ekki endilega til, eitthvað sem kemur kanski og horfir sposkt á þig og segir, ég er aldrei eitthvað sem þig hefur alltaf langað til að snerta!
Aldrei er hluti af óraunsæi þess að finna hvergi, lífið þarf meiri lit, fleiri regnbogaverur eins og þig. Þú þessi styrka og blíða sál sem staldrar við, sem nennir. Sólin hefur sinn gang og á ávallt stað í minningunni þar sem við drekkum í okkur orkuna. Ávallt er staður fyrir tilveruna, þar sem snjórinn er silki og vindurinn ljúfasta lín.
Fegurðin að sjá, að skynja og vera.
Hvað er fegurra en móðurást
Góða nótt árla morguns
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:48 | Facebook
Athugasemdir
Njóttu fegurðar dagsins með gleði :)
Vatnsberi Margrét, 7.12.2007 kl. 09:50
Það er satt sem þú ert að segja það er ekkert fegurra en móðurást. Eigðu góðan dag mín kæra Þórdís.
Kristín Katla Árnadóttir, 7.12.2007 kl. 09:55
Ætli ég teljist ekki vera mjúkur maður, maður tárast auðveldlega yfir hvers kyns fegurð - og slík tilfinning er virkilega ljúf.
Kossar og knús yfir hafið til þín og þinna
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 13:30
Fegurðin er í augunum.... Hún er augnablikið sem aldrei lýður hjá. Hún er hvar sem er en stundum sérðu hana ekki eða heyrir í henni fyrir sarginu í hausnum á þér.
Gott blogg hjá þér.. þú ert góður penni.
Brynjar Jóhannsson, 7.12.2007 kl. 17:02
Yndisleg skrif elsku Þórdís
Takk.
Marta B Helgadóttir, 8.12.2007 kl. 22:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.