Ég heiti ekki Ósk fyrir ekki neitt .....

Ég fékk fallega afmælisgjöf frá börnunum mínum.  Þau völdu hana alveg sjálf og þótti mér vænt um hvað þau hafa góðan smekk!  Gjöfin hitti mig alveg og kitlaði mig, fallegt nisti sem hefði allt eins getað verið teikning eða föndur.

Við þurftum hins vegar að fara og fá stærri keðju þar sem svanahálsinn hefur gildnað með árunum sem hefur þó lítið með að gera að frúin er enn limalipur og nýtur þess að vera til.

Ég spurði mágkonu mína í dag, hvað hún myndi óska sér ef hún gæti óskað hvers sem var vitandi að  óskirnar hennar myndu rætast.  Hún hugsaði sig um og sagði;  að dætrum hennar vegnaði vel og að hún gæti dansað og og og .... erfið spurning sagði hún svo og var eiginlega ekki viss um hvers hún innilega vildi óska sér!

Óskaðu þér .... allar óskir rætast

Óskaðu þér en farðu varlega með óskina því allar óskir rætast.  Við förum stundum óvarlega með óskirnar okkar og óskum stundum rangt og lendum á óskastundinni.  Orð og hugurinn eru skæð vopn sem við ættum að fara vel með.

Hvers óskar þú þér? 

Þú lendir á óskastund fyrr en varir ..... notaðu óskina vel!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ósk er fallegt nafn sem þú berð vel mín kæra

Óskin mín er leyndó- annars rætist hún ekki, eða hvað?

Ef ég ætti eina ósk, veistu hvers ég myndi  óska mér? Reyndu að giska á hvers eðlis þessi  ósk mín er. Meira hér og nótur og alles fyrir Fjallið

Biðukolluknús

Lísa (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 06:34

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Börnin mín elsku heita Sólveig Ósk og Óskar Björn og eru Óskarsbörn. Ég sagði þegar ég flutti í blokkaríbúðina í sept. 2006 að nú þyrfti bara helvítis sjónvarpið að bila það væri allt of stórt, hitti á óskastund, það bilaði í des. og við urðum að kaupa okkur nýtt, var ekki á fjárhagsáætlun, svona er þetta bara, maður verður að passa hvað maður segir.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 11:59

3 Smámynd: Dísa Dóra

Mín heitasta ósk í gegn um árin rættist í fyrra svo ég er sko sátt - óskaði mér samt maður stenst nú ekki svona boð sko.

Dísa Dóra, 7.1.2008 kl. 16:08

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Allt sem við viljum er friður á jörð......að valdníðsla,fégræðgi og fátækt hverfi.Það er ansi margt þegar kemur að óskinni en ég á mér nokkrar mér og mínum til handa.

Solla Guðjóns, 7.1.2008 kl. 17:09

5 Smámynd: Hugarfluga

Júllamía! Áttu ammili í dag?? Til hamingju, elsku Þórdís mín. Vona að dagurinn hafi gefið þér gott í hjartað og sálina. Takk fyrir fallegu kveðjurnar til mín. 

Hugarfluga, 7.1.2008 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband