Brjálað að gera ....

... hvenær er svo sem ekki mikið að gera hjá okkur.

Ég var að klára verkefni í dag og fagna því! Nú er það búið og árangurinn góður .....  Jibbý!

Þessi elskulega dúlla varð 13 ára þann 17 febrúar 

Íris Hadda 13 ára

Íris Hadda

Þessi fallega stúlka hefur alltaf verið dugleg, mikil skapkona og ráðagóð.  Þegar hún byrjaði að tala þá kom hún til mín og sagði mér að hún hefði valið mig þar sem ég ætti eftir að verða svo góð við hana.  Hún var altalandi fyrir 2ja ára aldurinn, hafði góðan orðaforða og símalandi.  Hún er afburðanemandi og yndislega góð stelpa.

Ég elska hana óendanlega mikið!

Ballið var bara fínt, við hjónin hittum mikið af skemmtilegu fólki.  Við fórum fyrir miðnætti á skemmtun þar sem íslendingar höfðu hreiðrað um sig á hóteli einu í nálægð við ströndina.  Við vorum í seinna lagi að bóka okkur í matinn en í raun ætluðum við ekki að fara þar sem Íris Hadda átti afmæli en svo fór það svo að börnin vildu gista hjá ömmu og við þar af leiðandi í dinglumdanglandi ástandi og skelltum okkur.

Ég dansaði og spjallaði heilmikið og sé ekki eftir að hafa skellt mér.

Ég hef svo góða tilfinningu ... jæja er að fara á fund og sendi ykkur fingurkoss út í loftið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Lifandi eftirmynd móður sinnar, þessi elska. Til hamingju með hana ... að öllu leyti! Þið eruð lánsamar að eiga hvora aðra að. 

Hugarfluga, 20.2.2008 kl. 15:24

2 Smámynd: Anna Gísladóttir

Innilega til hamingju með dótturina

Anna Gísladóttir, 20.2.2008 kl. 15:25

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Copy/paste. Yndislega falleg stúlka.    til hamingju með stelpuna, ég hef alltaf verið svo hrifin af nafninu HADDA.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 15:52

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Falleg dóttir þín og hún er mjög lík þér, Það var gott að þið hjónin skemmtuð ykkur vel og til hamingju með fallegu dóttir þína. Knús og kossar

Kristín Katla Árnadóttir, 20.2.2008 kl. 16:17

5 Smámynd: Margrét M

innilega til hamingju með copyuna þína

Margrét M, 20.2.2008 kl. 16:22

6 identicon

Íris Hadda er einstaklega falleg stúlka og greind - og lifandi eftirmynd móður sinnar.

knús og kossar yfir haf og allt annað til þín og þinna

Og til hamingju með að vera búin með verkefnið. 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 17:14

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með Írsi Höddu sætustu....Kossar á Íberíuskaga.

Solla Guðjóns, 20.2.2008 kl. 18:25

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábær ástaróður frá móður til dóttur, og dóttur til móður !

Bless í bili kæra kona

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 19:08

9 Smámynd: Sporðdrekinn

Frábært hvað þið eruð líkar , mmmm hvað það hlýtur að vera gaman að eiga minni sig.

Til hamingju með stelpuna

Sporðdrekinn, 20.2.2008 kl. 19:12

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Flott nafn á flottri stelpu, - til lukku með hana! Veit hún ekki allt um sínar eskfirzku rætur?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.2.2008 kl. 20:40

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mikið lík mömmu sinni. Til hamingju með hana. 

Marta B Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 20:59

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Flott stelpa og alveg svakalega lík mömmu sinni til hamingju með hana

Huld S. Ringsted, 20.2.2008 kl. 21:14

13 identicon

Gullfalleg stúlka og eftirmynd móður sinnar.

Til hamingju með hana!

Kveðja, Srósin

Srósin (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:50

14 Smámynd: Sigrún

Til hamingju með elsku dúlluna þín !!!!

Sigrún, 21.2.2008 kl. 00:34

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Knús kl.2:26

Solla Guðjóns, 21.2.2008 kl. 02:26

16 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Til hamingju með dóttir þína

Vatnsberi Margrét, 21.2.2008 kl. 11:46

17 identicon

Til hamingju með sætu prinsessuna! Skilaðu kossum og knúsum frá okkur

Elín (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 15:37

18 Smámynd: Dísa Dóra

innilega til hamingju með fallegu dóttur þína

Dísa Dóra, 21.2.2008 kl. 16:28

19 Smámynd: Solla Guðjóns

Þórdís færð þú engan póst frá mér .................

Solla Guðjóns, 21.2.2008 kl. 23:50

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Djö var að komast að því að úsending á pósinum mínum virkar ekki og ég sem er búin að vera að Þúst..fuglinn undir tröppunum.skilur þú mig.............

Solla Guðjóns, 21.2.2008 kl. 23:52

21 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Til hamingju með dótturina. Hún er alveg eins og mamman.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2008 kl. 00:53

22 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Pósturinn Páll er loksins kominn, pakkinn kom áðan og ég er alsæl, hjartans, hjartans þakkir, ég var að senda þér póst .

                    Heart Glasses

Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband