Stálslegin og til í allt .....

Þvílíkt dásamlegur laugardagur.  Klukkan æðir áfram og ekki verður kona yngri en þvílíkt sem heilsan er dásamleg! 

Katrín Snæhólm, það var gaman að hitta þig á stjörnunni okkar, og takk fyrir að sýna mér fallegar hugmyndir þínar!  Ég hlakka til sýningarinnar okkar og það styttist heldur betur í gjörninginn!

Ég er að undirbúa þessa sýningu ásamt annari sem er á svipuðum tíma en er að auki að gæla við að vera með soldið í upphafi sumars smá öðruvísi sýningu og það væri gaman að viðra þá hugmynd örlítið síðar við betra tækifæri.

Það er laugardagur 1.Mars, elskuleg vinkona mín á afmæli í dag og óska ég henni innilega til hamingju.  Ung og falleg kona í fegursta blóma, auður af konu og yndisleg ást.  Auður mín, við sendum þér bjartar og ljúfar afmæliskveðjur Heart

Ég ætla að fara úr náttkjólnum og klæða mig, skella mér út í góða veðrið og fara að kaupa blómvönd.  Kanski ég finni mér blóm til að setja á endalausar svalirnar hjá mér ...

Eigið yndislegan dag

Ég er uppfull af geislandi appeslínugulri orku í dag

Viltu vera memm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með vinkonu þína Þórdís mín Eigðu góðan dag í góða veðrinu og það liggur við að ég finni blómailminn hingað í norðri í kuldanum. Knús á þig  elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 1.3.2008 kl. 13:01

2 identicon

Bjórinn á afmæli, vinkona mín á afmæli, samstarfskona mín á afmæli og það er árshátíð Akureyrarbæjar í kvöld ... frábær dagur, dúlla.

kveðjur frá Fróni og flóni!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 14:21

3 Smámynd: Brynja skordal

til hamingju með vinkonu þína já ég skal vera memm og taka við eitthvað af þessari appelsínugulu orku þinni takk fyrir hafðu góðan blómadag knús

Brynja skordal, 1.3.2008 kl. 15:43

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Appelsínugult er uppáhaldsliturinn minn......

Hrönn Sigurðardóttir, 1.3.2008 kl. 17:37

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

vonandi var dagurinn þinn fallegur kæra zoedís !

Blessi þig á laugardagskvöldi !

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.3.2008 kl. 17:54

6 Smámynd: Margrét M

eigðu sem bestan appelsínugulan dag

Margrét M, 2.3.2008 kl. 09:39

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.3.2008 kl. 16:21

8 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Appelsínugulur er einn af mínum litum, svo ég vil vera memm!

Vona að þú eigir marga appelsínugula daga

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 2.3.2008 kl. 16:47

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 3.3.2008 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband