Væna flís af feitum sauð ....

eða var það þakflísin ...

Svei mér þá!  Ég fór í leiðangur að leita að almennilegum þakflísum og sá hrikalega flottir rustic flísar sem voru hjúts, allt of stórar og þungar!  Keypti samt eina til að prófa og ætli ég máli bara ekki kynfæri á hana ( eða bara tækifæri ) ...  Setji flísina svo fyrir ofan hjónasængina, signa mig svo inn í svefninn. 

Allavega þá er ég komin heim með mjög áþekkar flísar en þó nokkuð hrjúfari sem koma bara vel út.  Æfingin skapar meistarann og þetta verður bara spennandi.  Er þegar byrjuð og líklegt er að ég spæni pennslana mína á þessu en það er svo sem ekkert átakalaust í þessum heimi, hvort sem það er í leik eða starfi.

Á nýju ári sé ég hlutina í grænum eða vínrauðum tón, gætu vel verið vínberjaáhrifin InLove segið svo að vínber séu ekki góð.  Rándýru jarðarberin eru enn í ísskápnum og þetta er alfarið spurning að ráðast í að gera súkkulaðitertuna og skreyta ber og með berjum.

Áramótin komu í sinni þægð og hægð, við áttum notalega kvöldstund, borðuðum góðan mat settum á okkur hárkollur og blésum í ílur ..... þegar klukkan var tekin að halla í miðnætti héldum við upp á kirkjutorg og gommuðum í okkur vínber (eitt við hvern klukknahljóm) og skáluðum í bleiku kampavíni. 

heimabrugg ....
Áramótakampavínið að fæðast

Sérhver er siðurinn í hverju landinu, dóttir mín setti pening undir matardiskinn og gullhring í kampavínsglasið (óáfengt barnakampavín) sem á að boða gæfu og meiri gæfu.  Spurning hvernig þetta endar allt saman.

Það stefnir allt í hangikjöt og uppstúf (kann ekki að gera uppstúf, en kann samt helling) ora baunir og rauðkál .... flatkökur og saltkökur (í stað laufabrauðs) ......  Já jólin eru ekki búin enn!

Ég veit að nýja árið hefur upp á svo margt að bjóða en það er með það eins og annað í þessu lífi.  Við móttökum og gefum í takt við tækifærin.  Síðasta ár var ótrúlegt og gjöfult, ég veit að þetta ár verður ekki síður notalegt en einhverjar fórnir þurfum við að færa sem er eðlilegt.

Við rýmum fyrir því nýja hvort sem það er veraldlegt eða andlegt.  Það eina sem við megum ekki gleyma og það er náungakærleikurinn og það að vera til staðar fyrir þá sem þurfa.

Réttum hjálparhönd

Stundum þykir okkur lítið til þess koma sem við gerum en það er oft margsverðugt í augum annara.  Ein lítil hjálparhönd getur veitt svo mikið og gefið svo margt.  Verum á varðbergi og gefum eina litla hjálparhönd til þeirra sem mest þurfa.

Göngum glöð inn í nýja árið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Gleðilegt ár aftur elskling.

Ekki ónýtt að fá svona góðan og falllegan kvatnigar pistil í árbyrjun.Þú ert algert yndi

Ég gekk glöð inn í nýja árið

Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 21:38

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta hefur verið öðruvísi, en gaman engu að síður, nokkuð ljóst. Vildi að ég hefði ekki lesið um matinn er í aðhaldi  :):)  kær kveðja og flísaknús til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 23:03

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg ár engill minn alltaf gott að lesa bloggið þitt undir svefninn mín ljúfustu

Kristín Katla Árnadóttir, 2.1.2008 kl. 23:08

4 Smámynd: Lena pena

Hæ sætust..falleg færsla eins og alltaf. Annars vildi ég bara óska þér gleðilegs árs og takk fyrir góða bloggvináttu á síðasta ári

Lena pena, 2.1.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Inga Steina Joh

Til hamingju með daginn, dúllan mín!  

Inga Steina Joh, 3.1.2008 kl. 10:15

6 Smámynd: Inga Steina Joh

Pínu snemma í því, gleymdi því allavega ekki.

Inga Steina Joh, 3.1.2008 kl. 10:18

7 identicon

Hola chica! Hlakka til að sjá afraksturinn á nýju flísunum, sér í lagi færin!!
Knús á þig!

Elín (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband