Aðfangadagur

Eins og ekkert hafi í skorist kom dagurinn á sínum rétta tíma, birtan kitlaði nefbroddinn og lítil hönd snerti höku móður sinnar.  Litli krúttmolinn hafði skriðið í mömmuból rétt undir morgun!

Jólarósir syngja falleg lög á meðan kaffið rýkur á könnunni.  Bóndinn liggur enn í bólinu á meðan mamma raular heims um ból .... börnin horfa á sjónvarpsdagskránna og nú bíð ég eftir að alheimsFjallið vakni svo við komumst út á stjá.  Þurfum að viðra okkur smá .....

Ég legg mína sálu í þína
Ég legg mína sálu í þína

Aðfangadagur er í raun eins og hver annar í hjörtum heimilismanna.  Íslensku jólin eru nokkuð frábrugðin en fögnuður hinn sami.  Fæðing meistar Jesú (datt ósjálfrátt í hug Megas ...... wonder why)!  þegar líða tekur á daginn þá höldum við að heimili tengdaforeldra minna þar sem Frúin á bænum verður búin að gera ofursoð með vænni kjötbollu er vandlega er sett á djúpa skál.  Að auki er fleytifullt hlaðborð af sjávarmeti, rækjur, krabbaklær, þurrkuð hrogn, þurrkaður saltfiskur, skelfiskur steiktur á pönnu.  Ég er örugglega að gleyma einhverju en að auki, þurrkaðir ávextir, jólasvipurinn og kærleikurinn, gítarspil eftir kvöldmatinn, börnin leika sér ljúft á meðan við þessi fullorðnu skröfum og dreypum á spænsku turron-i sem er jólanammið okkar .....

Á miðnætti langar okkur að fara í messu er nefnist "misa de gallo", hlusta á gamlan prest kyrja en mest um vert að snerta friðinn í sálinni, biðja almáttugan að snerta við þeim sem eiga um sárt að binda, fyrir þeim sem berjast hetjulega fyrir lífi sínu, fyrir öllum dýrum og öllum mönnum sem taka þátt í spili lífsins.  Ég ætla að hreinsa sálina aðeins eftir ársuppsöfnun af allskyns sálarskít!  Ég tek fram að ég er ekki kaþólikki og fer með mínar bænir og mæti sennilega fyrir rétti hjá lyklapétri þegar þar að kemur, á meðan spænska fjölskyldan mín flýgur inn á milli manna ..... hehe

Þegar allt kemur til alls, enn einn dagurinn sem við njótum af réttlæti heims og manna.

Kæru vinir, töfrum í sameiningu, ást og frið til dýra og manna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Gerða Kristjáns, 24.12.2007 kl. 11:21

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir fallega kveðju nýja vinkona mín. Ást og frið sendi ég líka til þín og þinna. Njótið frídaganna. Innileg kveðja.

       3D Santa       3D Santa

Ásdís Sigurðardóttir, 24.12.2007 kl. 12:08

3 Smámynd: Elín Björk

Gleðileg jól elsku bestasta vinkonan mín, knús og kossar í bak og fyrir á þig og familíuna

Elín Björk, 24.12.2007 kl. 12:26

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir fallega jólakortið elsku Þórdís mín og svo sannarlega sendi ég líka Ást

og frið til þín og fjölskylduna. Gleðileg jól elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.12.2007 kl. 13:54

5 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Gleðileg jól

Vatnsberi Margrét, 24.12.2007 kl. 15:05

6 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert dásamleg! Guð veri með ykkur.

Hugarfluga, 24.12.2007 kl. 15:13

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Jólaknús á þig

Marta B Helgadóttir, 25.12.2007 kl. 16:07

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú ert alltaf jafn hlí og findin.........( meistari Megaselska þig....

Solla Guðjóns, 25.12.2007 kl. 21:31

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta eru munnvatnsaukandi og mannbætandi lýsingar....!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.12.2007 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband