26.1.2008 | 19:02
Kona í allra kvik"ynda" líki ....
.... konur eru yndi margar hverjar kvikar, ein þeirra hikar en hinar geisla af lífsþrótti. Konur eru og verða yndislegastar!
Þessi færsla fjallar að sjálfsögðu um konur, kvinder, women y mujeres! Dásamlegar allar sem ein, berjumst fyrir því besta sem lífið færir hver á okkar hátt. Þann eina sem okkur var í brjóst borið!
Var að spekulera að gera kokkastrák, bókaorm og veiðimann ... kökuskreytingakonu og búðarkonu .... já, já svo heldur sílóinn áfram að hvísla að mér orðunum.
Kona, Köttur og Krummi .... áfram flísast kerlingin. Hefur ekkert með það að gera að konan sé afkastasöm eða dugleg. Við einfaldlega veljum okkur það sem okkur hentar! Ég hef t.d. ekki lesið mikið, hef ekki verið dugleg í líkamsræktinni, hef ekki farið í marga saumaklúbba en ég hef varið tíma mínum í að dunda við það sem róar og fróar huga minn. Mála og mála og mála og svo hef ég tölvast og dundað mér við að kíkja á ykkur. En ......... Voila!
Já, þeir eru sætir broskallarnir!
Var að koma úr bíó með familíunni og sáum við grínarana Mortadelo og Filimon. Tveir leynilögreglumenn sem bjarta heiminum frá vatnsskorti. Börnunum þótti myndin fín, Fjallið sofnaði (hraut sem betur fer ekki) og ég fór nánast úr kjálkalið. Hlóum smá, gáfum börnunum ís og röltum um verslunarmiðstöðina þar sem bíóið er.
Svo, var komið við í "melabúðinni" keyptum Entrecot steikur og grænmeti í kvöldmatinn.
Ástin er bústin og ég á bleikum bommsum!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Fallegar flísar!! Jafnast samt ekkert á við myndina "mína" ;)
Knús á þig fyrir kvöldið
Hrönn Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 19:29
Dásamelga listagyðjan mín. Áttu svo þína Melabúð á Spánarslóðum? Hugsa til þín, trausta mín.
Hugarfluga, 26.1.2008 kl. 22:42
Ekkert smá flott !
Bestu kveðjur frá mér til þín
Anna Gísladóttir, 27.1.2008 kl. 00:47
flott
Ólafur fannberg, 27.1.2008 kl. 11:37
Gjörningur í nótt hjá minni? - Kúl.
Spákonan er flott og allar hinar líka. Kveðja til Síló
SætsúrtknÚs
Lufsa Plastpoki (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 14:20
Nýja myndin vekur upp blendnar tilfinningar. Kúl og töff en eitthvað svo döpur
Hvað sagði Fjallið?
Mér líst vel á nýsjustu hugmyndirnar. Ég er með fyrirmynd, hetjan mín er bókaormur
Er á leiðinni á kaffihús með Hetjunni, sem óvænt birtist og staldrar stutt við að þessu sinni. Vildi bara kasta á þig öðru knúsi.
Súrsættknús
Hin góða óða (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 14:33
Mjög flott.
Marta B Helgadóttir, 27.1.2008 kl. 22:12
Elsku kellan mín.... fann þig, og er veitsu af hverju???? ég var að googla orðið xxxxxxx og þá varst það bara þú.... en sniðugt. Flott síðan þín og gaman að sjá listina þína. Fylgist með þér,
Kveðja Áslaug
Áslaug Traustadóttir (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 00:47
Æðislegar flísarnar þínar.
Svava frá Strandbergi , 28.1.2008 kl. 00:52
Töff flísar, eiginlega bara ógeðslega töff
Takk fyrir að samþykja mig sem bloggvinkonu
, ég fann bloggið þitt í gegnum eina af okkar sameiginlegu bloggvinkonum og algerlega heillaðist af myndum þínum og orðum. Mig hlakkar til að já og lesa meira 
Sporðdrekinn, 28.1.2008 kl. 01:29
svo geggjaðar flísarnar þínar !!
Sigrún, 28.1.2008 kl. 09:20
fallegar flísar !!
Falleg kona í konu frá konu til konu
Bless
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 15:25
Já eins og Steina segir..
Hér er kona
um konu
frá konu
...til Zordísar
og svo frá henni aftur .....út í geim
Ein mögnuð konuflís í auganu á mér
katrinsnaeholm (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 16:28
Rosalega hlakka ég til þegar flísin mín flýgur heim.
þú ert snillingur
Ásdís Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 20:44
Knús á konukrútt....
Solla Guðjóns, 28.1.2008 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.