18.12.2007 | 09:43
Jólaslæðan ....
Norður af Alicante er snjór í hlíðum fjallanna. Því er ekki að neita að himnabreiðan flytur kuldann nær og það er smá hrollur í mér. Út um eldhúsgluggann minn er Hawayrósin mín í blóma og jólarósin breiðir grænt beð sitt til himins. Það eru 50 km á milli mín og frostrósanna sem stíga af himnum. Ég sit örugg inni, með rjúkandi kaffibolla og hugleiði til ykkar.
Kertaljósið tendrað, það logar hjá mér fyrir alla þá sem eiga um sárt að binda.
Ég á heimboð í kvöld og við mæðgurnar fórum og keyptum kertaskreytingu sem er alveg við hæfi að koma með. Ég ætla að gera smá tilraun í föndri, leyfi ykkur að fylgjast með því ... tek mynd og sýni ykkur hvernig sem útkoman verður
Smá hlýja í hjartað okkar
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
góða skemmtun í heimboðinu ..ekki amalegt að vera með blómstrandi Havai rós um jólin
Margrét M, 18.12.2007 kl. 13:45
Fallegur arineldur. Skemmtið ykkur vel í kvöld.
Lísa (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 14:11
Góða skemmtun í kvöld.
Marta B Helgadóttir, 18.12.2007 kl. 16:46
Ferlega kósí stemning hjá ykkur í stofunni, jólin við arineldinn


Finn ég á eftir að sakna spænsku áramótanna.... finnst þau svo yndisleg, spurning um að finna eina sæta kirkju með góðum bjöllum og dós af vínberjum
Knús á þig yndislegust
Elena (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 17:55
Var að skoða síðustu færslu.
Falleg færsla og æðislegt "málverk" af ykkur. Konfektmoli þessi strákur þinn, svo mikið krútt á þessum aldri nýkomin með fullorðinstennurnar sínar.
AlvegAðKomaJólKnús
Lísa (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 22:33
Innlitsknús og koss á þig elskan.
Heiða Þórðar, 18.12.2007 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.