Fegurð og depurð ....

Að þekkja það fagra er heiður, að finna þjáninguna er heiður, að snerta sorgina er eitthvað sem við viljum vera án.  Sorgin kemur í ólíkri mynd til okkar með þeim lifandi eða liðnum.

Í hjarta mínu er stórt gat þessa dagana sem ég get ekki útskýrt á þessari stundu en ég hef fyllt hús mitt af bænum og ljósum loga kertanna í þeirri einu von að almættið verði rausnarlegt.  Rétt eins og almættið er!

Ég held mínu striki, elska að vera ég og elska að geta verið í nálægð.

Ég gat engan vegin sökkt mér í koníaksflöskuna, not my kind of flavor!  Drakk soðið vatn, hunang og nýtíndar sítrónur út í eitt!  Er miklu betri, eiginlega bara góð.  Kirsuberjamaskinn hafði góð áhrif og ekki var verra allt þetta græna heilsubótarfæði sem var á borðum í kvöld.

Ýmsar

Nokkrar flísar

Dóttir mín er ánægð með englaflísina og sagði; mamma gerðu engla þeir eru svo fallegir!

En ég stóð mig að því í eigin aumingjaskap að gleyma fegurð heimsins, að gefa ekki ástar dúllunum mínum vökvann eina.  Það fegursta sem til er í mannheimi og í öllu umheimi.  Vatnið!

Blómin þurfa að geta ljóstillifað, blómin eru útsend frá hinni fögru veröld til að minna okkur á það sem heitir ást, það sem umvefur okkur lit og líf.  Blómin eru ástin eina og hana viljum við öll eiga.

Blóm og blóm

Dúllurnar mínar voru að spjalla um daginn og vegginn.

Fegurðin er sjáanleg og depurðin er ósýnileg.  Báðar eru þær jafn fagrar eins og depurð þeirra getur verið svipuð.  En, í auganu býr fegurðin, í auganu sér sá hinn sami.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Elskan mín

ég ætla að senda þér risa faðmlag og hlýjar bænir.

En þú hefur rétt fyrir þér með fegurðina og depurðina.

Solla Guðjóns, 23.1.2008 kl. 22:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég sendi þér kærleik og hlýju og vona að dagarnir þínir verði betri smátt og smátt.  Hafðu það gott elsku Zordis.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 23:34

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Elsku  Þórdís mín þú ert svo yndisleg mér þykir svo vænt um þig þú mikill snillingur ég dýrka þig  þú ert svo góð kona. Knús inní nóttina.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.1.2008 kl. 23:37

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ætlaði að segja þú ert mikill snillingur ég ætlað ekki segja þú þú þetta var villa hjá hjá mér eins og vand er. Ég vona að þú brosir yfir þessu.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.1.2008 kl. 23:44

5 identicon

Elsku Zordis... ég vildi ég gæti stoppað upp í gatið á hjartanu ... eða helst grætt það á ný ... því þú ert með svo fallegt hjartalag.

Sendi þér hjartans hlýjar kveðjur héðan frá Akureyri. Mundu hvað mér þykir vænt um þig!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 00:19

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hæ elsku sálasystir....finn tilfinninguna yfir haf og lönd því það eru engin landamæri í því að tengjast

Sit hér og hugsa..hlakka til að hitta þig í eign persónu a la grata...

Knús og mús með englavængjum 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.1.2008 kl. 02:05

7 Smámynd: Inga Steina Joh

KN'US!  

Inga Steina Joh, 24.1.2008 kl. 07:44

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sendi þér faðmlag yfir haf og lönd. Enginn getur fyllt upp í gat hjarta þíns nema þú. En faðmlagið styrkir þig vonandi til þess

Englar eru fallegir, það er rétt hjá snúllunni þinni!

Hrönn Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 08:34

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 24.1.2008 kl. 08:52

10 Smámynd: Margrét M

Margrét M, 24.1.2008 kl. 09:25

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Kossar og knús til þín yndislega kona. Þú munt fylla upp í gatið í hjarta þínu smám saman. Það getur líka verið fegurð í depurðinni en bara tímabundið.

Marta B Helgadóttir, 24.1.2008 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband