Eldabuskan ...

.... hún brosti og var sallaróleg, fann til svuntuna og hóf matargerðina.

KVÖLDMATUR

  • 1 gulrót
  • 1 kúrbítur
  • 1 eggaldin
  • 1 laukur
  • 4 egg

Kúrbíturinn, gulrótin og 1/2 laukur fínt skorið og steikt á vel heitri pönnu með góðu dassi af olíu.  Himalayasalti stráð yfir.  Á vægum hita mallar þetta þar til þetta er orðið vel steikt þó ekki brennt.

2 af fjórum eggjum eru þeytt og hellt yfir pönnuna.  Ég mæli með að hráfefnið sé jafnað á pönnunni áður en þeyttu eggin eru sett yfir.

Miðlungshiti er við gerð eggjakökunnar og þegar henni er snúið er gott að vera með disk að svipaðri stærð og pannan til að snúa kökunni við.  Mér finst best að hafa Fjallið við hendina til að snúa.

Mjög bragðgóð þessi en gulrótin gerir gæfumuninn

Góður tími gefst til að skera niður í eggjaköku númer 2 þegar hráefni í kúrbítseggjakökuna mallar.  Eggaldin og laukur fínt söxuð og í raun sama aðferð og hér að ofan.  2 egg eru vandlega þeytt og hráefnið er jafnað út á pönnunni og þeyttu eggjunum dreift ofan á.

Svo kom Fjallið mitt og snéri bökunni við, þeirri seinni ......

GARRRRRGGGGGANNNNNNNNNNSSSSSSSSSSSSSSSSSS

Helmingurinn af kökunni flaug nánast á mig en á gólfið.  Andlitið á mér fann enga gleði, fann enga meðaumkun, fann til einhvers er líktist helst að hatri (fegin að vera svona mannleg).  Fjallið hafði gert góða tilraun í að þeyta í mig brennheitri eggaldinseggjakökunni. "The flying vedg", ekki nóg með það heldur ætlaði hann að laða fram brosið og tók restina á pönnunni og hennti upp í loft og hluti smassaði í nýskúruðu gólfinu.

Fjallið brást aumur við þegar konan hans brá fyrir úldnu andliti. 

Ég þykist bara faðma þig þangað til þú kemur nær .....
Langaði ekki í faðmlag en það er nú samt besta lækningin

Allt í góðu, við hlæjum bara að þessu á morgun .... það sem ekki fór á mig eða á gólfið bragðaðist mjög vel.  Meðlæti var salat með Canonigos (hestamatur) og flysjuð gulrót, sætur tómatur, olía, edik og himalayasalt ....

Á gólfið fór Eggaldinseggjakakan (wow hvað þetta er langt nafn) á spænsku segjum við Tortilla de berenjena ....

Fjallið er að skúra, það er óþolandi eggjalykt í húsinu .... sá sem kastar egginu, þrífur það!

Af lyktinni að dæma er ammoníak í skúringarfötunni .... geisp!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er lítið búinn að gera nema borða þessa dagana og er mjög saddur. En mér líst vel á þessa uppskrift og takk fyrir hana. Finn til með þér varðandi eggjalyktina (og ammoníakið!) ... ég veit ekki hvort ég var búinn að segja þér það, en svona til að fá þig til að hlæja aðeins ... þá lenti ég einu sinni í því að við eldamennsku hafði ég gert æðislegt risotto og ætlaði að dassja ofan í það smá olíu í pottinn... ég var í lítilli íbúð á þessum tíma ... var í símanum og einbeitingin ekki alveg hundrað prósent og viti menn... ég tók óvart Ajax gólfhreinsi og dassjaði honum yfir risottoið ... hef sjaldan grátið eins mikið yfir misheppnaðri eldamennsku

En maður hlær að þessu í dag

Knús og eggjakossar og mikil ást héðan frá Akureyri til þín og þinna

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 21:19

2 Smámynd: Hugarfluga

Rosalega líst mér vel á þessa uppskrift. Öðruvísi eggjakaka!! Namm .. ætla að prófa. Held kallinum bara í hæfilegri fjarlægð. Vil ekki hætta á neitt og nenni ekki að skúra!

Hugarfluga, 6.2.2008 kl. 21:21

3 identicon

Namm namm. Hlakka til að prófa þessa uppskrift.

Og svo held ég að það sé best að láta þessa kalla ekkert vera að þvælast í eldhúsinu á meðan við erum að vinna þar

Bryndís R (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 21:31

4 Smámynd: Solla Guðjóns

 Karlar geta verið skaðræðisgripir í eldhúsinu......

Líst annars vel á þessar uppskriftir.

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 22:19

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Spennandi uppskrift! Takk fyrir að birta.  

Marta B Helgadóttir, 6.2.2008 kl. 22:29

6 Smámynd: Ólafur fannberg

prófa þessa uppskrift

Ólafur fannberg, 6.2.2008 kl. 22:30

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Líst vel á uppskriftina, segi ljóninu mínu frá henni og ath hvort að hann sé ekki tilbúin til að elda hana fyrir mig

Sporðdrekinn, 7.2.2008 kl. 02:21

8 identicon

Tortilla.... finnst langt síðan síðast  -og því margt að hlakka til
Hér er hálfgerð ófærð á höfuðborgarsvæðinu en ég slapp í vinnu samt, væri til í að skipta út íslenskum vetri á móti spænskum..... spænsku pinnarnir mínir fara illa í þessu óveðri
Knús á þig sæta, ætla að hlusta á hvíslið þegar það kemur

Elín (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 09:38

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég ætla að prófa þessa uppskrift mér líst mjög vel  hana Takk fyrir Þórdís mín Kveðja til ykkar

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2008 kl. 09:55

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég var líka með eggjaköku í minn mat í gær og ekkert af henni fór á nýskúrað gólfið enda ekkert gólf nýskúrað hjá mér í miðri viku. Hvað þá að ég væri að spranga með eggjaköku í andlitinu..híhí!! En karlar geta stundum verið til vanræða og best að hafa þá úti á tröppum þangað til kona vill raunverulega faðmlagið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.2.2008 kl. 10:33

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

mmmmmmm hljómar vel þessi tortija..........

....eiginlega alveg fram að Fjalli

Hrönn Sigurðardóttir, 7.2.2008 kl. 10:58

12 identicon

hehehe ... Fjallið mitt er alveg snillingur í eldhúsinu en eitthvað brást honum bogalistinn (ekki bogmaður eins og mörg ykkar) ...

Ég leyfi ykkur að fylgjast með ævintýrum í Fjallendinu í næstu færslum.

Annars var ógeðslegt veður hjá mér í dag, glampandi sól og sunnan gjóla!  Æj, hver er svo sem að kvarta. 

Zordis (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 17:06

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er svo mikill gikkur, ég nefnilega borða hvorki eggaldin eða kúrbít!

Huld S. Ringsted, 7.2.2008 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband