Þegar allt stoppar ...

...... þegar tíminn tekur sér pásu og skilur þig eftir í hringrás iðju sem hvorki tekur né rekur.  Að liggja í ruggustól með gott í glasi, og horfa á tunglið skína og kitla vanga þinn.

Að dreypa af gullsins veigum og hvísla til hans, þess er ann!

Tónfögur jörðin er fæðir þig og klæðir liggur eins og slitti undir völtum stól er ruggar anda þínum í takt við draumkennt fjaður tilverunnar. 

Í stólnum bláa, með gull í hönd þig dreymir um löndin sem komu og fóru.  Tunglið er komið í hjarta þitt sem hættir að slá.  Ruggið heldur áfram og heimurinn mætir þér á ný, nokkrar krákur sitja og kroppa í sál þína og það er gott.  Það er gott að kroppa og kroppa þar til andinn vaknar og tekur rás ....

Vinir ad eilífu

Olía á striga ..... Vinir að eilífu

Elífðin er ekki bara nú eða þetta lífsskeið, eilífðin er þinn tími kæra sál.

Ég sit með 7 ára lífsins veru sem syngur í takt óperunnar er hljómar í litla tækinu þarna, tæknin er ekki mín megin enda eru milljónir annara snillinga sem tóku að sér tæknina.  Litla 7 ára veran mín er alls ekki lítil því hún er feiknarsál með bjarma sem tendrað gæti í heilu fjalli eða iðnaðarborg.

Svona morgnar eru það sem gefur lífinu gildi.  Mér finst of þögnin færa mér mesta innra gildið og á bak við tóna Emmu Sjaplin hvíla sálir sem njóta ........

Líf í lífi, með litum án lita, í líkama án hans og svo tökum flugið saman til ókunnugra vita.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

mikið er þetta fallegt sem þú segir um börnin þín. Mér Finns líka þögnin góð það er svo gott fá frið í hjartanu. þú ert yndislega góð sál Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2007 kl. 11:35

2 identicon

Mér finnst það yndislegt að sitja í kyrrð og hlusta á tónlist ... ég ferðast um alla heima þegar ég er í þannig ástandi. "Geimferðalangurinn" var t.d. að klárast núna hjá mér (í flutningi Frostrósa) og þau voru mörg tunglin sem flugu framhjá mér.

Knús og kossar til þín!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband