11.5.2008 | 18:13
Til hamingju með daginn ....
Þvílíkur letidagur sem kjéddlingin er búin að eiga.
Til hamingju með daginn í dag allar mæður!!!!
Spænskar mæður héldu uppá daginn þann 4mai og kom sonur minn með gjafir sem hann gerði í skólanum, voðalega sætt af honum. Fallegasta mamman og besta og ..... já honum vantaði ekki fallegu orðin.
Ég var í partý með vinkonu minni onðe fón ... mikið fjör en svo vaknaði litli drengurinn hennar og við kvöddumst. Ekki amalegt þrátt fyrir að ég panta partý læf í sumar!
Um helgina er búið að rigna og hér hefur fallið þvílíkt að ofan að það hefur valdið miklu tjóni hjá mörgum. Sennilega hafa íbúar Almería fylkis orðið hvað verst úti en á meðan aðstoðaði ég vinafólk mitt sem lenti í að það flæddi inn hjá þeim og er mín að drepast í baki, fótum og þjáist af ofurþreytu! Þvílíkt og annað eins sem kjéddlingin er í slæmu formi .....
Elskulegu blómin mín fengu að kenna á haglélinu sem kom á föstudag og eru götótt á þeim blöðin. Jólarósirnar eru ekki í sínum fínasta búning og Hawayrósin er í fullum skrúða og blómstrar feitt.
Ég óska ykkur mæður til hamingju með daginn.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Svo erum við hérna á skerinu að kvarta yfir kulda og smá snjó
en til hamingju með daginn Þórdís 
Huld S. Ringsted, 11.5.2008 kl. 18:33
Sömuleiðis til hamingju!
Hrönn Sigurðardóttir, 11.5.2008 kl. 20:26
Sömuleiðis, kæra Zordís!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.5.2008 kl. 21:31
Takk og sömuleiðis elsku Zordis
Ásdís Sigurðardóttir, 11.5.2008 kl. 22:30
Til hamingju mæður með daginn já ... þið eruð yndislegastar!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 23:14
Takk fyrir yndislega kveðju á mínu bloggi
Ég vona að dagurinn hafi verið þér góður
Til hamingju með að vera mamma 
Sporðdrekinn, 12.5.2008 kl. 03:17
Eigðu góðan dag
Hér fékk ég blómvönd í tilefni mæðradags. Fyrsti slíki vöndurinn sem ég fæ á minni ævi og fannst mér það bara yndislegt
Dísa Dóra, 12.5.2008 kl. 13:36
Sömuleiðis ástin.Ég fattaði seinnt í gærkvöldi þegar ungfrú Gunna spurði hvað get ég gert svo kósý dúll fyrir þig mamma að það væri mæðradagur
Solla Guðjóns, 12.5.2008 kl. 15:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.