25.2.2008 | 21:38
faðmlag - galmðaf
Þegar orðin skorta mynd, þegar litríkar hugmyndir sitja fastar í höfuðmótum þínum.
Í huganum staldra orðin við og vita ekki með vissu hvert leið þeirra liggur, hvert þau rata og hvern þau heilla. Orðin sitja föst í huga þínum en augu þín segja mér þúsund orð með tilbrigði sínu.
Ástin er blind, orðlaus og heyrnardauf.
Faðmlag Olía á striga
Ástin mín eina
elskan þú veist
nákvæmlega hvað ég meina
Ástin er þinn staður
mín stund
okkar eina land
Ástin er okkar.
Það er nú bara þannig að lífið er Ást og án hennar erum við svo takmörkuð.
Eitt sinn, í lífi þar fann ég vænan hest er horfði í allar áttir. Brúnn að lit með heiðbjört augun, fagurt fax og breiðasta bak. Viljugur var hann, gat borið byrðir mannanna og gerði það vel. Hann var klár og atti kappi við að gera vel. Hann var elskaður, þráður af fólkinu dáður.
Dag einn kom ástin hans og setti skýlu sem gerði hann þröngsýnann þar til hann glataði ást sinni og hætti að lifa frjáls. Hann sá ekki lengur hina víðu sýn heldur einungis það sem hentaði, frelsið á lífið hvarf og viljinn með því.
Hesturinn hætti að elska og varð þræll lífsins í stað þess að þræla fyrir ást sinni og frelsinu.
Hann er frjáls, hann ann lífinu og lifir nú frjáls í hjartanu, hann er hluti af mér, hestur heimsins er gefur styrk, von og trú.
hann er ástin
Hvað gerir okkur sæl og sátt
Í myrkrinu lýsir ástin hjarta þínu leið
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:58 | Facebook
Athugasemdir
Aldrei skal maður reyna að breyta þeim sem maður elskar og girnist. Málið er að slípast saman í hinn fullkomna demant. Falleg færslu knús til úttlanda.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 21:40
Ég vil gera orð allra hér á undan að orðum mínum.
Ég elska þig sæta mín
Solla Guðjóns, 25.2.2008 kl. 22:46
Mikið finnst mér þetta fallega orða hjá þér elsku Þórdís mín.
Þú er yndisleg kær kveðja til þín.
Kristín Katla Árnadóttir, 26.2.2008 kl. 11:15
Þórdís draumadís.
Hugarfluga, 26.2.2008 kl. 13:09
Falleg færsla
Ekkert er yndislegra en að elska, nema helst að vera elskaður.
Marta B Helgadóttir, 26.2.2008 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.