Trilljónir ... Skrilljónadraumar .....

Draumar barna minna!

myndir sumar 2007

Mynd tekin í sumar í kvöldhitanum

Dóttir mín hefur átt þátt í því að vinningar þjóti heim í hús og ekki bara okkar.  Þegar við mæðgurnar unnum 100.000 ísl í Jokernum á sínum tíma, varð það til þess að líf okkar breyttir til muna.  Íris mín Hadda taldi í þaula einhverjar tölur sem ég skeytti litlu um þar til móðir mín skrifaði þær niður á blað og sagði "notaðu þetta, einhver er ástæðan fyrir þessari þulu" ..... Við unnum svo miklu meira en sex núll með einum fyrir framan.  Við fengum tækifæri sem við stukkum á.

Við seldum allt okkar og náðum að safna smá upphæð sem var nú svossum ekki há en hún var okkur næg til að prófa að þenja vængi tækifæranna!  Vinkona mín Lísa skvísa fór með mér í kolaportið og við seldum gamla kaffibolla, föndur og mér er minnistætt þegar hún sagði við konu sem var að skoða barnslega prinisessuteikningu. Kauptu hana því hún á eftir að meika það!  Eitthvað á þessa leið var samtalið og konan keypti teikninguna á smotterý.

krúttmolar
tíst og litlir vængir

Liður í búferlaflutningum Fjallkonunnar var vel á veg kominn og nokkrir skjálftar voru í hryggjarlínu suðurlandsundirlendis sem var bara gaman.  Undirbúningurinn tók 2 mánuði, spliss og bang, við mæðgur sátum í flugvél á leiðinni til Amsterdam og nú eru liðin rétt rúmlega 9 ár!

Litla krúttið mitt var alsæl að fara með mömmu sinni (vissi ekkert betur) hrikalega krúttaður krakki og móðir hennar prúð (hehe) ......  Spánn tók á móti okkur með sín hvora ferðatöskuna og fé til að lifa af næstu 6 mánuði.  Þessir 6 mánuðir eru orðnir að 9 árum og ekki skortir okkur neitt, ekkert sem gæti spillt fyrir okkur verunni.  Við erum búnar að næla okkur í Risastórt Fjall og lítinn júnior og búum saman í lítilli höll þar sem draumar verða að veruleika.

Trilljónir .... Skrilljónir happadrauma rata inn í höfuð barna minna.  Við erum á leiðinni að versla jólahappadrætti þar sem litlu krúttin mín hafa dreymt fyrir happinu.  Það eru margir sem gætu þegið aðstoð og ef leiðin er í gegn um happadrauma barna minna þá tökum við ábyrgð.

Stundum er hollt og gott að stökkva í stað þess að hrökkva

og stundum ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

Gleðiliega hátið á Spáni

Ólafur fannberg, 26.12.2007 kl. 12:02

2 identicon

Æðisleg færsla hjá þér. Það er alveg rétt að stundum er betra að stökkva í stað að hrökkva. Sjáðu hvert það færði ykkur mæðgurnar. Bara æðislegt

Bryndís R (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 13:22

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Á Spáaaáni........

Lísan okkar á það sannarlega til að hitta í mark eins og þula Írisar.

Stökktu.....megi það færa ykkur góðan feng.

Solla Guðjóns, 26.12.2007 kl. 16:52

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært að heyra að þú skyldir framkvæma drauma þína. Gaman að allt skuli ganga vel.  Kær kveðja og þú mátt senda mér talnarunu   Fuzzy Dice Fuzzy Dice

Ásdís Sigurðardóttir, 26.12.2007 kl. 18:24

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

svona geta smá hlutir breitt lífi manns, allt hangir saman í einum endalausum þræði.

falleg frásögn kæra zoedis.

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.12.2007 kl. 09:05

6 identicon

Ahh.. æðisleg saga um ferðalag ykkar á vit ævintýranna.  Vinningur sem sannarlega átti að koma.

Gleðileg jól, yndisleg, og vona að fallega fjölskyldan þín hafi það líka yndislegt yfir hátíðirnar.

Kveðja, Srós

Srósin (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 10:46

7 Smámynd: Margrét M

gleðilega rest

Margrét M, 27.12.2007 kl. 11:06

8 identicon

Að taka áhættu er eitthvað sem maður á að gera. Hrökkva eða stökkva, djúpa eða grunna laugin, hægri eða vinstri ... eða jafnvel beint áfram ... framtíðin er óráðin (segir sá sem er forlagatrúar ) ... en á leiðinni sem við förum, og í gegnum áhætturnar og tækifærin sem við tökum - þá gerist margt svo skemmtilegt stundum. Það var t.d. happaleið hjá mér svo sannarlega að gerast moggabloggari og eignast svona ótrúlega góða vini, eins og þig.

Þið eruð happamæðgur, sannarlega. Og þú ert yndisleg fyrirmynd. Kærar kveðjur frá snjóugri Akureyrinni!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 14:29

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það er satt þið eru happamæðgur mér finnst svo gott að lesa bloggið þitt elsku Þórdís mín knús til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.12.2007 kl. 18:05

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Knús til þín happamamma, myndarleg börn.

Marta B Helgadóttir, 27.12.2007 kl. 18:39

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndisleg saga. Fjallkonan og fjallið hennar, börnin þeirra og allir dansa í höllinni.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.12.2007 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband