Umhyggja ...

.... hvað er betra en hlýr faðmur, brosið blítt og ilmur þess er ástina hrærir!

Umhyggja - móðir og barn

Umhyggja - Móðir og barn

Umhyggja Módir og barn

Umhyggja - Móðir og barn I

Ég á ljósmynd af rollu.  Hún er afskaplega myndarleg og ljúf, með ljósan hödd og brosir, tvíhyrnd og sátt við umhverfi sitt.  Þessa svart hvítu ljósmynd fékk ég að velja úr dánarbúi ömmu minnar.

Rollur eru umhyggjusamar og það var nákvæmlega það sem amma mín var.  Umhyggjan var hennar númer eitt, elska börnin sín og barnabörnin sín.  Úr dánarbúi ömmu minnar fékk ég líka afskaplega fallegan vasa.

Amma ég veit þú ert að hlusta á mig, Ég ELSKA þig óendanlega mikið.  Bráðum áttu afmæli og þá ætla ég að heimsækja þig í kirkjugarðinn og færa þér kveðjuna mína.

En, allavega, ljósmyndin af rollunni fallegu er geymd og innrömmuð hjá lítilli vatnslitamynd sem ég gerði fyrir langalöngu.  Umhyggjan er kveikjan að Móðurástinni sem ég sýni ykkur í dag.

Góða og Óða helgi elskurnar

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Knús til ykkar inn í helgina sæta fjölskylda

Marta B Helgadóttir, 22.2.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Eigðu Skemmtilega   helgi, fulla af Gleði  og Kærleika  

Sporðdrekinn, 22.2.2008 kl. 21:34

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þær eru einstakar þessar flísar þínar, ég er enn að stara á mína og dást að.  Eigðu óða helgi, það ætla ég að gera  Prince Kiss

Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 21:40

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegt umhyggja og barn.Hafðu það gott elsku Þórdís og   fjölskylda

Kristín Katla Árnadóttir, 22.2.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Anna Gísladóttir

Kvitt og kveðja til þín

Anna Gísladóttir, 22.2.2008 kl. 22:10

6 identicon

Góðóða helgi til þín og þinna, elsku Zordis.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 22:56

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Eigðu líka góða og óða helgi Zórdís mín. Mikið eru flísamyndirnar þínar fallegar.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2008 kl. 23:00

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þessar flísar eru náttla bara snilld, eins og börnin segja.  Góða helgi, Zordis kær!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.2.2008 kl. 23:59

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ekkert er fallegra en umhyggja og tengsl milli móður og barns, fallegar þessar flísar hjá þér

Eigðu góða helgi Þórdís

Huld S. Ringsted, 23.2.2008 kl. 00:05

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þú ert skapandi dís....Zordísin mín.

Sit hér rennsveitt að upphugsa hvað ég geti haft fram að færa þegar vegir okkar liggja saman í Ráðhúsinu í sumar. Hugsi hugs....sjáum hvað draumurinn færir og mærir.

Svo fallegt það sem þú ert að gera.

Smjúts 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.2.2008 kl. 00:15

11 Smámynd: Hugarfluga

Njóttu helgarinnar, Þórdís mín. Hlakka mikið til að fá kortið frá þér. Bíð spennt eftir póstinum á hverjum degi eins og barn á jólum.

Hugarfluga, 23.2.2008 kl. 11:23

12 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

góða helgi til þín kær zoedís héðan frá mér í sveitasælunni !!!

Bless til þín á fallegum laugardegi.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 14:21

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 24.2.2008 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband