Ammmmmmlisgleðin hátíð næst

Tengdapabbi minn á afmæli í dag!!  Og Freyja líka.  Allnokkur skilja árin þessar Steingeitur en ég óska ykkur báðum hjartanlega til hamingju með daginn.

Ég vaknaði gjörsamlega eins og úlfur í morgun.  Gærkvöldið var gaman og þið getið nú bara rétt ýmindað ykkur nornafund með 13 skvaldurbrjáluðum kjéddlingum.  Yfirmáta fagrar konur, allar búnar að farða vel yfir nornavörtuna svo á engu bæri.

Úlfurinn var hás í morgunn en það er sennilega vegna þeirra sem reyktu.  Það er langt síðan ég hef farið á krá en þetta var flottur staður, fullt af fólki og þegar ég kom heim ilmaði ég af tóbaksreyk.

Allir eru ferskir og komnir á ról.  Ég er búin að jarða Úlfinn og við ætlum að viðra okkur í góða veðrinu.  Við ætlum að kaupa blóm handa tengdapabba og Freyja mín blómin þín koma í hugarsendingu.  Jafn margar rauðar rósir og árin þín telja!

Út úr húsi er málið, njóta dagsins í faðmi fjölskyldunnar.  Tengdapabbi er vænn og grænn karl svo það væri lag að gefa honum appelsínutré en sítrónutréð sem við gáfum honum er farið að gefa ávöxt og það má segja að sítrónurnar hafi bragðast vel .....

Sítrónuvatn

Sæt og svalandi
1 líter af brakandi kranavatni
1 heil nýtínd  sítróna
Vatnið sett í fallega glæra glerkönnu
Sítrónan skorin í sneiðar og sett út í vatnið
kælt og látið bíða í 5 mín
drukkið við þorsta
Sunnudagur til sælu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með fólkið þitt

Bryndís R (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 11:13

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til lukku með tengdapabba og Freyju!

Eigðu góðan sunnudag

Huld S. Ringsted, 20.1.2008 kl. 11:52

3 Smámynd: Hugarfluga

Hjartanlega til hamingju með tengdó og Freyju!

Hugarfluga, 20.1.2008 kl. 14:37

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með tengdapabba og Freyju,og vonandi að þú hafir skemmt þér vel á kránni. Knús inn í daginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.1.2008 kl. 15:12

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með þinn væna græna.Ég held að Freyja eigi líka 5.ára brúðkaupsafmæli í dag.

Knús.

Solla Guðjóns, 20.1.2008 kl. 15:29

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

mmmmm sítrónur..........

Til hamingju með afmælisbörnin

Hrönn Sigurðardóttir, 20.1.2008 kl. 18:00

7 identicon

Til hamingju með tengdóinn þinn!
Gott að úlfurinn er horfinn á braut þó svoleiðis óargadýr fylgi stundum með heim eftir skemmtileg kvöld
Knús á þig!

Elín (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 19:50

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gleðikveðjur til allra sem eldast vel og skemmtilega. Elska morgunúlfa....og takk fyrir þessa frábæru uppskrift af sítrónuvatni. Aldregi hefi konu dottið í hug að akkúrat svona væri sú uppskriftin..

Frábær sunnudagur að kveldi kominn héna megin og þín megin...Sól og snjór.

Knús 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.1.2008 kl. 20:08

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju, til hamingju.   Birthday Song  Birthday Song  

Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2008 kl. 21:43

10 Smámynd: Bergur Thorberg

Að sjálfsögðu til hamingju Þórdís mín. Og takk fyrir allar þínar hlýju kveðjur og það eru hlýjar frá mér líka. Langar að benda þér á síðu þar sem þú getur séð nokkur af nýjustu verkunum mínum. Eitthvað hafa verðin og málin skolast til á minni verkunum en það er ekki málið. Slóðin er : www.articeland.com og þar áttu að finna nafnið mitt.

Heyrumst sjáumst

Bergur Thorberg, 20.1.2008 kl. 23:20

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndisleg uppskrift, svona eiga þær að vera. Þetta er einhver besti drykkur sem völ er á. Hann læknar líka svona eftirkráaráhrif. Hugsa sér, að það megi enn reykja á svona stöðum í "þínu" landi, - nú er þetta bannað á öllum veitingahúsum Íslands.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.1.2008 kl. 23:24

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Innilega til hamingju með afmælisbörnin elsku Þórdís.

Marta B Helgadóttir, 21.1.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband