12.12.2007 | 23:32
La suma de los días ...
... bók e. Isabel Allende ...
Ég ætla ekki að byrja fyrr en ég klára sumarfríið mitt. Já, ég sagði sumarfríið mitt!
Fór að leita að jólaandanum með fjölskyldunni minni, algjört "fracaso" misheppnuð tilraun því börnin mín sem ekki hafa munn byrjuðu að rífast.
Munnlausu börnin öskruðu á eyrnalausu móðurina sem sat og kraup fingrum sér í kjöltu. Stóra myndarlega dóttirinn notaði táknmál sem rauf skynsemi móðurinnar sem stökk út úr bílnum á ferð og skildi dautt holdið eftir við hlið Fjalllendunnar sem ók upp hlíðina. Drengurinn smaug á eftir og bað endurkomunnar því lífið væri ekki neitt án daggardropanna sem yllu með látum á þurrt malbikið. Móðirin ákvað að koma aftur og sá að jólaandinn hafði ákveðið að hinkra um set!
Á morgun kemur nýr dagur, er lag sem ég hef í huganum mínum, sit ein vakandi og það er liðið í nýjan dag þar sem nýjir svanir syngja lag. Uppþvottavélin er hætt að kjafta við mig og kyrrðin er með einsdæmum. Útkoma daganna kallar á konuna sem er lítil, hún er þreytt og þarf að hverfa í innra lag heimsins.
Í nótt leita ég svara og hver veit nema að það standi bambalús í eldhúsinu og bjóði góðan daginn, ef ég skildi nú vakna, bara ef.
Góða nótt og sofið fast í hausinn ykkar fagra
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:35 | Facebook
Athugasemdir
Æi þú ert yndisleg manneskja þú sem ert með svo fallegt hjarta góða nótt knús til þín.
Kristín Katla Árnadóttir, 13.12.2007 kl. 00:06
Segi copy paste á hana Kötlu hérna
Marta B Helgadóttir, 13.12.2007 kl. 00:59
Falleg orð frá yndislegri konu og yndisleg skrif um erfiðan dag hefði ekki á móti þessum hæfileika
Myndin er æðisleg og ekta jóla
Vatnsberi Margrét, 13.12.2007 kl. 11:43
Góðan dag yndið mitt.
Elskuleg börnin okkar fá allan tilfinningaskala til að virka
Solla Guðjóns, 13.12.2007 kl. 12:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.