6.1.2008 | 11:09
Þrettándamessan hljómar í sjónvarpinu ....
Gömlu hróin voru vakin í morgun, drengurinn var spenntur og sagði að Konungarnir hefðu komið og skilið eftir gjafir undir trénu. Æj, hvað ég var þreytt en fór í fötin mín og fékk mér Sol Elixir dropana mína, hitaði kaffi og við settumst í stofuna og fylgdumst með gjöfum þess rausnarlega.
Sæti strákurinn minn
Mamma, ég bað ekki um þetta og ekki um þetta .... hvað er að kóngunum ?? Mér er spurn hvað sé eiginlega að þessum konungum sem komu af sinni alkunnu snilld ríðandi á úlföldum eftir götum bæjarins.
*******
Til gamans má geta að leiktækjatalvan Wii er uppseld á öllum spáni, en hún var á listanum hjá drengnum. Ég er gjörsamlega yfir mig hissa að þetta leiktæki skuli vera uppselt í rúmlega 40.000.000. manna landi. Hvað er að ???
*******
Í gærkvöldi fórum við og sáum för kónganna og var götuleikhús Orihuela borgar með frábæra listasýningu. Við biðum róleg og vorum með gott stæði .... þangað til fólk ruddist fram fyrir okkur og ég náði ekki upp í mitt stóra nef. Gott tak í nefinu en þarna náði ég sko ekki. Þegar kom að því að vagnar fleytifullir af allskyns gjöfum rúlluðu framhjá varð heldur betur fjör því allt í einu ruddust fjöldinn allur af sígaunum framm fyrir okkur til að grípa gjafirnar. Sonur minn hafði gripið gúmmíslöngu sem var rifinn af honum, dóttir minni var hrint sem og mágkonu. Syni frænku okkar varð undir svo undurblíð móðir hans hrissti aðeins upp í líð götunnar og gnísti tönnum.

Burt séð frá þessum skugga þá áttum við ljúft kvöld. Settumst á lítið torg "parque" þar sem börnin léku sér og fulltrúar götunnar komu og reyndu að ræna mig. Ég lét það nú ekki viðgangast en spyr mig, hvaðan komu allir þessir sígaunar eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Við erum öll börn guðs og erum alin upp við ólíkann bakgrunn og berum áfram það sem okkur var kennt. Þegar ég flutti til Spánar man ég eftir fjölskyldu sem lagði bílnum sínum fyrir framan íbúðina okkar og þar tendruði hún bál (við bjuggum í útjaðri bæjar) og viðkomandi sátu úti, ákveðið fjölskyldumunstur, goggunarröð og virðing sem fyrirfannst, það laut hver fyrir sínum æðri. Þegar ég ætlaði að bjóða þeim inn til að baða sig sagði Fjallið mitt hvort ég væri ekki með sjálfri mér. Þau myndu ekki kæra sig um það! Mér fanst það undarlegt þar sem þau voru skítug, hann þvertók fyrir að þau myndu þiggja baðferð og að fyrir utan þá væri hann á móti því. Ég ákvað að fara yfir leikföng dóttur minnar og við fundum dúkku fyrir hvert barn og svo fórum við mæðgur niður með leikföngin.

Mér leið hálfílla (fanst ég vera ókurteis á einhvern óútskýranlegan hátt) en kom engu að síður færandi hendi. þegar við afhenntum leikföngin var þeim vel tekið en elsta kerlingin sagði; það vantar dúkku fyrir hann og benti á uppkominn ungling. Ekkert mál sagði ég og fór og náði í eina dúkku til viðbótar. Ég held og veit að fólk sem lifir á flakkinu kann ekkert annað og vill ekkert annað, menning þeirra er töluvert öðruvísi, framkoma og siðferði er með öðrum hætti og það að vilja skilja eða sjá aðstæður með þeirra hug er okkur fremur erfitt. Fljótlega eftir þetta fór fjölskyldan sína leið, sennilega verið vísað frá þar sem fólki stendur uggur af sígaunum þar sem þeir svífast einskis til að ná sér í nauðsynjar.
Kallast sjálfsbjargarviðleitni.
Mikill munur er á sigauna og sigauna og fer það alfarið eftir uppruna. Ekki misskilja mig en í bænum okkar búa sígaunar, börnin þeirra fara í sama skóla og börnin mín og svo eru það börnin sem fá ekki að fara í skólann og búa á eilífðar flakki. Menntun er máttur, þarf vart fleiri orð en það.
Í dag, á þrettándanum, afmæli langafa míns munum við halda til tengdó í enn eitt matarboðið (hehe fer á hverjum sunnudegi) og ætlum að njóta þess að vera til eftir megni.
Ég þakka bara fyrir hlutskipti mitt og óska ykkur þess besta í heimi hér.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir pistilinn. Ég þakka líka oft fyrir mitt hlutskipti, því í lífi mínu hef ég átt svo góðar stundir og gott atlæti, þrátt fyrir mótlæti. Þetta vegur upp hvert annað og er í plús í mínum huga. Ég þakka góðar óskir og óska þér þess sama.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 21:59
Okkur ber að þakka hlutskipti okkar og bija fyrir öðrum.Ég bið um margt og fyrir mörgum og þakka á minn einlæga hátt.
Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 17:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.