8.12.2007 | 22:36
Rökkrið sígur andann á veg ...
... að sitja í eldhúsinu og hlusta á raddir barnanna úr sjónvarpsherberginu og dundur hljóð úr húsinu er bara notaleg tilfinning.
Dagurinn í dag átti að fara í lestur og heilafimi en fór á annan veg, nefnilega í það að mála. Það var afslappandi og notalegt að hverfa í munstur barnsins er teiknar heilu heimana á pappírsblað og lifir sig inn í ævintýraheima.
Ég ætla að sýna ykkur myndina sem ég teiknaði en hún á að fara í tækifæriskortaflokkinn sem er að finna í myndaalbúminu mínu. Krummalingur verður líka með í næstu prentun sem og blómastelpan sem bíður fyllingu lita.
..... hugsaða það, sjá það og gera það ..... sannleikur í orði og á borði .....
Rósin 20 x 50 (akrýl á striga)
Svo er það bara lesturinn, kanski ég fari í hjónasængina og renni yfir textana sem hvísla þekkingunni inn litla krúttlega heilann minn. Svo, opna ég bókina og set hana undir koddann minn.
Góð hugmynd
Ég gerði tilraun á mér varðandi lestur og hef komist að því að ef ég les upphátt næ ég 100% innihaldinu en ef ég les í hljóði þarf ég oft að fletta upp og lesa aftur ..... ótrúlegt!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
BARA FLOTT MYND !!
Sigrún, 8.12.2007 kl. 22:48
Þú ert yndisleg elsku Þórdís mín allt það sem þú segir er svo fallegt. falleg mynd hjá þér eins og vant er. Ég á líka yndislega frænku sem er nemi hún er lista kona ég mun sýna þér hvað hún gerði það er svo fallegt líka hún var með sýningu í tvo daga þessi elska.Knús il þín
Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2007 kl. 23:04
Flott þessi mynd.
Svava frá Strandbergi , 8.12.2007 kl. 23:38
Myndin er ein af þeim falllegri og verður góð viðbót.
Krúsíknús
Solla Guðjóns, 9.12.2007 kl. 10:12
Æðisleg mynd hjá þér.
Og þessi hugmynd með að lesa upphátt er góð - spurning um að reyna þetta á stúlkurnar á heimilinu hjá mér, hmm?
Kærar kveðjur til þín!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 16:38
Æðisleg mynd. Er ótrúlega hrifin af myndunum þínum.
Bryndís R (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 23:04
Mjög falleg mynd snilldarkona
Marta B Helgadóttir, 9.12.2007 kl. 23:47
Þessi er æðisleg hjá þér skvíz!
Knús og gott gengi að klára bókarlesturinn sætust
Elín (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 15:33
áhugaverð tilraun ! það er ábyggilega það sama hjá mér.
Ljós til þín kæra kona
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 21:10
Hugarfluga, 10.12.2007 kl. 21:48
Falleg myndin þín :)
Dugnaður í námi hjá þér.
Vatnsberi Margrét, 11.12.2007 kl. 12:01
flott mynd
Margrét M, 11.12.2007 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.