Jólaföndrið ....

... já, jólaföndrið gekk vonum framar!

Nýtt og spennandi efni, þegar ég var búin að mála og ná fram kaffiáhrifunum í myndefninu fór ég út í byggingarvörubúð til að kaupa snæri eins og afi átti alltaf út í skúr, þetta hráa og grófa band!

Ekkert til sem mig vantaði, en borinn átti Fjallið mitt heima svo ég tíndi lítið í körfuna í þeirri innkaupaferðinni.  Greinilega ekki verslunarskólagengin konan .....

 

Kaffikerling

Kaffikerling akrýl á þakflís

Þessi fer í jólaumbúðir og flýgur til Íslands í dag ... Ég vona svo sannarlega að viðkomandi njóti hennar og hún fái fínan stað í eldhúsi, þar sem kaffikarlar og konur skrafa um heima og geyma!

Jólaknús til ykkar allra ... ætla að mála á nokkrar þakflísar í dag og setja inn jafnóðum. 

Í gær kom "kall" í heimsókn, og sá þakflísina.  Hann hafði á orði að nú væri ég farin að gera eitthvað almennilegt.  Já honum leist vel á flísina og ætlar að redda mér fleirum.

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

Vá, þetta er flott flís væri til í að eiga svona fallega flís ..gerðu endilega fleiri

Margrét M, 19.12.2007 kl. 09:12

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég segi það sama og stelpurnar hér á undan, væri alveg til í svona flotta kaffiflís! Býð spennt eftir myndum af fleirum.

Jólakveðjur frá Akureyri

Huld S. Ringsted, 19.12.2007 kl. 10:39

3 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Tek undir með þeim hér að ofan gæsileg kaffiflís

Vatnsberi Margrét, 19.12.2007 kl. 11:42

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Ekkert smá flott!!!!!!! Sammála "kallinum" að þú ættir að gera fleiri flísar fegri

Solla Guðjóns, 19.12.2007 kl. 16:33

5 identicon

Ég er ósammála kallinum að því leiti að þú sért fyrst núna farin að gera eitthvað almennilegt... þú átt heilan helling af fallegum verkum liggjandi eftir þig!!

En flísin er svahakalega flott, og hér með legg ég inn pöntun á eina slíka

Knús á þig sætaspæta

Elín (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 17:04

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flott flís hjá þér !

AlheimsLjós til þín kæra kona

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.12.2007 kl. 21:12

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er svo flott hjá þér elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.12.2007 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband