25.12.2007 | 20:02
Jólin okkar .....
Þann 24. des fórum við mæðgur í smá búðarráp! Komum heim íþyngdar vörum jólasveinssins ... ( ekki varir hans heldur afurðir, bara svo það sé á hreinu ), þegar heim kom fórum við að huga að kvöldklæðnaði og gera okkur til farar.
Strákarnir höfðu farið út að hjóla, bærinn okkar var fullur af fólki sem sat á veitingarstöðum bæjarins, dreypandi á einhverju léttu, fólk í búðarrápi og fólk sem var að eyða deginum. Hátíðleikinn með öðrum hætti sem alveg má venjast.
Fjölskylda mannsins míns hefur hins vegar hátíðlega stund og við borðum saman kvöldmat í tilefni dagsins og spilum svo jólalög á gítarinn og tröllum öll með. Á miðnætti fórum við í messu og nutum okkar í kapellunni. Það var gott að flögra í annan heim og hlusta á nunnurnar syngja, hlusta á prestinn góla og líða með söfnuði í andakt trúar sinnar.
Fólkið í röðinni fyrir aftan okkur kunni alla texta og ég varð ósjálfrátt örugg, vissi að hvergi slægi feilslag í texta frá okkar röðum ..... Ég var komin á flug og fann sálarilinn og naut þess að vera.
Miðnæturmessa í borginni Orihuela á Suðurhluta Spánar
Jóladagur hefur verið notalegur, við fórum á nýjan leik til tengdó og áttum góða stund með fjölskyldunni. Það er stórkostlegt að ná til fólks og eiga vel saman, er hægt að óska sér betra.
Tengdamóðir mín Carmen og málverk eftir tengdamóður hennar .....
Smá jólajóla nart
Stillt og prúð, langfallegust
Rafmagnið var að stríða okkur ....
Við áttum notalega stund og það sem stóð upp úr var góði félagsskapurinn, miðnæturmessan og það að geta upplifað enn ein jólin. Börnin fóru að sofa um leið og heim var komið þar sem jólasveinninn átti að mæta eldsnemma að morgni 25 des.
já ..... og við foreldrarnir vorum rifin upp, engin miskun!
Jólatréð var ekki með marga pakka þar sem að pósthús bæjarins heldur verndarhendi yfir gersemum. Spænsku jólin koma með sínum glæstu konungum þann 5janúar og að morgni 6jan á þrettándanum skilja þeir eftir kveðju til barnanna ...... held að prúðu börnin mín geti ekki kvartað að fá brot af því besta frá báðum foreldrum. Jólin eru svo margt annað en pakkar og puðr þótt það sé vissulega gaman af gjöfum og gersemum, ekki misskilja!
Vona að þið getið notið stundarinnar öll sem eitt, sameinumst í bæn fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. Guð er með okkur öllum, gleiðileg jól!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hvað héð tengdamanna tengdamömmu þinnar, man eftir þessu málverki frá því ég var lítil, réttara sagt eftirprentun, þetta er mjög frægt listaverk er það ekki rétt hjá mér?? Kær kveðja til ykkar vina mín og friðsæl hefur jólastundi verið, yndislegt.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.12.2007 kl. 21:22
Hehe já ég man líka eftir þessari eftirprentun þegar ég var voða ung amma mín átti hana og aðra mjög svipaða......
Yndislegur dagur hjá ykkur og yndisfríð krílin þín
Ég sameinst öllum í bæn.
JÓLAKNÚS Á YKKUR
Solla Guðjóns, 25.12.2007 kl. 21:36
Gleðileg jól til ykkar allra og STÓRT jólaknús
Bryndís R (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 00:01
Eigðu yndisleg jól, mín kæra. Yndisleg jól handa ynsislegri konu
Lilja (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 00:45
.... yndislegri, átti þetta að vera
Lilja (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 00:46
Yndisleg jól hjá ykkur, enda yndislegt fólk
Gleðilega hátíð til ykkar með kossum og knúsum frá Akureyri! 
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 02:15
Gleðileg jól til ykkar, kæra fjölskylda. Fallegar myndir af ykkur og yndisleg kirkjan ykkar.
Jólaknús
Lísa (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 03:07
Og takk fyrir jólakveðjuna. (Var að opna póstinn). Falleg myndin þín.
Lísa (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 03:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.