Eplapæja ....

... með sykri og kanil, jafnvel vanilluís eða nýþeyttum "flöffý" rjóma!

Ég er búin að vera á fullu í þessa annars dásamlegu restum af sumarfríi.  Ég lenti í útkalli í dag og það setti svip sinn á daginn.  Ég átti eftir að pakka inn gjöfum og dóttir mín litli sigurvegarinn aðstoðaði og skrifaði á litlu kortin. 

Allt heppnaðist þetta nú að lokum og jólagjafirnar eru að fljúga yfir hafið í þessum töluðu orðum!

Dóttlan mín var að byðja mig um að baka eitthvað því það væri svo gaman.  Ég spurði hana hvað Ikea smákökurnar væru að gera hérna ef það ætti að baka líka???  Æj, mamma það er bara svo gaman.  Já, gaman svo það er spurning að opna jólglöggið sem er áfengislaust og bjóða börnunum og okkur fullorðnu upp á smá glögg og baka eitthvert hnossgæti!

Ekki veitir af eftir þennan stressdag (svona dagur sem þú missir af öllu .... ferð út úr húsi til að aðstoða aðra og gleymir húslyklinum - ætlar svo að redda málunum með að hringja í Fjallið og ert batteríslaus - kemur á síðustu stundu til að kaupa jólagjöfina handa mömmu þinni og allt er búið - bíta bara á jaxlinn og finna upp á öðru .......)  Er komin með þvílíka vöðvabólgu að ég þarf enga stera til að ná hnykklum á herðarnar ...............

En elskurnar mínar ég ætla að sýna ykkur "Eplapæju" sem er í flísaseríunni minni nýju.

Eplapæja

Eplapæja akrýl á flís (ca.40 x 20)

Mesta kvalræðið er að bora göt á flísina en sonur minn sagði "mamma þetta eru rosaleg læti í þér"  Hann á sem sagt hávaðasama móður og sennilega hef ég ætíð verið það í svona föndur fjöri.  Hver man ekki eftir því er ég hélt heilli blokk andvaka því ég var að smíða ......  Gasalega sniðug!  Hélt áfram undir 0600 um morgunin með kodda undir barði og allt svaka "smúð" ....

Vona að þið séuð í rólegheitunum að njóta hvors annars.  Ég er í rólegheitum, sit ein í eldhúsinu og ætla að halda áfram að mála fyrst ég er í stuði. 

Ástin er eitt það fallegasta sem til er, ég vona að þú eigir nóg af henni

Heart
Já, ég verð að monntast aðeins, Íris Hadda dóttir mín, vann myndlistarkeppni skólanna og var jólamyndin hennar valin og send á jólakorti til allra íbúa San Miguel ....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

til hamingju með dóttirina ...  eplapæjan er rosa flott

Margrét M, 20.12.2007 kl. 08:51

2 identicon

Sæl mín kæra. 

Til hamingju með dótturina, eins og sag er "eplið fellur ekki langt frá eikinni" eða eitthvað svoleiðis.  Flísamyndirnar eru frábærar hjá þér.  Meiri háttar.  Gangi þér allt í haginn og takk fyrir allt.  Allir í Hosilo biðja að heilsa  kv lalli

Lárus Kjartansson (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 09:01

3 Smámynd: Ólafur fannberg

til lukku með dótturinna

Ólafur fannberg, 20.12.2007 kl. 09:06

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með elsku telpuna þína en eplakakan er flott. Mér finnst allir stressaðir hjarna heima, enda að koma jól. Hafðu það gott um jólin og fjölskylda þín líka Þórdís mín. Og gleðileg Jól.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.12.2007 kl. 09:57

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með hana, það er gott að skapa !

Ljós tl þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.12.2007 kl. 11:16

6 identicon

Skilaðu hamingjuóskum til Írisar Höddu. Og til hamingju með stelpuna þína. Hæfileikarík stelpa hún Íris

Vá, flottar flísar. Ég ætla sko að kaupa mér mynd á flís, þegar og ef þær koma í sölu. Hlakka til að fylgjast með þessari seríu ´

KnÚs á ykkur mæðgur.

Lísa (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 13:43

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er sko eplapæja..Þú ert að gera stórglæsileg verk þarna

Til hamingju með Írisi Höddu.....kemur ekki á óvart ..........flott stelpan þín......Þú mátt sko vera stolt af henni...Knúsaðu hana frá mér.

og litli gaurinn....algert yndi

Solla Guðjóns, 21.12.2007 kl. 02:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband