3.1.2008 | 21:01
Flikk flakk heljarstökk ......
Nýjar hugmyndir fæðast á meðan aðrar renna í sandinn eins og sporin sem við tókum saman. Sjávarniðurinn færir okkur nýjar og ferskar hugmyndir sem eru jafn nýjar og þær sem aldrei voru nýttar.
Dagurinn í dag sá sem hefur haldið ferskleika í sál minni, síðasti dagurinn í árinu mínu.
Í nótt slapp ég undan ógnarhendi morðingja, í nótt synti ég með höfrungum sjávar og voru hendur mínar þúsund silfraðir fiskar. Í nótt gerði ég svo margt undursamlegt!

Undir vatni Olía á striga 20 x 20
Mér líður eiginlega eins og þessari glæsilegu hafmeyju sem vinkona mín Björkin málaði, er svo mikil hafpæja þessa dagana! Þeir sem hafa áhuga á myndlist ættu að kíkja alveg óhikað á vinkonu mína www.bjorkin.com ..... Njótið elskurnar mínar!
En, svona í upphafi þá var kommentað við eina mynd sem mig langaði alltaf að fjalla um. Hér ræðir konuna með kisuna sína. Konan elskar að vera hún sjálf og býr ekki yfir neinum höftum. Konan er hannyrðakona og nýtur lífsins til fullnustu, hún er ástin sjálf.
Hér er þessi elska og Síló situr spakur á meðan húsmóðirin mundar hnykilinn.
Fjallið sagði, "Fullgróf þessi" jú honum fanst nokkuð djarft af mér að teikna konu með grænan víbrador í hendi. Eða eins og einn sem kom við og sagði; örfhennt .... Það góða við myndlistina er að við sjáum allt það sem við viljum út úr því sem okkur birtist.
Í sakleysi mínu sat ég og teiknaði minningu um kisuling og garnhnykil sem var orðið að æsilegum kynlífsleik, þar sem köttur var í kerfi orkumikils leikfélaga og innanstokksmunir litagleði leiksins.
Ég er á því að lífið sé það allra notalegasta og mæ god, hvað verð ég í næsta lífi ......
Flikk flakka heljarstökk, gargandi striginn æpir á mig og ég sé fram á að næturhúminn muni færa mig fjær í heim þess tóma sem telur upp litina, þess sem hvíslar ljóðin í innsta hvel hugans.
Góða nótt elskurnar mínar ......
Ég mun vaka á meðan nóttin tekur ykkur á vald sitt ....
Flikk flakk heljarstökk
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hæ yndislega þú.
Flott mynd hjá Elínu og vert að skoða.
Minningar um spor í sandinn
í Englavík...víkinni sem þú gafst nafn.
Sko núna er ég í hláturskasti algerlega og gjörsamlega.......Það sem Fjallið sagði.....hef nú ekki séð þetta svona.......eins og þú veist príða fjórar myndir úr þessari seríu veggina mína......og hafa þær vakið athygli gesta og gangandi.....mikill erill unglinga er á þessum bæ og segi ég þeim hiklaust að þetta séu mynir frá fyrirsætuferli mínum.................LOL
Í næsta lífi spurning.....vona að mitt næsta verði ekki án þín.
Góða nótt og dreyni þig skemmtilega
Solla Guðjóns, 3.1.2008 kl. 23:35
Djö ertu flott og cool....hér sit ég með nýlitað hár og þori engu. Safna kjarki fyrir svona myndaröð sem segir það sem er.
Þú ert mitt uppáhalds. Og myndirnar þínar einstaklega fallega sannar.
Knús.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.1.2008 kl. 01:13
Þórdís mín þú ert alveg einstök.
Takk fyrir þitt ævinlega skemmtilega hugarflug, það er endurnærandi að lita við hjá þér og fljóta með í flaumnum um stund
Marta B Helgadóttir, 4.1.2008 kl. 01:55
Frábærar myndir hjá ykkur Elínu. Gleðilegt ár (og penslaár)
Lísa (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 02:00
afæliskveðja til þín
Margrét M, 4.1.2008 kl. 09:15
Til hamingju með daginn þinn, vonandi verður hann þér yndislegur!
Kveðja, Srósin
Srósin (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 09:21
Mjög flott mynd Þórdís mín til hamingju með með afmælis daginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.1.2008 kl. 09:37
Til lukku með daginn sæta
Sigrún, 4.1.2008 kl. 10:36
Til hamingju með daginn þinn elsku vinkona, njóttu hans í botn
Knús og kossar 
Elín (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 10:41
Áttu afmæli? Ef svo er til hamingju með daginn
Flottar færslur hjá þér sem ég les oft þó svo ég kvitti ekki alltaf fyrir mig.... :)
Hrönn Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 11:18
Æðislegar myndir.
Og til hamingju með afmælið
Bryndís R (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 13:48
alltaf er gott að koma til þín kæra zordís sæta 1
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 15:58
flottar myndir
Ólafur fannberg, 4.1.2008 kl. 16:54
Til hamingju með daginn. 39, er það ekki.
Langflottust
Lísa (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 17:33
Elskudúllanmín áttu afmæli í dag!!!! ert á þessum flottu tímamótun að vera 30 og eitthvað
tilefni að dreypa á kampavíni.
Til hamingu með daginn


Solla Guðjóns, 4.1.2008 kl. 18:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.