8.5.2008 | 21:05
Rigningin er góð fyrir geðið ...
Heilnæm rigningin hefur kitlad vanga okkar í dag og gerir vonandi fram yfir helgi. Gróður tekur kipp og allt grænkar í umhverfinu.
Ég setti jólastjörnurnar mínar út í ljósopið svo blöðin gætu fundið tillífun sína, svo heilnæmt regnið gæti skolað sér á réttan áfangastað. Stjúpurnar eru glaðhlakkanlegar og Hawayrósin teygir reisulega úr sér á veröndinni.
Ég ákvað að borða ávexti og grænmeti í dag og byrjaði daginn á banana og nýkreistum appelsínu safa.
Í hádeginu splæsti ég spínati og papríku á pönnu með ferskum tómat og dilli á disk. Bara gott!!
Oooog, í kvöldmatinn voru 2 tómatar teknir og kurlaðir í takt við túnfisk og skolað niður með köldu Cava. ÆJ, það eru nottl. vínber
Annars tók kerlingin það bara flott á stjörnusilfurlituðum sandölum í rigningunni. Fór heilan hring í héraði og endaði daginn í banka og var leyst út með gjöf! REGNHLÍF.
Mér fannst vera mánudagur í dag en það er víst skollin á helgin enn eina ferðina. Tíminn flýgur hraðar og hraðar og hraðar og ég ætla að njóta ferðarinnar sem er í boði.
Akrýl mynd 20 x 50
Nóttin liðar sér í vitund og það er víst betra að fara að strjúka ugganum mínum .....
Sofið rótt í alla nótt!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:37 | Facebook
Athugasemdir
Sofðu rótt í alla nót, dreymi þig fallega og Guð blessi þig
Sporðdrekinn, 8.5.2008 kl. 21:26
Rigningin er góð og græðandi, best þegar hún er lóðrétt. Það er gott hjá þér að hafa einn dag með léttu fæði ,ávöxtum og grænmeti. Ég tek mér alltaf annars lagið svoleiðis daga. Þetta með tímann er satt, hann flýgur svo hratt mér finnst varla vera liðin helgi þegar sú næsta bankar uppá.
Yndislega falleg myndin þín.
Njóttu dagana sem framundan eru.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 8.5.2008 kl. 21:27
Það er gott að fá rigningu svona af og til
Nammi kvöldmatur hjá þér dreymi þig fallega elsku Þórdís mín
Kristín Katla Árnadóttir, 8.5.2008 kl. 22:27
Megi draumar þínir vera uppfullir af yndislegheitum
Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 23:47
Innlit til þín er must fyrir geðið
Heiða Þórðar, 9.5.2008 kl. 00:05
það er gott með rigningu af og til, hérna er só og yndislegt og ég nýt þess. svona var það líka í fyrra, en svo ringdi í allan júlí mánuði, vonandi verður það ekki svona í sumar.
knús inn í daginn
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 05:51
Goðan daginn Ljufan, gott að þú varst í hollustunni í gær.Vonandi skín sólin á þig í dag.
Knus á þig
Kristín Gunnarsdóttir, 9.5.2008 kl. 06:25
Flott að fá rigningu af og til svo gróðurinn fái sitt og umhverfið hreinkist aðeins
Dísa Dóra, 9.5.2008 kl. 09:01
Já nú rignir hann á Fróni.....
Solla Guðjóns, 9.5.2008 kl. 09:57
Virkilega falleg mynd. Hér rignir líka og einhver er að mála grasið. Eigðu ljúfa helgi.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 16:57
Ekki rignir hér heldur snjóar!
Eigðu góða helgi Þórdís 
Huld S. Ringsted, 9.5.2008 kl. 20:17
Hér í Reykjavík er búið að rigna í nokkra daga, enda hefur gróðurinn tekið vaxtarkipp. Eigði góða helgi Zordís mín.
Svava frá Strandbergi , 9.5.2008 kl. 23:41
Á morgun er spáð mikilli rigningu. Ég ætla samt í sveitaferð og bara njóta útiverunnar í gúmmístígvélum og tilheyrandi.
Helgarknús til þín Þórdís mín.
Marta B Helgadóttir, 10.5.2008 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.