10.2.2008 | 00:10
Sunnudagur í myrkri ... enda nótt!
Ég átti gott samtal í kvöld (gærkvöldi) við vinkonu mína og á meðan við spjölluðum saman útbjó ég 2 salöt til að narta í síðar um kvöldið. Einfalt og notalegt;
Salat númer eitt ..... 1 og 1/2 tómatur skorinn í bita (temmilega stóra/litla) túnfiskdós opnuð og olían af túnfisknum hellt yfir tómatana sem og túnfisknum. Balsamediki sprayað yfir og saltað. Dásamlega gott.
Salat númer tvö ..... krabbakjöt, 1/2 tómatur og fersk græn blöð. Allt saxað og sett í skál og 2 msk af megrunarmæjónesi ásamt dass af carrý og salti .... hrært saman og kælt í smástund.
Með þessu fékk frúin sér Kampavínstár og bóndinn Shandy sem er bjór og límonblanda. Að auki skar Fjallið niður hráskinku og síðan ekki söguna meir. Það er komin þreyta í kroppana, himnasængin er lokkandi eins og ilmurinn á jólunum.
Einhverfupúkinn ég var að líta upp og á eftir að leggja lokahönd á en ætla engu að síður að deila þessu með ykkur. Uppbyggjandi bloggvinir eru metnir af heiðarleika umfram öllu.
Söngkonan akrýl á flís
Þessi flís er gerð fyrir bláa konu sem syngur af hjartans lyst. Konan á bráðum afmæli og veit ekki af þessu. Konan bloggar ekki og því sé ég ekki neitt athugavert við að sýna ykkur "Söngkonuna"
Par akrýl á flís
Tilraun fyrir ungt par sem vill fá öðruvísi mynd sem skaðar ekki buddu skruddu.
Ilmandi akrýl á flís
Sérpöntun en þessi mynd er ekki ólík jarðaberjamynd sem ég gerði en svona eretta bara.
Það er kominn tími á að kasta sér uppí, skrá sig í heim drauma þar sem lifanda líf kraumar undir augnlokum konunnar!
Vona að þið eigið góða kvöldstund öll sem eitt.
Ooog ævintýralega ástarfundi.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Komin með króníska gæsahúð sem ýfist upp í hvert sinn sem ég les þig....damn hvað þú ert yndisleg kona.
Heiða Þórðar, 10.2.2008 kl. 00:26
Flísarnar þínar eru svo Fallegar. Þú ert lystakona hvort sem að það er í orðum eða myndum

Sporðdrekinn, 10.2.2008 kl. 04:56
Ógó flott hjá þér
Vonandi áttiru góða nótt .......
Anna Gísladóttir, 10.2.2008 kl. 04:56
Sú bláa er akkúrat það! Kona sem syngur af hjartans lyst!! Mig langar að vera þessi kona....
Parið er rómantískt og fallegt.
Konan með blómið er svolítið döpur. Kannski var elskhuginn að fara frá henni og hún veit ekki hvort hann kemur aftur?
PS stal salatinu
Hrönn Sigurðardóttir, 10.2.2008 kl. 08:03
Mér finnst þessi bláa langfallegust, en hinar eru líka mjög fallegar. Kæra kveðjur til þín Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.2.2008 kl. 09:29
frábærar flísar að vanda . eigðu góðan dag
Margrét M, 10.2.2008 kl. 10:45
Listakona ertu. Bæði í eldhúsinu og við trönurnar.
Hugarfluga, 10.2.2008 kl. 19:28
Frábærar flísar. Sallötin eru án efa góð ... prufa seinna. Góða nótt, lífsins listakona.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2008 kl. 23:22
Lilja (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 02:16
Hæ! Góðan mánudag.
Solla Guðjóns, 11.2.2008 kl. 15:31
huggulegt og ljúft eins og alltaf.
Bless í dag
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 16:08
Knús á þig vinkona
Yndislegar flísar eins og áður 
Elín (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 20:34
Knús á á þig það erum næstu helgi gullið mitt þú veist hvað ég meina
brúðkaupið mitt.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.2.2008 kl. 22:49
Æðislegar þessar flísar!
Parið heillar mig mjög... annars segi ég eins og margir hér, varla hægt að gera upp hvað er fallegast, allar hafa sinn sjarma.
Keep up the good work! Alltaf drífandi að lesa skrif þín.
Hils. Srósin
Srósin (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 23:17
umm nú langar mig í mat, ekki gott að lesa um mat svona rétt fyrir svefninn. Þessar flísar eru jafn heillandi og hinar, hlakka til þegar mín kemur. Kv. Ásdís
Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 00:17
Solla Guðjóns, 12.2.2008 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.