28.12.2007 | 22:38
Þegar allt kemur ....
...margfallt og þúsundfallt þá óska ég viðkomandi bara til hamingju!
Fréttir morgundagsins höfðu áhrif á okkur en þar sem sjónhverfing og "dálítið" hafa með allt að gera, skirpi ég í lófana og segi ..... höhhh þetta hefur engin áhrif!
1000 þrasandi kerlingar og tíuþúsund tuðandi karlar gætu ekki haft mig úr stað.
Já, fréttir dagsins eru nú fallinn skuggi sem birtan framkallaði. Liðið inn í fortíð og nú er að njóta þess nýja sem hugarflug og fiðrildi skapa í nýjum sköpum meistarans.

Já það veit engin að ég er búin að setja fræ í galdur
En lífið er stundum bara svona, stundum þannig að við erum ekki tilbúin nema að fá akkúrat þetta. Lífið er mitt tækifæri! Ég kom hingað til þess að lifa það og ég veit að þú vilt lifa það með mér .....
Lífið er salíbuna, uppfull af dásemdartækifærum. Við veljum hvort við stöndum í geislanum eða skugganum eða fáum okkur líf með hvoru tveggja, sitt lífið af hverju. Lífið er galdur, sá sem við upplifum saman!
Ég flutti með mér blómálfana í húsið mitt, þeir sem vildu ekki koma með urðu eftir en þeir sem komu bjuggu blóm í jukkunni til að ferðast. Ég hef ekki talað nógu mikið við vini mína undanfarið en ég segi ykkur satt að á síðasta degi ársins færi ég þeim ljós hins hvíta og bið fyrir velvild og kærleika í heiminn okkar. Heimur sem er okkar allra ... elskurnar mínar lífið er sá litur sem við kjósum!
Gulur, Rauður, Grænn og Blár, pínu Fjólublár, Hvítur og Svartur allir í réttum tón ljóssins, þeirrar birtu sem okkur er ætluð. Okkur er að sjálfsögðu ætlað það sem við treystum okkur til, þess sem við erum megnug, þess sem vinnur með okkur úr öðrum heimi.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:01 | Facebook
Athugasemdir
Mikið er þetta fallegt hjá þér þú jákvæðis drottning sem ég veit um sem er til í lífinu þú ert dásamleg elsku Þórdís mín

nú er að vera sprigja mikið núna í kvöld.Þá meina ég bomburog rakkéttur.
Kristín Katla Árnadóttir, 28.12.2007 kl. 23:06
Fallegt hjá þér elskið mitt, mamma sagði alltaf, gulur, rauður, grænn og blár, svatur, hvítur og fjólublár, brúnn og grár.
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 23:23
Takk fyrir þetta
Marta B Helgadóttir, 29.12.2007 kl. 01:13
Er ekki lífið það sem gerist þegar maður er að plana annað?
Yndislegar og hjartahlýjar kveðjur til þín og þinna, elsku Zordis.
Það hefur verið svo frábært og yndislegt að kynnast þér og þekkja þig þetta árið, og ég hlakka svo til næstu ára í vinskap okkar.
Gleðilega rest af árinu sem er að líða, gleðilegt nýtt ár líka - en mig grunar að við eigum eftir að bloggast smá áður en 2008 rennur upp ...
Kossar og knús engu að síður
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 10:41
Hver er sá veggur víður og hár,
vænum skreyttur röndum.
Gulur, rauður, grænn og blár
gerður af Meistara höndum ?
Svava frá Strandbergi , 29.12.2007 kl. 17:59
Gleðilegt ár Zordis og takk fyrir það sem er á síðasta snúningi. Megi lukkan vera með þér og þínum um alla framtíð.
Listagyðjan verður örugglega með þér, hér eftir sem hingað til.
Börnin þín eru yndisleg og ég efast ekki eina stund um að Fjallið þitt er frábært lika. Gleðilegt ár, enn og aftur.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 29.12.2007 kl. 18:24
Hæ snúllan mín, fallegt hjartalag skrifar fallegar línur, þú ert æði!

Knúsísmús
P.S. Ágúst söng svona "Gulur, rauður, grænn og blár, svartur, hvítur, fjólublár. Brúnn bleikur banani, appelsína talandi. Gulur, rauður, grænn og blár, svartur, hvítur, fjólublár."
Lína pína (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 20:54
Kæra Zordis
Gleðileg áramót til þín og þinna. vonandi farið þið í rólegheitum inn í hið nýja ár
Mahatma Gandhi sagði svo rétt Kærleikurinn er sterkasta aflið sem til er í heiminum og jafnframt hið hógværasta sem unnt er að hugsa sér.
Megir þú vera í Kærleikanum nú og alltaf.
AlheimsKærleikur til þín
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 14:04
endalust gaman að koma lesa þig
þú ert yndisleg
elska þig knús og kossar !!
Sigrún, 30.12.2007 kl. 18:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.