Að vera í öðrum heimi ....

..... ástin mín þér aldrei gleymi.

Í nótt varð ég fyrir undursamlegri tilfinningu í gegn um draum.  Draum sem er í raunheimi þess lands þar sem óskin, vonin og kærleikurinn vefja sig um fingur þér.

Ég lá í hvítu rúmmi og faðmaði karlmann, tilfinningin er ólýsanleg nema hvað að ég tek lítið barn og gef því brjóst.  Í fyrstu varð ég hissa því barnið var ekki mitt.  En rjóminn streymdi í lítið kok og ég var komin í tilfinningalegt himnaríki.

Ást í andaheimi er næring sem tekur frá þér allan fjarlægan vilja.  Veraldleg gæði verða að engu því andakt þess ljósa er það eina sem streymir um gegnsæjar æðar ....  Það eina sem vantaði voru vængirnir góðu til að flytja mig yfir á æðra stig.

Að raunheimi.

Sorgin heltekur hjarta mitt, fólk er slasað, vonlaust, drepið, tekið frá umhyggju, niðurníðsla og dómar.  Við verðum að gera gott úr lifanda lífi og virða traustið sem okkur var gefið.  Leysa verkefnin eftir mætti og halda í það góða í lifanda lífi. 

Gaman, gaman

Ég var að koma úr verslunarferð með dóttur minni, við höfum átt yndislega stund saman.  Fyrst fórum við til Söru hárgreiðslukonunnar okkar og fengum við báðar æðislega klippingu.  Þar næst fórum við á veitingastað og nærðum líkamann, spjölluðum og héldum í H&M, Sprinter og aðrar sem ég man ekki hvað heita.  Vorum að koma heim og það fyrsta sem ég gerði var að setja gjöfina frá Biddu litlu á fóninn.

Þessi tónlist Háskólakórsins er andlegt konfekt og það jafnast ekkert á við tónlist af þessum toga.  Þegar upp er staðið þá er bara gott að vera til, finna hvernig tárið ryður sér leið að augnkróknum og hjartað fyllist þakklæti verunnar.

Falin hjörtu

Falin hjörtu er uppáhaldsflís Fjallsins

Over and Out


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Ó já, að vera með barn á brjósti er eitt það besta

Ég er sammála Fjallinu "falin hjörtu" er fallegt verk.

Sporðdrekinn, 2.2.2008 kl. 18:09

2 Smámynd: Hugarfluga

Fallegar spekúlasjónir og svo sannar. Hræðileg hroðaverk framin á meða fólk gæti verið að hlú að hvert öðru og rækta ást og virðingu.

Megi helgarrestin verða Fjalli og Fjallsbúum dásamleg.  Lovjú.

Hugarfluga, 2.2.2008 kl. 18:38

3 Smámynd: Lena pena

Elsku Þórdís mín, viltu senda mér netfangið þitt á netfangið blobbertje@yahoo.com það er ein stúlka sem ég þekki sem þarf að ná sambandi við þig

Lena pena, 2.2.2008 kl. 20:07

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 2.2.2008 kl. 21:00

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Dagur og nótt á milli draumanna og veruleikans....skil ekki hvernig okkur tekst að byggja svona margt ljótt úr þessum fögru litum sem eru allt um kring..þ.e hinn hrygga heim þrátt fyrir alla gleðina sem til er.

Kærleiksknús til þín engill. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.2.2008 kl. 10:01

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús á þig elsku Þórdís.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.2.2008 kl. 10:16

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til þín Zordís mín

Svava frá Strandbergi , 3.2.2008 kl. 14:08

8 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Æi takk, maður verður nú bara hálf væminn. En auðvitað er Beethoven stórsnillingur, rokkari síns tíma

Margrét Birna Auðunsdóttir, 4.2.2008 kl. 13:22

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband