Svo Pornó er ekki það versta ....

..... nú nú sagði ég og kváði.  W00t

Hvað er verra en pornó horf og ástundun ???  Mæ, pornó dog svaraði því til ( sko ég á svona lítinn ímyndaðan vin sem er pornóstjarna, rosaleg vel niður vaxinn )  .... að þegar fólk gleymir sér stundum saman við fasteignaauglýsingar þá væri þráðurinn glóandi.

Ég:  Ha, hvaða þráður spurðir ég ímyndaða vin minn?  (kanski tippalingurinn)

Hann:  það er enginn þráður þetta er bara svona sýki.

Eg:  O.k. ertu sem sagt að segja að ég sé sjúk og eigi að fara að skoða pornó?

Hann:  Nei, ekkert endilega en ertu að fara að kaupa þér hús?

Ég:  Nei, nei ..... bara að skoða hvernig fólk býr og verð og svoll.  Er að vinna að samanburðarkönnun miðað við landshluta.

Ef ég svara ekki síma, meilum eða kem ekki til dyra þá er ég að glápa á pornó síður.  Spurning hvað ég duga lengi ....

Ninja

Döhhh.  Ekki mikið fútt í mér en ég hóf daginn á því að undirbúa líkamann, sturtaði mig tandurhreina.  Drakk sólarelexír og skundaði háðsk á stefnumót.  Drakk fyrsta kaffibollann klukkan 1400 .... og hef náð að drekka samanlagt 3 og nú er klukkan hálfsex.

Er með einhvern orm í mér, svona kvikyndisnóra sem kemur á óvart!  Mér er búið að vera íllt í báðum hnjám (neita að vera komin yfir kjörþyngd) þetta eru skilaboð að handan.  Ég hef grun að ég sé að verða fyrir ótrúlegu happi og mun að sjálfsögðu deila því með ykkur.

Heart

Ég þakkaði fyrir að vakna, þakkaði fyrir að vera á mínum stað, heil heilsu ( áunnin geðbilun telst mér til bóta) allavegana var ég þakklát og ætla að bæta við flísirnar mínar þar sem Síló er farin að tala tæpitungulaust að handan.  Hann skítur sér niður í kollinn á mér í skemmtilegum leik.

Bla bla bla ....

Hjartað mitt er á sínum stað og kertið kastar frá sér fögrum bjarma.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég drakk fyrsta kaffibollan kl 7 í morgunn. Mikið er gaman að lesa bloggið þitt ég var brosandi á meðan, ég veit að hjartað þitt er á sínum stað enda ertu góð.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.1.2008 kl. 17:05

2 Smámynd: Sigrún

Knús

a þig sætasta sæta hafðu það gott you pornó DOG

Sigrún, 24.1.2008 kl. 17:52

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

mmmm gaman að eiga svooona vin

Marta B Helgadóttir, 24.1.2008 kl. 18:26

4 Smámynd: Inga Steina Joh

  porn, porn, porn. Einhvað fyrir alla, konur með hár og kalla með skalla (og ansi oft yfirvaraskegg, eða svokallaða pornómottu).

ÞAð verður gaman að sjá Síló flísarnar, hann málar að handan  

Inga Steina Joh, 24.1.2008 kl. 18:45

5 Smámynd: Bergur Thorberg

Í nótt svaf ég ekki nema tvo tíma. Ástæðan? Drakk meira kaffi í gær en ég málaði upp úr. Og það er sko töluvert. Pornóið? Skrepp niður í Ráðhús í fyrramálið.

Kv.

Bergur Thorberg, 24.1.2008 kl. 20:21

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Pervert  Flasher Mardi Gras  Smiley Gone Wild  lítið klám show frá Íslandi,  knús úr sköflunum, þú ert best.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 21:59

7 identicon

Ómæ, sé þig alveg í anda á þessum síðum  - NOT!
Síló er svo flottastur, fíla nýju flísarnar í tætlur júnó!!!
Risavaxið knús til þín!

Elín (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 22:11

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert æðisleg!

Heiða Þórðar, 24.1.2008 kl. 23:46

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Knús á þig pornogella....

Solla Guðjóns, 25.1.2008 kl. 00:09

10 Smámynd: Hugarfluga

Langaði að bara faðma þig í gegnum wwweraldarvefin. 

Hugarfluga, 25.1.2008 kl. 10:06

11 Smámynd: Lena pena

Knúsíknús mín kæra Zordis

Lena pena, 25.1.2008 kl. 10:29

12 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú ert yndisleg

hafðu góðan dag í dag og á morgun...tesina

Bless

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 08:54

13 identicon

Lísa (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 11:33

14 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Jesús minn, varstu að horfa á remaxauglýsinguna þar sem fólk er í ástaratlotum við veggi, strompa, stiga og ýmislegt fleira? Það er sko porn

Margrét Birna Auðunsdóttir, 26.1.2008 kl. 15:48

15 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

ætlaði að setja inn þennan hláturbroskall en kommentið vistaði sig bara sjálft, hefur sennilega ekki þolað allt þetta porn

Margrét Birna Auðunsdóttir, 26.1.2008 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband